Fréttablaðið - 07.05.2020, Page 48

Fréttablaðið - 07.05.2020, Page 48
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Thomasar Möller BAKÞANKAR Við Íslendingar erum oftast ósammála um málefni dagsins. Það nægir að nefna orkupakkann, ESB, krónuna, hvalveiðar, virkjanir, kvótakerfið, göngugötur, verndartolla, pylsur eða pulsur… það er af nógu að taka. En nú hefur þetta breyst. COVID-19 hefur leitt til að við virðumst sammála um næstum allt. Við erum sammála um ágæti þríeykisins, samkomubannsins, Helga Bjöss, handþvottar og efnahagsaðgerða Alþingis. Ég er því viss um að við verðum nú loksins sammála um hundrað ára ósætti um misjafnt vægi atkvæða í alþingiskosningum á Íslandi. Allir vita að atkvæði eru með jafnt vægi í sveitarstjórnar- kosningum, forsetakosningum og þjóðaratkvæðagreiðslum. Þar hefur hver kjósandi eitt atkvæði. Þessi regla gildir í nánast öllum löndum heims nema í kosningum til Alþingis á Íslandi! En ef þú býrð á suðvestur- horninu þá ertu aðeins með hálft atkvæði miðað við samlanda þína á norðurvestursvæði landsins. Í síðustu kosningum þurfti um 5400 atkvæði til að koma þingmanni að hér fyrir sunnan meðan aðeins um 2700 atkvæði dugðu fyrir norðan. Alþjóðastofnanir hafa gert harðar athugasemdir við þetta misrétti. Við sem búum á suðvestur- horninu erum sem sagt hálfdrætt- ingar í atkvæðavægi. Nútímaorða- bókin segir að hálfdrættingur hafi svipaða merkingu og meðalskussi, aukvisi og undirmálsmaður. Ég vil ekki vera það og líklega ekki þú heldur. Ég hvet þig til að spyrja þingmanninn þinn eða f lokkinn sem þú styður hvort hann sé fylgjandi því að þú verðir áfram hálfdrættingur. Það er gleðiefni að við getum loks orðið sammála um þetta mikilvæga réttlætis- og jafnréttismál. Fram- vegis munu allir landsmenn njóta sama réttar þegar kemur að vægi atkvæða í kosningum. Eða hvað? Loksins sammála COLLAB ÁSTARALDIN & LÍMÓNU 330 ML 249 KR/STK 756 KR/L Ný og betri uppskrift FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO *alveg hummneskt* / enn mýkri á BRAUÐið / Kraftmeiri með suður -amerísku ívafi. Túrmerik, kókosmjólk og tahini gefa þessum karakter. Silkimjúkur, sólþurrkaðir tómatar og hvítlaukur. HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050 eða sendu tölvupóst orn@frettabladid.is. *Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019. Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.