Bændablaðið - 20.10.2016, Page 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Evruverkið getur ekki gengið upp að óbreyttu:
„Einn daginn mun þessi spilaborg hrynja“
− segir Otmar Issing, prófessor og fyrsti yfirhagfræðingur Seðlabanka Evrópu
Seðlabanki Evrópu (European
Central Bank - ECB) er orðinn
hættulega yfirspenntur og allt
evruverkið getur ekki gengið upp
að óbreyttu,“ segir Otmar Issing
prófessor. „Einn daginn mun þessi
spilaborg hrynja.“
Það er ekki einhver vondur and-
stæðingur evrusvæðisins sem þarna
talar, heldur einn af yfirhönnuðum
kerfisins. Otmar Issing var fyrsti
yfirhagfræðingur Seðlabanka
Evrópu og leiðandi í innleiðingu
sameiginlegs myntkerfis Evrópu.
Það fer því ekki hjá því að eftir
orðum hans sé hlustað.
Prófessor Issing sagði í samtali
við The Telegraph að evran hafi
verið svikin af pólitíkusum sem hafi
haft uppi harmakvein yfir því að til-
raunin hafi verið mistök frá upphafi
og hafi síðan verið að úrkynjast. Það
hafi smitast yfir í sjúklega ríkisfjár-
málastefnu sem gerði ráð fyrir að
allir fengju allt fyrir ekkert.
Ekki er þó víst að allir hag-
fræðingar séu sammála þessum
athugasemdum Issing, þar sem
fjölmargir þeirra vöruðu við því
allan tímann að byrjað hafi verið á
vitlausum enda við mótun sameig-
inlegrar myntar ESB. Sameiginleg
mynt án sameiginlegs efnahagskerfis
gæti aldrei gengið upp. Það virðist
nú vera að staðfestast þegar meira að
segja Otmar Issing segir að evran sé
að sigla í strand.
Framhaldið mun einkennast
af strögli
„Ef við horfum á þetta raunsætt,
þá mun framhaldið einkennast af
strögli, úr einum vandræðunum
í önnur. Það er erfitt að spá fyrir
hversu lengi slíkt getur haldið áfram,
en slíkt getur ekki gengið endalaust,“
segir Otmar Issing.
Ljóst er að sambland af lágu
olíuverði, ódýrri evru og hæggengu
efnahagskerfi hafa blekkt menn til
að taka þessu rólega, en skammtíma-
áhrifin af hagstæðum ytri aðstæðum
eru að fjara út. Búast má við að mjög
muni reyna á evruna í framhaldinu
á sama tíma og ríkisstjórnir evru-
landanna þurfa að horfast í augu
við hærri skuldir, atvinnuleysi og
pólitíska þreytu.
Professor Issing gagnrýnir fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
fyrir að hafa byggt pólitíska múra og
gefist upp við að framfylgja reglum
og markmiðum.
„Hið siðferðislega hættuástand er
yfirþyrmandi,“ segir Issing.
Hann segir að Seðlabanki Evrópu
sé á hálu svelli og hafi sett kerfið í
hættu með því að borga gjaldþrota
ríki frá skuldum sínum og með því
að misbeita samningum sem gerðir
hafa verið.
Engin stjórn á hlutunum
„Stöðugleikinn og vaxtaþátturinn
hafa meira og minna mistekist.
Agi á markaði hefur horfið vegna
inngripa bankans. Það er því engin
raunveruleg stjórn á hlutunum af
hálfu markaðarins eða pólitískra
stjórnvalda. Í þessu eru innbyggðir
allir áhættuþættir til að kalla hörm-
ungar yfir myntbandalag Evrópu.
Ákvæði um að ekki skuli greiða
óreiðuskuldir eru þverbrotnar
á hverjum einasta degi,“ segir
Issing. Þá gefur hann lítið fyrir
það skilyrði að aðstoð við skulda-
uppgjör þurfi að hljóta samþykki
Evrópudómstólsins. Það sé byggt á
vanhugsaðri hugmyndafræði.
Hann segir að Seðlabanki
Evrópu sé nú þegar með í höndun-
um skuldabréfasafn upp á yfir
billjón evrur, sem það séu á nei-
kvæðum vöxtum. Bankinn sé nú að
kaupa bréf af fyrirtækjasamsteyp-
um sem ætti að flokka í ruslflokk.
Sú aðhaldsstefna sem bankanum sé
ætlað að framfylgja með inngripum
verði honum því stöðugt erfiðari.
„Afleiðingin getur hugsanlega
orðið skelfileg,“ segir Otmar Issing.
Í vitalinu við The Telegraf heldur
hann áfram að hakka núverandi
stjórnendur kerfisins í sig og rekur
endalaus mistök sem gerð hafa
verið allt frá innleiðingu evrunnar
1999. /HKr.
Fréttir
Tímarit Bændablaðsins kemur út
í þriðja sinn samhliða ársfundi
Bændasamtakanna sem fer fram
3. mars nk. Í ritinu eru fjölbreytt
efnistök þar sem helstu málefni
landbúnaðarins eru til umfjöll-
unar.
Hluti af Tímariti Bændablaðsins er
tekinn undir kynningar á fyrirtækjum
og stofnunum sem starfa í landbún-
aði. Auglýsingastjóri er þessa dagana
að ganga frá pöntunum á kynningum
og auglýsingum og eru áhugasamir
hvattir til að hafa samband í gegnum
netfangið augl@bondi.is eða hringja
í síma 563-0300.
Tímarit
Bændablaðsins
kemur út í mars
Otmar Issing.
Sláturhús Vesturlands hefur starfsemi í Brákarey í Borgarnesi:
Slátra fyrir bændur sem
selja beint frá býli
– stefnt á að færa út kvíarnar á næsta ári og að setja upp kjötvinnslu
Guðjón Kristjánsson er nýr slátur-
hússtjóri í Sláturhúsi Vesturlands
í Brákarey í Borgarnesi. Þar hefur
ekki verið rekið sláturhús í tæpan
áratug og raunar hvergi á öllu
Vesturlandi síðan það hætti. Um
svokallað þjónustusláturhús er
að ræða sem þjónar bændum á
Vesturlandi en engin kjötvinnsla
verður í húsinu fyrst um sinn.
Bændur kaupa þá einungis slát-
urþjónustuna en taka afurðirnar
heim og selja þaðan.
Guðjón segir að þetta sé í fyrsta
skiptið sem hann starfi við slátur-
hús, en hann geti stuðst við reynslu
góðra manna – og meðal annars eru
nú í starfsliðinu nokkrir sem störfuðu
við sláturhúsið þegar þar var síðast
slátrað .
Bændur og bændasynir
í starfsliðinu
Að sögn Guðjóns eru starfsmenn
flestir bændur og bændasynir úr
nálægum sveitum. Alls starfa nálægt
tíu manns að jafnaði í sláturhúsinu í
þessari sláturtíð, en starfsemi verður
haldið áfram í vetur með stórgripa-
slátrun. „Fyrst ætluðum við bara að
slátra einu sinni í viku en viðbrögð-
in hafa verið þannig að við höfum
fjöl gað sláturdögum upp í þrjá og
slátrum á mánudögum, þriðjudögum
og fimmtudögum.
Við þjónum nú nánast eingöngu
sauðfjárbændum sem selja beint
frá býli – en það gæti vel breyst í
framtíðinni. Við höfum fundið fyrir
því eftir að verðskrár voru birtar og
lækkun á afurðaverði varð ljós, að
mun fleiri sauðfjárbændur vilja nú
fara eigin leiðir með sínar afurðir
og selja sjálfir. Við höfum fengið
miklu betri svörun en við reiknuð-
um með. Bóndinn á það sem hann
kemur með og við afhendum það
sem við megum afhenda, sem er í
raun allt nema gærur og kjamma.
Innmat og svoleiðis eiga þeir hjá
okkur, en þurfa að kaupa af sjálfum
sér hjá afurðastöðvunum.
Við tökum 205 krónur á kílóið
fyrir að slátra lambi og það er mjög
svipað og hjá öðrum,“ segir Guðjón.
Þrír bræður standa á bak við
Sláturhús Vesturlands, ásamt Guðjóni.
Þeir eru Jón Sævar, Snorri og Kristinn
Þorbergssynir. Allir hafa þeir verið
sjálfstætt starfandi og koma úr ýmsum
greinum atvinnulífsins. Þeir félagar
keyptu gamla sláturhúsið fyrir fjórum
árum af Landsbankanum og síðan
hefur verið unnið að undirbúningi
fyrir starfsemina, sem hófst um síð-
ustu mánaðamót.
Bjartsýnn á framhaldið
„Ég horfi bjartsýnn til næsta hausts,“
segir Guðjón um framtíðarsýnina.
„Við sjáum það alveg fyrir okkur að
við munum slátra mun meira næsta
haust og koma okkur upp kjötvinnslu
í millitíðinni.“
Með fullum afköstum verður hægt
að slátra um 350 lömbum í Brákarey,
125 svínum eða 35 stórgripum á dag.
/smh
Aðalsteinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri sölusviðs, Elísabet Hrönn
Fjóludóttir, héraðsdýralæknir Matvælastofnunar á Vesturlandi og Guðjón
Kristjánsson sláturhússtjóri.
Sláturhús Vesturlands sést hér úti í Brákarey í Borgarnesi. Myndir / smh
Skógareigendur:
Úrvinnsla
skógarafurða
Aðalfundur Landssamtaka
skógareigenda var haldinn í
Valaskjálf á Egilsstöðum fyrr í
þessum mánuði í samstarfi við
Félag skógarbænda á Austurlandi.
Á fundinum var flutt skýrsla
stjórnar, gestir fluttu ávörp og að því
búnu voru mál lögð fyrir fundinn.
Í tengslum við hann var haldið
málþing um úrvinnslu skógarafurða.
Lárus Heiðarsson frá Skógræktinni
flutti erindi með yfirskriftinni
„Skógarafurðir, hvað er það nú,“
Lára Vilbergsdóttir verkefnastjóri
hjá Austurbrú flutti erindi um stórt
og smátt úr íslenskum skógi og
að lokum fræddi Bjarki Jónsson
skógarbóndi á Ytri-Víðivöllum
fundargesti um uppbyggingu
Skógarafurða ehf.
Félag skógarbænda á Austurlandi
bauð fundargestum í skógargöngu
en gengið var upp í Miðhús þar sem
hjónin Edda Björnsdóttir fyrrver-
andi formaður LSE og maður henn-
ar Hlynur Halldórsson tóku á móti
skógarbændum í yndislegu veðri
og fallegu umhverfi. Dvalið var þar
góða stund í garðinum í Miðhúsum
yfir skemmtilegum sögum og fall-
eg um söng.
Aðalfundinum lauk með árshátíð
skógarbænda. Félagi skógarbænda
á Austurlandi tókst vel upp með
fundarhaldið og voru allir ánægðir
með hvernig til tókst. /MÞÞ
Félag skógarbænda á Austurlandi
bauð fundargestum í skógargöngu
en gengið var upp í Miðhús þar sem
hjónin Edda Björnsdóttir fyrr verandi
formaður LSE og maður henn ar
Hlynur Halldórsson tóku á móti
skógarbændum í yndislegu veðri
Visthyggja og virðisauki
í Skaftárhreppi
66–70
Íslenskir eplabændur í
Noregi
56–60
Besta útkoman frá
upphafi
38–41
Hafberg í Lambhaga á
allra vörum
28–37
Tímarit Bændablaðsins
1. tbl. 2016 - 2. árgangur
Fluttu með
bústofninn á
milli landshluta
Jóhanna María Sigmundsdóttir
búfræðingur og alþingismaður
segist alltaf hafa verið opin
fyrir því að taka við búinu
af foreldrunum −bls. 12
Gefur gömlum dráttar-
vélum nýtt líf
46–49
Fjölbreytt efni um landbúnað er að