Bændablaðið - 20.10.2016, Síða 19

Bændablaðið - 20.10.2016, Síða 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Hluti af vetrarverkunum Akureyri s. 440 1420 • Grindavík s. 426 8290 • Höfn s. 478 1940 • Ísafjörður s. 456 3574 • Húsavík s. 440 1448 • Blönduós s. 467 1010Klettagarðar s. 440 1330 • Ólafsvík s. 436 1581 • Patreksfjörður s. 456 1245 Reyðarfjörður s. 474 1293 • Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127 www.n1.is facebook.com/enneinn Vatteraður með cordura efni á álagsflötum. Rennilásar á skálmum. Hettu má renna af. Stærðir: XS-5XL Litir: gulur/appelsínugulur Vnr. 9616 K2 2009 K2 Kuldagalli K2 Kuldabuxur með smekk og axlaböndum. Vatteraðar. Stærðir: S-4XL Litur: grár/svartur Vnr. 9616 K2 2006K K2 Kuldabuxur Lambhúshetta úr flísefni, fóðruð með bómull. Ein stærð. Vnr. A421 2 Lambhúshetta Showa hanskar, latexdýfður, fóðraður vetrarhanski. Vnr. A414 691777* SHOWA hanskar thermo grip Prjónaðir vinnuvettlingar, þykkir. Ull/nylon. Vnr. A108 VV101 Vinnuvettlingar K2 Kuldajakki, vatteraður með hettu sem hægt er að smella af. Stærðir: S-4XL Litur: grár/svartur Vnr. 9616 K2 2005 K2 Kuldajakki Kuldabuxur með smekk og axlaböndum Vatterað. Stærðir: XS-5XL Litur: gulur/appelsínugulur Vnr. 9616 K2 BX6023 K2 Kuldabuxur með smekk Vatteraður með cordura efni á álagsflötum. Rennilásar á skálmum. Hettu má renna af. Stærðir: XS-5XL Litur: grár/svartur Vnr. 9616 K2 2001 Kuldagalli Kuldajakki, vatteraður með hettu sem hægt er að smella af. Stærðir: S-4XL Litur: gulur/appelsínugulur Vnr. 9616 K2 2005 K2 Kuldajakki Vertu klár í kuldann! FROZEN FJÖLDI ÞEMA Í BOÐI OG SENDUM UM ALLT LAND HVOLPASVEIT STAR WARS MIKKI MÚSMÍNA MÚS SPIDERMAN BATMAN ÞYRNIRÓS KÚLUGÚBBAR SKÓSVEINAR SVAMPUR SVEINSSON MONSTER HIGH En þó var leið til að komast að því hverra hrossa hún er, því móálótt, vindótt hjálmskjótt er sjaldgæfur litur, og þótt Ártúnastóðið sé stórt, þá þarf býsna margt að koma saman hjá foreldrunum til að búa þann lit til. Tveir feður komu til greina, báðir heimafolar, Óður sem er brúnhött- óttur stórstjörnóttur glaseygur, og Glámur sem er jarpblesóttur leist- óttur hringeygur. Þá er hægt að reikna út að móð- irin þyrfti að geta lagt bæði vindótt og álótt í púkkið, ásamt slettuskjóttu geni. Tvær slíkar hryssur komu til greina, báðar ungar hryssur sem voru hjá Glámi. Gjóska sem er bleikálótt, vindótt stjörnótt, og Kolka sem er móálótt, vindótt blesótt með leist. En ekki var annað að sjá en að báðar væru þær með folald, því það var júgur undir báðum.“ Móðirin fór að sinna Væntingu „Á miðju sumri kom svo í ljós að þær Gjóska og Kolka halda sig mikið saman, og báðar mjólka einu og sama folaldinu, henni Væntingu sem er mjög svipuð Von. Vænting er bleikálótt hjálmskjótt, með annan kjammann hvítan, glaseyg þeim megin, en hingeyg á hitt augað, sokkótt á öllum fjórum og hvít undir kvið. Þarna liggur skýringin á því hvers vegna Von varð heimagang- ur. Einhver ruglingur eða óhöpp hafa orðið til þess að Von flæktist frá, og bæði Gjóska og Kolka hafa tekið Væntingu sem sínu folaldi. En ómögulegt er að vita hvor hryssan á Von og hvor Væntingu. Von var komin á vergang og þá varð ekki aftur snúið.“ Og bróðirinn heitir Vonarneisti „Það er skemmtileg tilviljun að báðar skuli þær systurnar vera arfhrein- ar um slettuskjótta mynstrið, því þessi litur hefur ekki sést í stóðinu í fjölmörg ár, og núna er aðeins eitt annað folald með þessum lit. Auk þeirra systra er samfeðra þeim jarp- hjálmskjótt hestfolald, Vonarneisti. Hvort þessi litaeinkenni systranna eiga einhvern þátt í því sem gerst hefur og skapað þeim þannig örlög er ekki gott að vita, eða hvort vin- skapur mæðranna og tilviljun hefur ráðið för, en allt er það alls ekki óhugsandi. Ötul að sækja sér lífsbjörgina „Lífsviljinn, vitið og töggurnar í Von hafa komið okkur verulega á óvart. Hún var svo ötul að sækja sér lífsbjörgina, byrjaði á því að ganga undir einni mjólkurkúnni, fór svo sjálf að drekka úr fötu. Alltaf vissi hún hvar besta bitann var að fá, hvort sem er af unnu fóðri eða grængresinu úti. Svo hefur hún alveg sneitt hjá öllum þeim hættum sem folöld sem þó hafa mæður til að passa sig skaða sig oft á. Þrátt fyrir að vera heima á hlaði innan um vélar og tæki, og hitt fyrir skurði og girðingar af ýmsum gerðum á flandri sínu hefur henni ekkert hlekkst á. Samt kemur það reglulega fyrir að við sjáum hana liggja á hliðinni með lappirnar út í loft, og grípum andann á lofti í ótta að blessuð Vonin okkar sé steindauð. En nei, hún sefur bara værum blundi, algerlega óttalaus undir okkar verndarvæng.“ Halla Bjarnadóttir HROSS&HESTAMENNSKA Vænting frá Ártúnum, systir Vonar, hjá annaðhvort raunmóður sinni eða fóstru, Kolku. Að baki þeim er bleikvindótt hryssa, Gjóska, en hún er hin mögulega móðir Vonar. Þessar þrjár er alltaf saman í hópnum.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.