Bændablaðið - 20.10.2016, Side 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Skagaströnd:
Matarsmiðja sett upp hjá BioPol
BioPol ehf. á Skagaströnd ætlar að
setja upp matarsmiðju sem starf-
rækt verður í tengslum við rann-
sóknarstofu félagsins og hefur
auglýst eftir matvælafræðingi til
að hafa umsjón með henni.
Hlutverk hans verður fyrst og
fremst að veita nauðsynlega sér-
fræðiráðgjöf og aðstoða frumkvöðla
við að þróa vörur sínar í markaðs-
hæft form. Jafnframt mun viðkom-
andi aðili aðstoða við uppsetningu
gæðahandbóka og veita nauðsynlega
ráðgjöf er varðar kröfur hins opin-
bera varðandi matvælaframleiðslu.
Vona að fólk á svæðinu sjái hag í
að nýta sér aðstöðuna
Matarsmiðjan mun hafa öll tilskilin
leyfi til matvælaframleiðslu og skap-
ar því möguleika fyrir frumkvöðla
í matvælavinnslu til þess að taka
fyrstu skref framleiðslu og þróunar
á vörum sínum án þess að leggja
út í miklar fjárfestingar. Ætti slík
aðstaða meðal annars að geta nýst
bændum sem vildu selja afurðir sínar
beint frá býli.
Verkefnið er tilkomið vegna
starfa landshlutanefndar fyrir
Norðurland vestra sem hafði m.a.
það markmið að efla byggðaþró-
un og fjölga atvinnutækifærum á
svæðinu.
Matarsmiðjan klár um áramót
Gert er ráð fyrir að Matarsmiðjan
verði tilbúin til notkunar seint á
þessu ári eða í janúar 2017 og eru
bundnar vonir við að fólk af svæðinu
muni sjá sér hag í að nýta aðstöðuna.
/MÞÞ
Fréttir
Ráðstefna á Matvæladeginum 2016:
Matvælarannsóknir
í breyttum heimi
Matvæladagurinn er í dag og af
því tilefni verður haldin ráðstefna
frá klukkan 12-17 undir yfirskrift-
inni Matvælarannsóknir í breytt-
um heimi, þar sem kynntar verða
innlendar rannsóknir og nýir
straumar í matvælafræði.
Það er Matvæla- og næringar-
fræðafélag Íslands sem stendur að
ráðstefnunni sem verður haldin á
Hótel Natura.
Matvælaframleiðsla
og umhverfismál
Bryndís Skúladóttir frá Samtökum
iðnaðarins verður aðalfyrirlesarinn
og fjallar erindi hennar um mat-
vælaframleiðslu og umhverfismál.
Hörður Kristinsson, prófessor í mat-
vælafræði við HÍ, fjallar um nýja
og byltingarkennda tækni í mat-
vælaframleiðslu.
Dagskráin er eftirfarandi:
• 12.00 – 13.00 Skráning, vegg-
spjalda- og vörukynningar.
• 13.00 – 13.30 Ávarp formanns
MNÍ, Laufey Steingrímsdóttir.
Ávarp fulltrúa ráðherra.
Halldór Runólfsson. Atvinnu-
og nýsköpunarráðuneytinu.
Afhending Fjöreggsins.
Almar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnað-
arins.
• 13.30 – 13.55 Íslenskur mat-
vælaiðnaður og umhverfismál.
Bryndís Skúladóttir. Samtökum
iðnaðarins
• 13.55 – 14.20 Umbyltingar
í tækni tengdar matvælum.
Hörður G. Kristinsson. Matis
• 14.20 – 14.45 Erfðaauðlindir
og íslenskur matvælaiðnaður og
neytendur. Emma Eyþórsdóttir
prófessor. LBHÍ.
• 14.45 – 15.00 Líftækni og
nýsköpun í matvælaiðnaði.
Hólmfríður Sveinsdóttir fram-
kvæmdastjóri Iceprótein.
• 15.00 – 15.30 Kaffihlé
Fyrirtækja- & veggspjalda-
kynningar
• 15.35 – 15.50 Örverur. Matvæli
og neytendur. Ólafur Unnarsson.
Vöruþróun MS
• 15.55 – 16.10 Eðlisfræði mat-
væla. Rannsóknir og nýsköp-
un. María Guðjónsdóttir, dósent
Háskóla Íslands
• 16.15 – 16.30 Efnafræði mat-
væla. Rannsóknir og nýsköpun.
Björn V. Aðalbjörnsson. Matís
og H.Í
• 16.30 – 17.00 Umræður & ráð-
stefnuslit. Guðjón Þorkelsson,
ráðgjafi og prófessor Matís og
HÍ
/smh
Útigöngusvín á Kjalarnesinu
Ýmsir glöggir vegfarendur, sem
leið hafa átt um Kjalarnesið í
sumar, hafa rekið augun í útigang-
andi brún svín undir Esjunni þar
sem Stjörnugrís er með höfuð-
stöðvar sínar í Saltvík; kjötvinnslu
og sláturhús.
„Við vorum með tilraunaverk-
efni hérna fram til loka september,“
segir Geir Gunnar Geirsson fram-
kvæmdastjóri þegar hann er spurður
fregna af svínunum sem gengu úti
við þjóðveginn í sumar. „Þetta gekk
vel og nú eru hugmyndir um að auka
þetta nokkuð á næsta ári,“ bætir hann
við.
Útisvín yfir sumartímann
Stjörnugrís rekur tvö gyltubú á
Kjalarnesi, blandað bú með gylt-
um og sláturgrísum í Grímsnesi,
gyltubú á Skeiðum, auk þess að vera
með bú á Melum í Hvalfjarðarsveit
þar sem eingöngu eru sláturgrísir.
Kjötvinnslan í Saltvík er nýleg, var
tekin í notkun í mars á síðasta ári, og
þar er eingöngu unnið íslenskt kjöt
frá Stjörnugrís.
„Þetta var skemmtileg tilraun.
Hugmyndin er að bjóða kaupendum
upp á þennan valkost í okkar fram-
leiðslu sem reyndar verður aðeins
stunduð yfir sumarmánuðina,“ segir
Geir, en öllu kjöti af þessum úti-
svínum hefur verið lofað.
Um svínategundina Duroc er að
ræða og er ætlunin að nota þau sem
útisvín á næsta ári – og blendinga
af þeim. /smh
Duroc svínin höfðu það gott í útivistinni á Kjalarnesinu í sumar.
Myndir / Stjörnugrís
MAST segir að næringarskortur hafi
valdið sauðfjárdauðanum árið 2015
− Féð fékk nóg hey en það var illmeltanlegt og næringarsnautt
Þúsundir fjár drápust hjá íslensk-
um sauðfjárbændum á vordögum
2015. Voru uppi getgátur um að
um smitsjúkdóm kynni að vera
að ræða, eða áhrif af eldgosi. Nú
hefur Matvælastofnun hins vegar
komist að þeirri niðurstöðu að svo
hafi ekki verið.
Í tilefni fréttaflutnings í síð-
ustu viku um að orsök sauðfjár-
dauðans árið 2015 sé óþekkt vill
Matvælastofnun árétta fyrra álit sitt
um að orsök sauðfjárdauðans árið
2015 hafi verið næringarskortur.
Léleg hey eftir slæmt tíðarfar
Að mati stofnunarinnar má rekja
næringarskortinn til margra sam-
verkandi þátta en fyrst og fremst til
lélegra heyja vegna vætutíðar sum-
arið 2014 og til mikils kulda vetur-
inn eftir. Féð fékk nóg hey en það
var illmeltanlegt og næringarsnautt.
Afleiðingarnar voru þær að féð fékk
ekki nægjanlega orku til að viðhalda
starfsemi líkamans, framleiða hita
og öll umframorka fór í vöxt fóstra.
Ekki fékkst fjárveiting
til að ljúka rannsókn
Haustið 2015 bentu rannsóknar-
niðurstöður hvorki til þess að um
smitsjúkdóm né áhrif frá eldgosinu
í Holuhrauni væri að ræða. Á þeim
tíma hafði Matvælastofnun þó fyrir-
vara á fyrrnefndu áliti sínu þar sem
ekki var hægt að útiloka aðrar undir-
liggjandi orsakir með óyggjandi
hætti og óskaði því eftir opinberu
fjármagni til áframhaldandi rann-
sókna. Ekki fékkst fjármagn til að
halda rannsókninni áfram.
Matvælastofnun hélt hins vegar
áfram að safna upplýsingum frá
bændum um afdrif, heimtur og
ástand fjárins að lokinni smölun
sumarið og haustið 2015.
Engin óeðlileg afföll
sumarið 2015
Ekki varð vart við óeðlileg afföll
yfir sumarmánuðina 2015, féð virt-
ist almennt skila sér vel af fjalli og
í góðu ásigkomulagi. Skýrsluhald
sauðfjárbænda studdi við það, árið
2014 var meðalfjöldi lamba til nytja
1,66 en árið 2015 var hann 1,63.
Árið 2014 var 519.568 lömbum
slátrað og meðalfallþunginn var 16,6
kg. Árið 2015 var hins vegar töluvert
færri lömbum slátrað, eða 504.844,
en einungis 0,1 kg munaði á fall-
þunga milli ára, sem var 16,5 kg.
Matvælastofnun fylgdi málinu eftir
með því að hafa samband við bænd-
ur sem urðu fyrir miklum afföllum
og fylgjast með gangi mála hjá þeim.
Fjöldi sérfræðinga sammála
áliti MAST
Á málþingi Landbúnaðar háskólans
3. mars sl. um sauðfjárdauðann,
með vísindamönnum skólans, ráðu-
nautum, starfandi dýralæknum og
sérfræðingum Matvælastofnunar,
var tekið undir niðurstöðu
Matvælastofnunar.
Að öllu samanlögðu er hafið
yfir skynsamlegan vafa að orsök
sauðfjárdauðans 2015 var nær-
ingarskortur sem kom fyrst og
fremst til vegna lélegra heyja frá
sumrinu áður.
Matvælastofnun birti þetta álit
sitt í nóvember 2015 og áréttaði
það í starfsskýrslu sinni 2015 (bls.
49–50).
Fram kemur í tilkynningu MAST
að mikilvægt sé að draga lærdóm
af sauðfjárdauðanum og hve brýnt
það er að þekkja innihald fóðursins
og meltanleika þess. Taka heysýni,
láta mæla þau og reikna út fóðurgjöf
miðað við orkuþörf og aðra mikil-
væga áhrifaþætti. /HKr.
Frá Skagaströnd. Mynd / HKr.