Bændablaðið - 20.10.2016, Side 8

Bændablaðið - 20.10.2016, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Fréttir Í grein í Bændablaðinu 6. október er spurningu beint til Samgöngu- stofu um löglegan ljósabúnað bif- reiða. Einfalda svarið við þeirri spurningu er að hérlendis er ljósaskylda allan sólarhringinn, allan ársins hring. Tilgangurinn er aukið öryggi í umferðinni. Margar nýjar bifreiðar eru búnar ljósum sem kvikna þegar bíllinn er ræstur og í fyrstu má halda að um sé að ræða ökuljós en sú er ekki raunin. Víða má sjá í umferðinni ökumenn nýrra bíla sem gera sér ekki grein fyrir þessu og aka um með takmörk- uð ljós, jafnvel ljóslausir að aftan. Þessi ljósabúnaður kallast dagljós og er leyfður á Evrópska efnahags- svæðinu og af þeim sökum er heim- ilt að flytja slíkar bifreiðar inn til Íslands. Það gegnir hins vegar öðru máli um notkun þessa búnaðar hér á landi. Hér á landi er ljósaskylda – allan sólarhringinn og allan ársins hring – og því þarf ökumaður að gæta þess að nægjanleg ökuljós séu kveikt meðan á akstri stendur, bæði á bílnum framan- og aftanverðum. Ljósskynjari dagljósabúnaðar kveik- ir annars ekki á ökuljósunum fyrr en rökkva tekur, en kveikir utan þess tíma bara á dagljósunum, í einhverj- um tilfellum aðeins að framan en ekki að aftan. Sumir hafa brugðið á það ráð að setja svart límband yfir ljósskynjara bílsins þannig að tölva bílsins skynji aðstæður þannig að það sé myrkur og að hún kveiki því á ökuljósunum strax og bifreiðin er ræst. Margar bifreiðar eru með þannig ljósastill- ingu að þótt skilið sé við ljósin kveikt þá slökknar sjálfkrafa á þeim þegar drepið er á bílnum, hurð bifreiðar- innar er opnuð, bílnum er læst og í sumum tilfellum slökknar á ljósun- um stuttu eftir að drepið er á bílnum. Síðan kviknar aftur á ljósunum sjálf- krafa þegar bifreiðin er ræst. Rétt er að hvetja ökumenn til að gera athugun á því hvort það slökkni sjálfkrafa á ljósum bílsins og ef það gerist ekki þá vitanlega verður ökumaður sjálfur að slökkva. Ljósabúnaður bifreiða er orðinn tölu- vert fjölbreyttari en áður en það er alfarið á ábyrgð ökumanna að hann sé rétt notaður. /Samgöngustofa Samgöngustofa: Ökuljós skulu kveikt 11 þúsund fermetra líkan af Íslandi Hugmynd er uppi um að reisa risastórt líkan af Íslandi í Bláskógabyggð sem yrði á stærð við knattspyrnuvöll. „Þetta er hugmynd sem hefur verið í þróun í 3 ár og eru ýmsir staðir í skoðun, allir nálægt höfuð- borginni eða „gullna hringnum“. Það stendur til að smíða líkan af Íslandi í mkv 1:4000 úr polyúreþaneining- um þar sem hægt verður að ganga um landið og innbyrða upplýsingar af ýmsum toga. Bygging undir slíkt líkan er stærri en fótboltavöllur, eða um 11.000 m2. Hæðin þarf hins vegar ekki að vera mikil, en við gætum byrjað með minna hús á meðan líkanið er í smíðum,“ segir Sigurður Einarsson hjá Batteríinu arkitektum. Hefur fyrirtækið sent fyrirspurn til Bláskógabyggðar vegna málsins og er verið að leita að húsi og lóð undir starfsemina. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar lýsti á síðasta fundi sínum jákvæðri afstöðu gagnvart verkefninu. /MHH Basar í Þingborg 5. nóvember Kvenfélögin í Flóahreppi standa sameiginlega að basar, sem haldinn verður í Þingborg, laugardaginn 5. nóvember kl. 13.00–17.00. Öll innkoma rennur til kaupa á sérhæfðu sjúkrarúmi fyrir skamm- tímavistun í Álftarima 2 á Selfossi, en rúmið kostar um eina milljón króna. Hlutverk skammtímavistun- arinnar er að létta álagi af fjölskyld- um, vera afþreying og tilbreyting fatlaðra barna, ungmenna og full- orðinna sem búa í heimahúsum. Lögð er áhersla á eflingu athafna daglegs lífs og félagsfærni. Fjölbreytt vandað handverk verður til sölu, ásamt kökubasar og seldar verða vöfflur og kaffi. /MHH Hvolsvöllur: Dagur sauðkindarinnar 22. október Félag sauðfjárbænda í Rangár- vallasýslu stendur fyrir Degi sauð- kindarinnar laugardaginn 22. október í Skeiðvangi við Hvolsvöll frá kl. 14.00 til 17.00. Fjáreigendur milli Þjórsár og Markarfljóts er boðið að koma með um 10 kindur á sýninguna og er fjöl- breytni í litum æskileg. Efstu vet- urgamlir hrútar úr heimasýningum verða boðaðir og verðlaunaðir og efstu lambhrútar úr heimasýningum verða boðaðir, dæmdir upp á nýtt og verðlaunaðir. Keppt verður um fallegustu gimbrina og gestir fá að kjósa um litfegursta lambið. Þá verða veitt verðlaun fyrir ræktunarbú ársins 2015 og efstu 5 vetra ær sýslunnar. /MHH Dagur sauðkindarinnar verður laugardaginn 22. október og eru allir velkomnir. Mynd / MHH Leikskólanum Álfaborg í Reykholti lokað vegna myglusvepps Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur ákveðið að loka leikskól- anum Álfabyggð í Reykholti í Biskups tungum vegna myglu- svepps í skólanum. Börnin og starfsfólk- ið hafa fengið aðstöðu inni í Bláskógaskóla í Reykholti á meðan lausn verður fundin á mál- inu. Sveitarstjóra hefur verið falið að fá ráðgjafa til að vinna frummat á uppbyggingu leikskólahúsnæðis fyrir Álfaborg á grundvelli minn- isblaðs vinnuhóps um málið. Haft verður samráð við skólastjórnend- ur í þessu ferli. „Stjórnendur leik- og grunn- skóla eiga þakkir skildar fyrir að bregðast hratt og vel við þeirri stöðu sem upp er komin og fyrir að hafa leyst fjölmörg atriði sem huga þarf að við slíka breytingu,“ segir Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar. /MHH góðum sumardegi upp við Skólavörðu. Fjallgönguferðir með Bjarklands Fúsa-Káti − sem er Vestfirðingur frá Fremri-Breiðadal í Önundarfirði „Þetta var nú bara einhver hugdetta,“ segir Halldór Arin- bjarnarson, upplýsingastjóri hjá Ferðamálastofu á Akureyri, en hann hefur einu sinni í viku allt síðastliðið ár gengið ásamt Káti, hundi sínum, upp á Skólavörðu á Vaðlaheiði. „Þegar maður á hund er tals- verð viðvera við að halda honum á hreyfingu þannig að ég sá að með þessu væri hægt að slá að minnsta kosti tvær flugur í einu höggi, að viðra hundinn og fá góða hreyfingu og útivist, sem sífellt er verið að telja okkur trú um að sé einkar holl fyrir okkur.“ Uppátækið féll í góðan jarðveg Halldór kveðst hafa ákveðið að gera fjallgönguferðir sínar og hundsins opinberar, þ.e. að skrá hverja ferð inn á Facebook með smá texta og mynd af þeim félögum við vörðuna. „Ég ákvað til gamans að gera þetta í nafni hundsins, þ.e. það var í raun hann sem tók af mér loforð að fara í þessar ferðir og færslurn- ar á Facebook voru skrifaðar út frá hans sjónarhóli,“ segir hann, en Kátur er 8 ára gamall íslenskur fjárhundur sem fullu nafni heitir Bjarklands Fúsi-Kátur og er frá Fremri-Breiðadal í Önundarfirði. „Uppátækið hefur fallið í góðan jarðveg hjá Facebook-vinum mínum og jafnvel víðar og mér telst til að myndir okkar úr þessum 52 ferðum hafi fengið samtals tæp- lega 2.700 „like“. Ég hef reyndar reynt að halda þessum mikla áhuga leyndum fyrir hundinum því ég óttast satt best að segja að þessi athygli myndi alveg fara með hann, nóg er nú sjálfsálitið fyrir.“ Kátur rataði alltaf til baka Halldór segir umrædda leið að Skólavörðu skemmtilega og hafa reynst talsvert meiri áskorun en hann bjóst í fyrstu við. „Þetta hefur gefið mér mun meira en ég átti í upphafi von á. Það er talsvert átak að ná alltaf einni ferð í viku í annríki dagsins og að auki er ekki alltaf hægt að velja besta veðrið eða færið. Oftast gefst ekki tími fyrr en seinnipartinn eða á kvöldin og yfir dimmustu mánuðina gat bæði veður og færi verið æði misjafnt. Við lentum svo sem aldrei í neinu verulega vafasömu en þó að um sé að ræða stutta leið sem telja má í byggð, þá er samt nauðsynlegt að gæta allrar varúðar. En Kátur rataði auðvitað alltaf til baka, sama hvernig viðraði.“ Skemmtileg leið en furðu fáfarin Upphafspunktur ferðar að Skólavörðu er ofan Veigastaða og þaðan eru 2,5 kílómetrar hvora leið með hækkun upp á tæpa 500 metra. „Þetta er ljómandi skemmtileg leið og við reyndum að ganga rösk- lega og án þess að stoppa. Túrinn tekur þá í allt um einn og hálfan tíma í þokkalegu færi,“ segir Halldór. Félagar í Ferðafélagi Akureyrar hafa stikað leiðina, en henni er þó ekki fyllilega hægt að fylgja nema í björtu og góðu veðri. Á vörðunni er gestabók sem ævinlega var skrif- að í, „þannig að þetta er allt saman skjalfest hjá okkur“. Halldór hefur búið á Svalbarðs- strönd í rúm 20 ár og hafði fram til síðasta hausts varla farið að Skólavörðu. „Leiðin gæti sem best haft svip- aða stöðu fyrir Akureyringa og Esjan hjá Reykvíkingum. Það er álíka langt og álíka mikil hækkun og upp að Steini í Esju. Ég er reynd- ar ekki alveg frá því að þetta uppá- tæki hundsins hafi eitthvað orðið til þess að ferðum að Skólavörðu hafi fjölgað í ár,“ segir hann. Í huga Káts er engum sérstökum áfanga náð Skólavörðuverkefni Halldórs og Káts hófst í október í fyrrahaust og nú á sunnudag, 16. október, var farið í ferð númer 52 í góðum félagsskap. Með í för var göngu- félagi þeirra, Sævar Helgason, en hann sett sér það markmið um síð- astliðin áramót að fara 52 ferðir á árinu að vörðunni og lauk því í sömu ferð og Halldór og Kátur. Í ferðunum 52 hafa þeir félagar lagt að baki samtals 270 kílómetra og 26 þúsund hæðarmetra. „Ég held reyndar að við höfum báðir fengið mikið út úr þessum ferðum, bæði hreyfinguna og svo bara þessari hreinsun hugans sem fylgir útiveru. Ég neita því ekki að það er svona ákveðinn söknuður að verkefninu sé lokið. En Vaðlaheiðin er enn á sínum stað og ég held að í huga Káts sé engum sérstökum áfanga náð. Hann mun fara jafn spenntur eftir næstu ferð og ætli ég verði ekki að druslast með,“ segir Halldór. /MÞÞ Reykvíkingum. Það er álíka langt og álíka mikil hækkun og upp að Steini í Það er ekki alltaf hægt að velja - miðið er að ganga einu sinni í viku upp að Skólavörðu.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.