Fréttablaðið - 07.05.2020, Page 36

Fréttablaðið - 07.05.2020, Page 36
BÍLAR Hrannar Ingi smíðaði vagn til að æfa prjón á mótorhjóli sem lokaverkefni í Verkmennta- skólanum. „Þetta byrjaði á YouTube-mynd- bandi sem ég sá af Rússum sem voru búnir að smíða svona græju,“ sagði Hrannar Ingi Óttarsson um tilurð þess að hann smíðaði vagn með mótorhjólagrind til prjón- æfinga sem lokaverkefni sitt hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri. „Verkstjórinn minn hló bara og sagði að ég væri ruglaður en var samt mjög opinn fyrir þessu og fannst þetta spennandi.“ Hrannar Ingi fékk svo rennismið með sér í verkefnið og græjan fór smátt og smátt að verða til. Smíðin er þó ekki einföld því að hjólið þarf bókstaflega að keyra í gír á föstu kefli og þarf því mótorhjólið að vera kyrfilega fast ofan á þessu öllu saman, en samt geta risið að framan. Knapinn stjórnar svo risinu með inngjöf og temprar það með afturbremsunni. Græjan hans Hrannars er því mjög góð til að sýna fólki hvað gerist við prjón á kraftmiklu hjóli og hvernig er best að ná stjórn á því aftur. Bannað á götum úti Samkvæmt nýju umferðarlög- unum er bannað að lyfta viljandi framdekki í akstri en þar sem mót- orhjólið er kyrrstætt ætti það ekki Prjónbekkur sem lokaverkefni að koma að sök í þessu tilviki. „Við ætlum að vera með hjólið á svæði Bílaklúbbs Akureyrar í sumar en það er æfingasvæði. Jafnvel sýnum við græjuna á hjóladögum í sumar og kíkjum jafnvel suður. Áður en það er gert þarf samt að setja öryggisbelti á hjólið sem er fest við stýrið svo að óvanir detti ekki af hjólinu,“ sagði Hrannar Ingi sem greinilega vill hafa græjuna eins örugga og hægt er. Hrannar vildi koma á framfæri sérstöku þakklæti fyrir hjálpina sem hann fékk við smíðina hjá vinnufélögunum í Slippnum á Akureyri. Einnig var hann ánægður með að kennari hans skyldi gefa honum grænt ljós á svona verkefni sem ekki allir átta sig á hvað er. Svona græja sést ekki á hverjum degi þótt einhverjir hafi kannski séð svona í útlöndum. Hver veit nema við fáum að sjá meira af græjunni hans Hrannars í sumar einhvers staðar á landinu, ef COVID lofar. Samkvæmt nýjum umferðarlögum má ekki lyfta viljandi fram- dekki í akstri en það ætti ekki að koma að sök í þessu tilviki. Hrannar Ingi prjónar á græjunni sinni sem var lokaverkefni hans í Verkmenntaskólanum. MYND/AXEL DARRI Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is FRÉTTAUMRÆÐA, MENNING, HEILSA, NÁTTÚRA OG LÍFSREYNSLA FYLGSTU MEÐ Á HRINGBRAUT! 70 ára saga Þjóðleikhússins Linda Blöndal ræðir við fólkið sem þekkir söguna og skyggnist dýpra inn í starfsemi listamannanna. Í nýrri þáttaröð á Hringbraut Þriðji og síðasti þáttur um 70 ára sögu Þjóðleikhússins er á dagskrá í kvöld kl. 20:00. 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.