Bændablaðið - 20.10.2016, Síða 18

Bændablaðið - 20.10.2016, Síða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Von frá Ártúnum er folald sumarsins 2016 HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com Þegar Bændablaðið efndi til þessa leiks, að útnefna folald sumarsins, var það gert til þess að vekja menn til umhugsunar um sérstöðu fol- aldanna og reyna að vekja áhuga á folöldum almennt, ekki síst áhuga ungmenna. Folöld eru fallegar skepnur og oft svo miklu meira en það. Sum folöld fá þó litla sem enga athygli fyrr en eftir dúk og disk, einkum ef þau fæðast og alast upp í stórum stóðum sem eru tak- markað undir eftirliti manna. Von okkar var sú að börn og ung- lingar til sjávar og sveita sem eiga hross eða þar sem hross eru hluti til- verunnar tækju þátt í þessum leik, en það varð ekki. Allar tilnefningarnar komu frá fullorðnum. En þær eru ekki verri fyrir það. Vissulega var það vonin að þátttaka yrði töluverð í tilnefningum svo úr margbreytileika væri að moða þegar kæmi að tilnefn- ingu. Jafnvel að hægt væri að segja fleiri en eina folaldssögu í afrakstrin- um. Núna bárust hins vegar aðeins 4 tilnefningar en allar eru þær á einhvern hátt áhugaverðar. Hér verður birt frásagan sem fylgdi til- nefningu þess folalds sem nú hefur verið útnefnt, Vonar frá Ártúnum á Rangárvöllum. Sú frásögn er afar sérstök og í raun er þetta mögnuð saga, sem vissulega á erindi á prent. Auk þess fylgja þessari merkilegu ævisögu, þó enn sé hún aðeins nokkir mánuðir, fágæt litareinkenni, sem ein og sér eru stórlega áhuga- verð. Útnefningin að þessu sinni er rökstudd með þrennu, merkilegri ævisögu Vonar, vitsmunum hennar og litareinkennum, sem eru sjaldgæf í íslenska hrossastofninum. Vonandi stendur Von undir vonum í fram- tíðinni. Áætlað er að birta myndir af hinum folöldunum sem voru tilnefnd í einhverju af næstu tölublöðum, ef pláss leyfir. Þau eru falleg og eiga vonandi fyrir sér frægð og frama þótt það felist ekki í útnefningunni í þessu tilviki. Páll Imsland Ég tilnefni hér folald sumarsins, hana Von, sagði Halla Bjarnadóttir í greinargerð um tilnefninguna. „Von okkar fæddist hér í Ártúnum á Rangárvöllum seinnipartinn í maí. Hún á sér skemmtilega sögu, og er mjög óvenjuleg á lit. Í vor fannst Von nýlega komin í heiminn, slöpp, móðurlaus og ringluð. Henni var komið heim á bæ og komum við henni á spena hjá einni af mjólkurkúnum á meðan leit hófst að móðurinni. En engin hryssa fannst folaldslaus, og engrar hrys- su var saknað, og því varð Von að heimalningi hjá okkur. Hún hefur verið heima við bæ, valsað um með mjólkurkúnum og gengið í fóðurbæti hjá kálfum. Hún hefur líka unnið hug okkar og hjörtu með gæsku og dugnaði.“ Hjálmskjótt og ljósmóálótt „Von er hjálmskjótt og ljósmóálótt vindótt, glaseyg með alhvítt höfuð, sokka á öllum fjórum og hvítan blett undir kvið. Búkurinn er ljósmóál- óttur, og faxið hvítt. En hún er svo ljós að það ekki auðvelt að greina hjálmótta mynstrið, eins og sjá má á myndum. Von var fljót að átta sig á takti tímans hér á bæ, og því að við förum alltaf í fjósið klukkan sjö á morgn- ana. Hún var ekki sein að taka upp á því að stilla sér fyrir neðan glugga á húsinu og láta í sér heyra svona korter í sjö, og sá þar með til þess að heimilismeðlimir svæfu nú ekki yfir sig. Þegar Von var enn lítil og ekki enn orðin mjög hraðskreið fór heimasæta á bænum út með hana að skokka. Fyrst um sinn fylgdi Von í fótspor stöllu sinnar, en með auknum krafti og þroska fóru þær að skoppa um hlið við hlið. Svo er hún ákaflega mannelsk og félagslynd, fylgir okkur í hvaða verk sem er. Vinnukonurnar höfðu góðan félagsskap af henni í heyskapnum við að binda enda, og endaði uppi á margri sjálfunni í þeim ferðum.“ Mikill og uppátækjasamur grallari „Það kom svo í ljós að Von er mikill og uppátækjasamur grallari. Fyrir nokkru kom mjólkurbílstjórinn að máli við okkur og sagði farir sínar ekki sléttar. Hann var hér einn í mjólkurhúsinu að tengja dæluna í tankinn, en svo fara um hann ónot, og hann hefur á tilfinningunni að einhver hafi auga með honum. Hann snýr sér við og sér í dyragættinni alhvítt hestshöfuð með föl og star- andi augu, eins og svífandi í lausu lofti. Var þar ekki komin Von að rétt aðeins gægjast og sjá hver væri að eiga við mjólkina, sjón sem enginn býst við í mjólkurhúsi. Hún hefur líka eignast góða vini og prakkarabræður í hundinum okkar Káti og lambi sem var líka heimalningur. Þau hafa tekið upp á ýmsu saman, en sérstaklega var það skondið að fylgjast með þegar klukkan var að nálgast fimm á virk- um dögum, að þau héldu saman fram eftir heimreiðinni og stilltu sér upp við hliðið og mændu eftir veginum. Þar biðu þau þess að sjá bíl ung- dómsins á bænum koma heim að vinnudegi loknum. Svo sprautuðust þau með bílnum á harðakani, eins og um þrjá hunda væri að ræða, en ekki folald, lamb og hund. Þegar komið var heim á hlað beið Von svo eftir því að fá klapp, kjass og knús hjá upp- áhalds fólkinu sínu nýkomnu heim, sem leiddist ekki að láta vel að henni. En aldrei sýndi hún nokkrum öðrum bíl minnsta áhuga. Prakkaragengið tók oft upp á því að þvælast fyrir, en sýnu verst var það þegar ein kýrin átti í erfiðleikum við burð. Þá vorum við fimm manns úti í fjósi að hjálpa kýrgreyinu, einn að reyna að ná í kálfinn, tvær að sinna kúnni, og tvær að halda aftur af forvitninni í Von og lambinu, sem ætluðu helst bara að ná sjálf í kálfinn.“ Engin fannst móðirin, kannski er Von undan hulduhryssu „Svo líður á sumarið og enn finnst engin skýring á því hver móðir Vonar gæti verið. Því var slengt fram að kannski væri Von undan hulduhryssu sem hafi farist í köstun, og huldu- fólkið hafi talið okkur geta gefið Von betri von til lífs og þroska. Fannst slöpp móðurlaus og ringluð Von frá Ártúnum ásamt fóstru sinni og eiganda, Höllu Bjarnadóttur, og tveim austurrískum vinnukonum. Mynd / HB „Ég er ánægður með hvernig hestamenn eru að taka okkar störfum og hvað virðist ríkja almenn sátt. Það verður gaman að halda áfram að vinna með hestamönnum að aðkallandi verk- efnum á næstu tveimur árum,“ segir Lárus Ástmar Hannesson, sem var endurkjörinn formaður Landssambands hestamannafé- laga á 60. landsþingi sambandsins um liðna helgi. Tæp fjörutíu þingskjöl með álykt- unum og tillögum lágu fyrir þinginu sem haldið var í Stykkis hólmi. Sex félagar hlutu gullmerki LH. Þau Bjarni Alexandersson, Guðrún Fjelsteð, Bragi Ásgeirsson, Sigurborg Ágústa Jónsdóttir, Haukur Sveinbjörnsson og Tryggvi Gunnarsson hafa unnið ötullega að framgangi hesta mennskunnar í sínum félögum sem og landssam- bandinu. Hesta manna- félagið Sörli hlaut Æsku- lýðs bikar LH, en bikarinn er veittur árlega því félagi sem skarað hefur fram úr í æskul ýðsmálum. Auk þess að breyta reglum um tilhögun Íslands móta valdi Landsþing staðsetningu mótanna næstu tvö árin. Hestamannafélagið Geysir mun halda Íslandsmót fullorðinna á Hellu árið 2017 á meðan hesta- mannafélag Skagafjarðar heldur mót yngri flokka á Hólum í Hjaltadal. Árið 2018 munu mótin hins vegar, samkvæmt nýrri reglu, vera haldin sameiginlega á félagssvæði Spretts í Kópavogi. Nú þegar rekstur sambandsins virðist hafa rétt úr sér og málefni Landsmóta næstu ára eru komin í farveg skapast rými til að sinna öðrum brýnum verkefnum hesta- mennskunnar að sögn Lárusar. Þannig ætlar stjórnin að beita sér í nýliðunar- og menntamálum á næstunni. Þá verða reiðvega- og umferðarréttamál hestamanna sett á oddinn. Lárus segir að þar þurfi að ná hagsmunaaðilum saman til að skoða umferðarrétt hestamanna og gera auknar kröfur um fjár- magn í aðstöðu fyrir ríðandi fólk. Reiðvegir voru enn fremur umræðu- efni nokkurra tillagna þingsins. Með gríðarlegri aukningu í hestatengdri ferðaþjónustu fylgir enn meiri þörf á viðhaldi reiðvega en framlög til reið- vegagerðar hafi aftur á móti dregist saman. Má gera ráð fyrir að LH standi fyrir málþingi um reiðvegi á næstunni, samkvæmt samþykktri ályktun frá ferða- og umhverfis- nefnd þingsins. Þessu tengt þá hefur Landssambandið, samkvæmt annarri samþykktri tillögu, ákveðið að taka upp umhverfisstefnu. Þar kemur fram að sambandið muni leitast við að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum, hvetja hestamenn til að lágmarka umhverfisáhrif sín og stuðla að opinni og málefna- legri umræðu. Til að undirstrika umhverfisstefnuna var Landsþingið í fyrsta sinn pappírslaust. Fjármagn fyrir markaðsátak tryggt Samþykkt var aukaskattlagning á hestamannafélögin, upp á 300 kr. á hvern greiðandi félagsmann, fyrir árin 2017 og 2018, vegna mark- aðsátaksins Horses of Iceland. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að ríkið ætli að mæta hverri krónu með krónu fyrir markaðsátak- ið. Með skattlagningunni er LH að tryggja 3 milljónir á ári í verkefnið án þess að þrengja að almenn- um rekstri sambandsins, að sögn Lárusar. Meðal annarra samþykkta þings- ins var ákveðið að LH hafi forgöngu á framleiðslu á sérstökum öryggis- merkingum fyrir fólk sem það getur auðkennt sig með í þeim tilvikum þegar um óvana er að ræða eða riðið er á lítt tömdum eða viðkvæmum hrossum á reiðgötum í þéttbýli. Merki það sem hér um ræðir gæti verið borði sem lagður er yfir aðra öxlina og undir hinn handarkrikann. Hann yrði í áberandi lit og fram- leiddur í mismunandi lengdum. Beri ríðandi maður slíkan borða er öðrum þeim sem um reiðvegina fara skylt að slá af ferð niður á fet þegar mæst er og ríða venju fremur varlega fram úr. Þá verða settar reglur um fram- kvæmd fótaskoðunar á mótum auk þess sem Járningamannafélagi Íslands er falið að vinna að gerð samræmdra starfsreglna fyrir fóta- skoðunarmenn. Lárus nefndi einnig að gott sam- starf hefur verið við Bændasamtök Íslands, ber þar að nefna samstarfið við rekstur Landsmóts, Sportfengs og varðveislu myndefnis frá Landsmótum inn á Worldfeng. Lárus bendir meðal annars á að nýr Sportfengur, sem kynntur var á þinginu, muni auðvelda utanum- hald móta og gera keppendum og áhorfendum auðveldara um vik að fylgjast með. Kosning til stjórnar sambands- ins fór fram og er hún skipuð til næstu tveggja ára. Auk Lárusar, voru þau Jóna Dís Bragadóttir, Eyþór Gíslason, Ólafur Þórarinsson, Andrea Þorvaldsdóttir og Haukur Baldvinsson endurkjörin í stjórn og Helga B. Helgadóttir kemur auk þess ný inn. Í varastjórn voru kjörin Stefán Ármannsson, Ingimar Ingimarsson, Sóley Margeirsdóttir, Magnús Benediktsson og Rúnar Bragason. Gullmerkishafar LH 2016: F.v. Lárus Ástmar Hannesson, formaður LH, Bragi Ásgeirsson, Haukur Sveinbjörnsson, Sigurborg Ágústa Jónsdóttir, Tryggvi Gunnarsson, Guðrún Fjeldsted, Bjarni Alexandersson og Jóna Dís Bragadóttir, varaformaður LH. Myndir / LH Áhersla á nýliðun, menntun, reiðvegi og umferðarrétt: Sáttir hestamenn á Landsþingi Velheppnað Landsþing hestamanna fór fram á Stykkishólmi um liðna helgi.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.