Bændablaðið - 20.10.2016, Page 1
Ekkert lát er á óhóflegri notkun
sýklalyfja í evrópskum landbún-
aði. Það hefur m.a. leitt til ört vax-
andi aukningar sýklalyfjaónæmra
baktería sem berast í fólk. Staðan í
íslenskum landbúnaði er eftir sem
áður með því besta sem þekkist. Er
hvergi notað minna af sýklalyfjum
í þessari grein á hvern grip en hér
á landi og Noregi.
Salan á virkum fúkkalyfjum í
29 Evrópulöndum 2014 nam 8.176
tonnum og nærri 67% af því var
notað í þrem löndum, þ.e. á Spáni, í
Þýskalandi og á Ítalíu. Þetta má lesa
út úr nýjusti skýrslu Lyfjastofnunar
Evrópu (European Medicine
Agency – EMA). Hún ber titilinn
„Sala sýklalyfja til dýralækninga í
29 Evrópulöndum 2014 – þróun á
árunum 2011 til 2014.“
Sem fyrr er notkunin á Íslandi
með því langminnsta sem þekkist.
Fram kemur í skýrslunni að mest
er notkun sýklalyfja í landbúnaði á
Spáni. Þar er hún rúmlega 80 sinn-
um meiri mælt í milligrömmum
á þyngdareiningu (mg/PCU) en á
Íslandi. Inni í tölunum eru lyf sem
blandað er í fóður sem fyrirbyggj-
andi varnir og sem vaxathvetjandi
efni. Á Spáni er nær 70% af sýkla-
lyfjunum blandað í fóður, eða 292,1
mg/PCU af 418,8 mg/PCU heildar-
magni. Á Íslandi er talan 0, en 0.9%
í Noregi. Langstærsti hluti þess litla
sýklalyfjamagns sem hér er notað
er beitt ef dýr veikjast og er þá gefið
með sprautum í samráði við dýra-
lækna. Það eru 4,5 mg/PCU á meðan
Spánverjar eru að nota 17,2 mg/PCU
af sprautulyfjum auk gríðarlegs
magns annarra lyfjaforma.
Þegar skoðuð er sala á lyfjum í
sprautuformi eingöngu, er hlutfallið
á grip hæst í Króatíu og næsthæst á
Ítalíu. Síðan kemur Spánn, Kýpur,
Eistland, Danmörk og Frakkland.
Salan á sprautulyfjum er hins vegar
hlutfallslega lægst í Noregi og síðan
á Íslandi og í Austurríki.
Hin mikla sýklalyfjanotkun í
Evrópu sem fram kemur í úttekt
EMA sýnir að ekki hefur verið
brugðist við viðvörunum lækna-
samtaka um nauðsyn þess að draga
úr sýklalyfjanotkun. Þeir hafa varað
við afleiðingunum sem er mikil
aukning lyfjaónæmra baktería eins
og MRSA. Þegar sýklalyfjaónæm-
ar bakteríur berast í fólk er voðinn
vís. Veldur þetta ört vaxandi vanda á
sjúkrahúsum og fjölgar hratt í þeim
hópi sem læknar hafa engin úrræði
til að bjarga. Tugir þúsunda látast
nú árlega í Evrópu vegna sýkinga
sem ekki er hægt að ráða við með
sýklalfjum.
Að vísu minnkað notkunin sýkla-
lyfja í landbúnaði örlítið frá 2011
til 2013, en frá 2013 til 2014 jókst
hún á ný um 7,5%. Bent hefur verið
á að vegna ástandsins sé farið að
nota mun meira af sterkum lyfjun-
um eins og colistin macrolides. Það
eru svokallað lokaúrræðalyf til að
reyna að drepa ofursýkingar í fólki.
Eins hefur sala á nýjasta lyfinu flu-
oroquinolones aukist en það er m.a.
notað við lífshættulegri lungnabólgu.
Athygi vekur að þau lönd sem mest
nota af sýklalyfjum eru þau sömu
og framleiða megnið af kjötinu sem
flutt er til Íslands. /HKr.
20. tölublað 2016 ▯ Fimmtudagur 20. október ▯ Blað nr. 477 ▯ 22. árg. ▯ Upplag 32.000
Hið eðla grjón
carnaroli frá
Acquerello
Sláturhús Vesturlands hóf starfsemi í gamla sláturhúsinu í Brákarey í Borgarnesi um síðastliðin mánaðamót, en starfsemi í húsinu hefur legið niðri í tæpan áratug. Þar er nú rekið þjónustusláturhús
og Guðjón Kristjánsson sláturhússtjóri er bjartsýnn á framtíðina. Stefnt er að því að kjötvinnsla verði sett upp í húsinu á næstu misserum. Sjá frétt á blaðsíðu 2. Mynd / smh
Ný úttekt Lyfjastofnunar Evrópu EMA staðfestir óhóflega notkun sýklalyfja í löndum sem selja kjöt til Íslands:
Sýklalyfjanotkun í landbúnaði er
langminnst á Íslandi og í Noregi
Heimild: European Medicine Agency - Staðan 2014
Á og í er engum fúkkalyfjum
blandað í fóður sem vaxtahvetjandi efni.
Í er það 0,3mg/PCU af 3,1 mg/PCU
Á er það 292,1 mg/PCU af 418,8 mg/PCU
Á er það 306,1 mg/PCU af 391,5 mg/PCU
24-26
Sjálfbært
samfélag
í Fljótum
Hóf söngferilinn í heyskap
í Dölunum sitjandi á
gömlum Massey Ferguson
32-3328-29