Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Thomasar
Möller
BAKÞANKAR
Við Íslendingar erum oftast ósammála um málefni dagsins. Það nægir að nefna
orkupakkann, ESB, krónuna,
hvalveiðar, virkjanir, kvótakerfið,
göngugötur, verndartolla, pylsur
eða pulsur… það er af nógu að taka.
En nú hefur þetta breyst.
COVID-19 hefur leitt til að við
virðumst sammála um næstum
allt. Við erum sammála um ágæti
þríeykisins, samkomubannsins,
Helga Bjöss, handþvottar og
efnahagsaðgerða Alþingis. Ég
er því viss um að við verðum nú
loksins sammála um hundrað ára
ósætti um misjafnt vægi atkvæða í
alþingiskosningum á Íslandi.
Allir vita að atkvæði eru með
jafnt vægi í sveitarstjórnar-
kosningum, forsetakosningum
og þjóðaratkvæðagreiðslum. Þar
hefur hver kjósandi eitt atkvæði.
Þessi regla gildir í nánast öllum
löndum heims nema í kosningum
til Alþingis á Íslandi!
En ef þú býrð á suðvestur-
horninu þá ertu aðeins með hálft
atkvæði miðað við samlanda þína
á norðurvestursvæði landsins. Í
síðustu kosningum þurfti um 5400
atkvæði til að koma þingmanni að
hér fyrir sunnan meðan aðeins um
2700 atkvæði dugðu fyrir norðan.
Alþjóðastofnanir hafa gert harðar
athugasemdir við þetta misrétti.
Við sem búum á suðvestur-
horninu erum sem sagt hálfdrætt-
ingar í atkvæðavægi. Nútímaorða-
bókin segir að hálfdrættingur hafi
svipaða merkingu og meðalskussi,
aukvisi og undirmálsmaður.
Ég vil ekki vera það og líklega
ekki þú heldur. Ég hvet þig til að
spyrja þingmanninn þinn eða
f lokkinn sem þú styður hvort
hann sé fylgjandi því að þú verðir
áfram hálfdrættingur.
Það er gleðiefni að við getum loks
orðið sammála um þetta mikilvæga
réttlætis- og jafnréttismál. Fram-
vegis munu allir landsmenn njóta
sama réttar þegar kemur að vægi
atkvæða í kosningum. Eða hvað?
Loksins sammála
COLLAB
ÁSTARALDIN &
LÍMÓNU 330 ML
249
KR/STK
756 KR/L
Ný og betri uppskrift
FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO
*alveg hummneskt*
/ enn mýkri á BRAUÐið /
Kraftmeiri
með suður
-amerísku
ívafi.
Túrmerik,
kókosmjólk
og tahini
gefa þessum
karakter.
Silkimjúkur,
sólþurrkaðir
tómatar og
hvítlaukur.
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar
blaðið er opnað!
Kannaðu dreiileiðir og verð í
síma 550 5050 eða sendu
tölvupóst orn@frettabladid.is.
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019