Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 21

Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 úr henni. Ég er búin að margskoða það mál og nú síðast í fyrra,“ segir Guðjón. Hann segir að til að vinna olíuna eða fituna þurfi að taka allt vatn frá þvottakerjunum í gegnum skilvind- ur. Úr verður ullarvax sem er með bræðslumark um 38° á Celsíus. Vísindamönnum hefur enn ekki tekist að búa til kemískt efni sem nær einstökum eiginleikum hinnar náttúrulegu lanolin-olíu. Vinnsla á Íslandi svarar ekki kostnaði „Það þarf heilmikla verksmiðju til að vinna lanolium úr fitunni. Ég er búinn að kanna hvað það kostar að setja upp skilvindukerfi og hvaða verð fæst fyrir tunnuna af hreinni fitu. Það stendur bara ekki undir kostnaði. Umfangið þyrfti að vera svo miklu meira til að slík vinnsla borgaði sig. Við höfum oft fengið fyrirspurnir um þetta en getum því miður ekki orðið við óskum um slíka framleiðslu.“ Minna fituinnihald í íslensku ullinni Guðjón segir að ullin af ástralska merino-fénu sé mun fínni og innihaldi mun meiri fitu en ullin á íslenska fénu. Fituinnihaldið í áströlsku ullinni getur verið, eins og áður segir, á bilinu 15%–20%. Hann segir að úr íslensku haustullinni, sem er uppistaðan í því sem Ístex fær til vinnslu, þá sé um 80% nýt- ing. Meira en helmingurinn af því sem þvegið er úr ullinni er sandur. „Fituhlutfallið er kannski í kring- um 6 til 8%. Það er því vart nema um þriðjungur úr fituinnihaldi sem fæst úr áströlsku ullinni,“ segir Guðjón. Sérhæfir sig í smur- og varnarefnum úr ullarfitu Lanotec Australia var stofnað í Ástralíu 1998. Í dag er það eitt stærsta fyrirtæki í Ástralíu á sviði framleiðslu smur- og varnarefna úr vistvænum og endurnýjanlegum hráefnum. Í starfi þróunardeildar fyrirtækisins felst sú skemmtilega kaldhæðni að þar er stöðugt verið að mæta öllum kröfum og þörfum olíu- og gasiðnaðarins fyrir smur- og varnarefni sem og að sinna námuiðnaðinum. Þannig leysa þeir af hólmi efni sem annars væru framleidd úr jarðolíu og geta verið hættuleg umhverfinu. Standast ströngustu kröfur, líka í matvælaiðnaði Stefna fyrirtækisins er að framleiða einungis vistvæn efni sem byggð eru á grunni ullarolíu (lanolin), sítrusolíu og öðrum náttúruleg- um efnum. Framleiðslan er háð miklum gæðakröfum og þurfa allar vörur að standast kröfur og sérleyfisúttektir hinnar áströlsku rannsóknarstofnunar NATA (National Association of Testing Authorities). Þar á meðal hafa varnarefni Lanotec staðist salt- og tæringarprófanir NATA, hita- þolsprófanir, sýruþolsprófanir, alkaliprófanir og eldvarnarpróf- anir. Þá hafa efni fyrirtækisins m.a. verið tekin út af matvælaör- yggisyfirvöldum á Nýja-Sjálandi, NZFSA (New Zealand Food Safety Authority). Smurefni og ryðvörn Í dag framleiðir fyrirtækið vörur fyrir allar mögulegar greinar iðnað- ar, landbúnaðar, sjávarútvegs, flutninga, hernaðar sem og frí- stundastarfsemi. Meðal vöruflokka má nefna U.P. Ultimate Protection vörur sem sérstaklega eru ætlaðar til að ryðverja bíla og koma í veg fyrir tæringu á málmum í skip- um og bátum. Þá eru Citra-Force náttúruleg hreinsiefni sem einnig eru notuð til að hreinsa rafmótora. Heavy Duty Liquid Lanolin eru smurefni sem ætluð eru m.a. til að smyrja drifkeðjur í mótorhjólum, til að vatnsverja rafmagnskapla og tengingar í skipum, rafskaut á raf- geymum, til að rakaverja raftæki mótora og dælur og sem vatnsvörn á leðurstígvél. Síðan eru General Purpose Liquid lanolin-efni sem ætluð eru til að verja veiðihjól, veiðistangir, skotmagasín í byssum, til að verja húsbíla og hjólhýsi, m.a. fyrir maurum, og til að verja leður, plast og vínyl svo eitthvað sé nefnt. Sem dæmi um notkun þá hafa menn verið að nota efni fyrirtæk- isins til að úða á botn lítilla far- þegaferja, þar sem þau hrinda frá sér vatni og minnka um leið viðnám og olíueyðslu skipanna. Einnig hafa slík efni verið notuð á stálvíra til að verja þá fyrir ryðmyndun. Sagt betra en best þekktu smurefnin Fullyrt er að smurefni sem unnið er úr lanolin-olíu hafi mun betri smur- og tæringarvarnareiginleika en hið þekkta bandaríska smurefni WD-40, sem allir bílaáhugamenn ættu að þekkja af góðu einu sem mikið undraefni og hefur verið notað um allan heim í yfir 60 ár. Lanolin-efnin eru auk þess sögð hafa það umfram WD-4, sem unnið eru úr jarðolíu- efnum, að vera mjög vistvænt og skaðlaus mönnum og dýrum. Til að verja tréverk Efni úr lanolin hafa líka verið notuð til að fúaverja timburverk í sólpöllum, göngustígum sem og húsaklæðningar. Göngustígar á náttúruverndarsvæðum hafa þar sérstaklega verið nefndir, þar sem ekki má nota efni sem unnin eru úr olíu og geta mengað viðkvæma náttúru. Við slíkar aðstæður er fátt sem dugar betur en hin stórmerki- lega ullarolía. Mörg fyrirtæki eru farin að framleiða smur- og ryðvarnarefni úr lanolium og sumt af því hefur fengist hér á landi. Sem dæmi má t.d. nefna Fluid Film-efni. Einnig Prolan-efni sem Prolan á Íslandi á Rauðhellu í Hafnarfirði hefur verið að kynna. /HKr. – Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN HUSQVARNA FS 400 LV Sögunardýpt 16,5 sm HUSQVARNA K 760 Sögunardýpt 12,5 sm HUSQVARNA K 2500 Sögunardýpt 14,5 sm HUSQVARNA DM 230 Bordýpt 15 sm HUSQVARNA K 3600 MK II Sögunardýpt 27 sm HUSQVARNA Steinsagarblöð og kjarnaborar í varalitum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.