Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Netverslunin sofdurott.is var stofnuð haustið 2017 og er í eigu Vita ehf. sem selur lín og húsgögn til hótela og veitinga- staða. Sofðu rótt býður upp á gæðavörur sem geta bætt svefn fólks, fyrst og fremst vandaðar sængur og kodda sem fást hvergi annars staðar. „Eftir að hafa selt til hótela um nokkurt skeið vissi ég að ég væri með framleiðendur sem buðu upp á vöruúrval sem hentaði einnig fyrir einstaklingsmarkað. Fyrstu tvö árin seldi ég kodda og sængur en þá voru Viscospring heilsu- koddinn og Climabalance sængin mest seldu vörurnar,“ segir Arnar Þór Jónsson, eigandi Sofðu rótt. „Síðan hefur þetta þróast og ég hef verið að bæta við vörum sem hafa ekki verið á íslenskum markaði nema að litlu leyti. Síðasta haust benti viðskipta- vinur mér á að það gæti verið sniðugt að bjóða upp á þyngingar- sængur en við bættum þeim við núna í febrúar sem þriðju kjarna- vörunni okkar,“ segir Arnar. „Allar þessar vörur eiga það sameiginlegt að vera svolítið öðruvísi en það sem hefur verið á markaðnum.“ Eins og þétt faðmlag „Eftir að mér var bent á þyngingar- sængina fór ég á sýningu um ára- mótin til að hitta framleiðendur og á endanum valdi ég að vinna með CURA of Sweden,“ segir Arnar. „Það er fyrirtæki sem er á mikilli siglingu, en þyngingarsængin þeirra er sú vinsælasta í Evrópu. Þyngingarsængin umvefur þig í rauninni og veitir öryggiskennd. Tilfinningin er svipuð og að fá þétt og gott faðmlag,“ segir Arnar. „Upplifun fjölmargra er sú að það næst mikil slökun og ró með því að nota þyngingarsæng. Það hefur kannski sjaldan átt betur við en akkúrat núna á þessum fordæma- lausu tímum. Þyngingarsængurnar hafa verið notaðar um árabil til að hjálpa einstaklingum sem eru með ADHD, einhverfu, kvíða, streitu og fleira, en hingað til hafa þær verið mjög dýrar,“ segir Arnar. „Fyrir nokkrum árum uppgötvaði almenningur í Bandaríkjunum að þetta hentar fleirum en bara þeim sem hafa greiningar eða undirliggjandi kvilla. Í kjöl- farið jókst salan umtalsvert og mikil vitundarvakning hefur orðið undanfarin 1-2 ár í Evrópu. Sængurnar rokseljast í Svíþjóð, þar sem CURA þyngingarsængin hefur verið skrásett sem lækningavara, og þær seljast líka vel í nágranna- löndunum. Sofðu rótt styrkir ADHD-sam- tökin, Einhverfusamtökin og SPOEX, Samtök psoriasis- og exemsjúklinga á Íslandi, með hluta af ágóðanum af sölu þyngingar- sængurinnar, en viðskiptavinir fá að velja hvaða samtök þeir styrkja með kaupum sínum,“ segir Arnar. Einstakt vöruúrval „Það sem er kannski sérstakt við Sofðu rótt er að við bjóðum upp á vörur sem fást ekki annars staðar á Íslandi, en eru virkilega góðar og eiga erindi við flesta,“ segir Arnar. „Við erum eini söluaðilinn sem býður upp á Viscospring heilsu- kodda og Climabalance sængur og vorum fyrst með þyngingar- sængur á almennum markaði. Climabalance sængin er þekkt fyrir að anda sérstaklega vel, mun betur en aðrar sambærilegar vörur á markaðnum,“ segir Arnar. „Það var gerð rannsókn í þýskum háskóla sem var nokkuð afgerandi: Þú ert f ljótari að sofna undir Climabalance-sænginni, svefninn verður rólegri, þú vaknar sjaldnar, Fyrstu tvö árin voru Visco- spring heilsu- koddinn og Climabalance sængin mest seldu vörurnar hjá Sofðu rótt en um áramótin var þyngingar- sængum frá CURA bætt við sem þriðju kjarnavörunni. Það eru vin- sælustu þyng- ingarsængur í Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Þyngingarsængin umvefur fólk og veitir öryggiskennd. Arnar segir að til- finningin sé svipuð og að fá þétt og gott faðmlag og að fólk finni mikla ró. Arnar fór á sýningu um áramótin til að hitta framleiðendur og valdi að vinna með CURA of Sweden, en fyrirtækið er á mikilli siglingu í Evrópu. Framhald af forsíðu ➛ REM-svefninn lengist og djúpsvefn lengist um allt að 50%. Þetta var fyrsta varan sem ég fór af stað með og það hafa helst verið einstaklingar sem er of heitt á næturnar sem kaupa hana, en hún hentar öllum og tryggir stöðugt og gott hita- og rakastig alla nóttina,“ segir Arnar. Við bjóðum líka upp á Visco- spring heilsukodda, en þeir eru óvenjulegir að því að leyti að þeir hafa pokagormakerfi að innan og memory foam að utan,“ segir Arnar. „Þetta er eini framleiðand- Climabalance sængin er þekkt fyrir að anda mun betur en aðrar sambæri- legar vörur. Samkvæmt rannsókn sem var gerði í þýskum há- skóla bætir hún svefn verulega. Þyngingarsæng- urnar hafa verið notaðar um árabil til að hjálpa einstaklingum sem eru með ADHD, einhverfu, kvíða, streitu og fleira. inn sem býður upp á þessa tegund af kodda, sem tryggir réttan stuðning við hnakka og hryggjar- súlu.“ Netgíró-tilboð í maí „Við kappkostum að bjóða gæða- vörur á sama verði og á meginlandi Evrópu, þrátt fyrir að flutnings- kostnaðurinn hingað sé drjúgur,“ segir Arnar. „Það er alltaf ódýrara að kaupa af okkur en að flytja inn sjálfur. Það nýjasta sem er að gerast hjá okkur er að núna í maí bjóðum við upp á tilboð í gegnum Netgíró,“ segir Arnar. „Svo erum við alltaf að horfa í kringum okkur og reyna að finna fleiri vörur sem henta. Ef við sjáum aðrar sniðugar vörur bætum við þeim við úrvalið. Næst á dagskrá er að bæta við sængurfatnaði frá flottum þýskum framleiðanda.“ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.