Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Umboðs- maður barna mun örugg- lega af festu og ákveðni halda áfram að vaka yfir hag barna og koma skila- boðum þeirra á framfæri. Þetta próf verðum við að standast sem samfélag. Margir einstaklingar sem nú eru vel á fullorðinsaldri muna eftir þeirri miklu gleði sem greip þá á barnsaldri þegar skólastarfi var aflýst, ýmist vegna ófærðar eða verkfalls kennara. Því lengur sem dráttur varð á skólastarfi, því stórbrotnari var gleðin. Hugurinn var ekki við skólasetu og prófgráð- ur, sem fullyrt var að myndu tryggja örugga framtíð. Hugurinn var í núinu þar sem hægt var að gera allt það sem ekki mátti gera í skólastofunni. Nú er öldin önnur. Börn hafa undanfarið lýst yfir miklum áhyggjum vegna þess að skólaganga þeirra hefur raskast vegna kórónaveirunnar og verk- falla. Nútímabörnin eru greinilega mörg hver mun ábyrgari þjóðfélagsþegnar en hinir fullorðnu sem í æsku svifu um í sæluvímu vegna lokunar skóla. Íslensk börn hafa sum komið áhyggjum sínum af skólalokunum vegna verkfalla til skila til umboðs- manns barna. Þau eru ákveðin og fylgin sér, vita vel af rétti sínum og ætla ekki að láta troða á honum. Umboðsmaður barna, Salvör Nordal, gerir nákvæm- lega það sem fullorðnir eiga að gera, sem er að virða börn og hlusta á þau. Salvör gerði meira, kom sem sagt áhyggjum barnanna til skila með því að senda Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, bréf vegna fyrirhugaðra verkfallsaðgerða Eflingar. Sólveig Anna á, eins og alkunna er, afar erfitt með að hlusta á sjónarmið sem eru ekki í takt við hennar eigin. Það þurfti enga spádómsgáfu til að vita að hún myndi ekki bregðast vel við upplýsingum um líðan barna sem verkfall mun bitna á. Eins og venja hennar er svaraði hún fullum hálsi og sagði æsingar- full að hún teldi í hæsta máta ósmekklegt hvernig Salvör spilaði börnum fram til að grafa undan lögvarinni réttindabaráttu verkafólks. Samkvæmt þessu verður ekki annað álitið en að formaður Eflingar telji umboðsmann barna vera kominn í baráttu gegn verkalýðnum í landinu. Vitanlega er fjarstæðukennt að túlka bréf umboðsmanns barna á þennan veg. Ef börn leita til umboðsmanns með erindi sem varðar hag þeirra þá hlýtur umboðsmaður að bregðast við og koma áhyggjum þeirra til skila til réttra aðila. Formaður Eflingar ætti, eins og aðrir, að leggja sig fram við að hlusta á börn og skoðanir þeirra. Það kann svo að hvarfla að einhverjum að formanni Eflingar líki ekki skoðanir barnanna, sem vilja frekar sitja á skólabekk en vera heima vegna verkfalls. Mögu- lega finnst formanninum slíkt ekki bera vott um sterka stéttarvitund viðkomandi barna. Þau þykja hugsanlega ekki vera nægilega góður efniviður í uppreisnargjarna einstaklinga sem vilja leggja allt í sölurnar fyrir byltingu í anda Karls Marx og annarra álíka mislukkaðra félaga hans, fyrr og síðar. Umboðsmaður barna mun örugglega af festu og ákveðni halda áfram að vaka yfir hag barna og koma skilaboðum þeirra á framfæri. Ástæða er til að ætla að viðtökurnar muni nær undantekningarlaust verða blíðari en þær sem umboðsmaðurinn fékk nýlega hjá formanni Eflingar. Skólabörn  Ný tvöföld virkni sem veitir hraða og langvarandi vörn gegn tannkuli. Það hefur tekist prýðilega að spila úr afar óvenjulegri stöðu í skóla- og frístundastarfi og velferðarþjónustu Reykjavíkur eftir mestu röskun síðari ára vegna COVID-19 viðbúnaðar til að mæta fyrirmælum sóttvarnayfirvalda. Aldrei hafa verið f leiri tilkynningar til barnaverndar en 2020, aukning er á tilkynningum þar sem barn er metið í yfirvofandi hættu og tilkynningar vegna heimilisof- beldis hafa aldrei verið jafn margar og í aprílmánuði. Við viljum standa með börnunum í borginni og þess vegna höfum við lagt til sérstakar aðgerðir til að verja börn í viðkvæmri stöðu. Þar horfum við sér- staklega til barna með annað móðurmál en íslensku, nemenda í skólaforðun, barna í erfiðri félagslegri stöðu og ungmenna sem sýna áhættuhegðun. Verið er að leggja lokahönd á mótun verklags sem tryggir að að minnsta kosti út þetta skólaár verði fylgst sérstaklega vel með börnum í viðkvæmri stöðu þar sem börnin eru á vettvangi borgarinnar í leikskólum, grunnskólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum. Sett verður á fót viðbragðsteymi í hverjum borgar- hluta sem samhæfi vinnu í málefnum einstakra barna og hópa í viðkomandi borgarhluta. Því til viðbótar verði sett á fót samhæfingarteymi sem hafi yfirsýn yfir stöðu þessara mála í borginni í heild. Þar sitji fulltrúar skóla- og frístundaráðs og -sviðs, vel- ferðarráðs og -sviðs, barnaverndar, skólaþjónustu, frístundamiðstöðva, kennara, skólastjórnenda og nemenda. Við núverandi aðstæður með tilheyrandi óvissu, kvíða og röskun á daglegu lífi barna og ungmenna er mikilvægara en nokkru sinni að verja börnin í borginni, styðja þau með daglegum samskiptum, ráðgjöf og fjölbreyttum viðfangsefnum sem ýta undir heilbrigði, þroska og menntun. Ekkert við- fangsefni er mikilvægara nú en að standa vörð um börn í viðkvæmri stöðu. Þetta próf verðum við að standast sem samfélag og við heitum á okkur öll sem komum að velferð og menntun barna að láta það takast. Ekkert er mikilvægara Skúli Helgason borgarfulltrúi Samfylkingar- innar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi Samfylkingar- innar Ekki um jólin… Þórólfur Guðnason þurfti í gær að biðjast afsökunar á orðum sínum, um að 2 metra reglan gilti út árið, sem kölluðu fram heift- arlegt samkomubanns-bráða- hjarðofnæmi sviðslistafólks. Tónlistarfólk brást hart við misskilningnum enda bindur líklega margt þess vonir við að geta rétt eitthvað úr kútnum á jólatónleikavertíðinni. Björgvin Halldórsson söng þannig engan fagurgala á Facebook þegar hann áréttaði einskis virði alls heimsins prjáls í takmarkalausu samkomu banni. Leiðrétting Þórólfs á eigin orðum hlýtur að vera kærkomin þar sem varla er hægt að skilja hann öðruvísi en að tónlistarfólk megi f lá feita jólagelti frá og með 25. maí. Álfavísitalan Álfasala SÁÁ er fordæmalaus að þessu sinni. Álfarnir berast kaupendum sem smitfríar PNG-myndir í tölvupósti og geta þannig birst í ýmsum áður óþekktum myndum. Meðal annars er hægt að kaupa Sig- mund Davíð, Ingu Sæland, Bjarna Benediktsson og Loga Einarsson eins og álfa út úr hól á litlar 3.000 krónur stykkið. Álfur Exótíski, tvífari furðu- fuglsins Joe Exotic, kostar hins vegar 10.000 krónur og er ríf lega þriggja pólitíkusa maki hvað svo sem það kann að segja um gengisvísitölu þeirra síðar- nefndu. toti@frettabladid.is 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.