Fréttablaðið - 07.05.2020, Side 22
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Saunaatunnurnar
eru svo vinsælar
að í mörgum tilfellum er
fólk farið að taka sauna
fram yfir heitan pott í
bústaðinn. Sumir fá sér
viðarpotta í stíl og þetta
er afar smart saman og
auðvitað dásamlegt að
njóta.
Framhald af forsíðu ➛
Saunatunnur njóta mikilla vinsælda í sumarbústaði ásamt heitum og köldum viðarpottum í stíl. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fjárfesting í vellíðan
Smiðjuvegi 11 s. 571 3770, pall@sauna.is, sauna.is
Hydropool rafmagnspottar og Aqua Exellent bætiefni fyrir potta og laugar
Hydropool pottarnir eru með 4 Wellness-stillingar
Bjóðum upp á viðhald og varahlutaþjónustu
Veitum faglega ráðgjöf
25 ára góð reynsla af Hydropool
rafmagnspottunum á Íslandi
Umhverfisvæn bætiefni
fyrir rafmagnspotta
og hitaveituskeljar
Velkomin í sýningarsalinn
að Smiðjuvegi 11
í saunasmíðum og þekkja aðferð-
irnar eins og lófann á sér.
„Gufuböð eru mikil fínsmíði
og því þarf að vanda vel til verka,“
segir Páll. „Við búum yfir mikilli
sérþekkingu þegar kemur að
hönnun, smíði og ráðgjöf um
byggingu saunaklefa. Við smíðum
yfirleitt alla saunaklefa frá grunni,
bæði sjálfstæðar smíðar og inn í
ákveðin rými, og ráðleggjum við
val á viði í saunað og bekki. Við
veitum líka ráðgjöf í ljósum því
það skiptir miklu máli hvernig
lýsingu er háttað í saunaklefum.
Það hefur sýnt sig að stök ljósapera
í lofti skapar dauflega birtu en
með ledljósum undir bekkjum eða
ledljósastrípum í loftum verður
stemningin einkar hugguleg og
sjarmerandi,“ segir Páll sem byggir
á sérþekkingu sem starfsmenn
hafa sótt til Tylö sem er leiðandi
í framleiðslu á öllum hlutum
tengdum saunaklefum; bekkjum,
ljósum, hurðum, glerfrontum og
fleiru.
„Hjá Tylö höfum við lært allt um
traustar byggingar saunaklefa.
Það er auðvitað ekki sama hvernig
saunaklefi er byggður og að mörgu
að huga svo klefinn endist árum
saman og lofti sig vel. Við bjóðum
upp á þurrgufur og blautgufur
og eigum í samstarfi við þýskt
fyrirtæki sem er fremst á sínu
sviði í heiminum í blautgufum.
Það er sérlega vandasamt að útbúa
blautgufur því gufan er svo blaut
og ekki sama hvernig staðið er að
einangrun og festingum flísa og
ljósa. Þar þarf að raða öllu rétt svo
að gufubaðið verði sem lengst til
yndisauka,“ segir Páll.
Hann á iðulega í samstarfi við
arkitekta sem ráðgjafi við hönnun
saunabaða.
„Til eru ótal spennandi
lausnir í saunaofnum, allt frá
hefðbundnum ofnum sem maður
kveikir á sjálfur en líka ofnar með
WiFi-stýringu sem hægt er að
kveikja á í gegnum app í símanum
úr vinnunni og þá er saunabaðið
orðið heitt og klárt til að njóta
þegar maður kemur heim,“ segir
Páll um notalegheitin sem fylgja
því að eiga sitt eigið saunabað.
Eru með allan pakkann
Allt frá heimilum og sumarhúsum
til hótela, íþróttamannvirkja og
sundlauga fá sér sauna um þessar
mundir.
„Saunatunnur eru það allra
vinsælasta í sumarbústaði og
einkagarða. Þær eru úr hágæða,
viðhaldsfríum sedrusvið sem þolir
vel íslenskt veðurfar. Reynslan
af tunnunum er mjög góð. Við
seldum fyrstu tunnuna í Vatns-
virkjanum fyrir um tólf árum og
hún er enn eins og ný,“ segir Páll.
„Tunnurnar eru svo vinsælar að
í mörgum tilfellum er fólk farið að
taka sauna fram yfir heita pottinn
í bústaðina. Við erum líka með
viðarpotta í stíl, sem hægt er að
hafa í hitaveituvatn eða upphitað
vatn með rafmagnskyndingu.
Sumir fá sér líka lítinn kaldavatns-
pott og þetta er afar smart saman
og auðvitað dásamlegt að njóta,“
segir Páll sem sérsmíðar potta og
saunaböð í öllum mögulegum
útfærslum og smíðaði meðal ann-
ars tvo stóra potta í bjórböðin hjá
Bruggsmiðjunni Kalda á Árskógs-
strönd.
„Allt sem viðkemur vellíðan og
heilsulindum er okkar aðalsmerki.
Við erum líka með rafmagnspotta
og bætiefni fyrir þá, sem og vin-
sæla innrauða klefa sem hafa góð
áhrif á vefjagigt og við sérsmíðum
klefa í heimahús sem eru blanda
af hefðbundnu sauna og innrauðu
rými. Við erum með heildarlausnir
og allan pakka fyrir þá sem vilja
fjárfesta í vellíðan og enn meiri
hamingju.“
Sjón er sögu ríkari og allir vel-
komnir í glæsilegan sýningarsal
Sauna & Spa til að skoða úrvalið og
prófa sig áfram.
Sauna & Spa er á Smiðjuvegi 11 í
Kópavogi. Sími 571 3770. Sjá nánar
á sauna.is
2 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RGARÐAR OG HELLULAGNIR