Bændablaðið - 20.10.2016, Síða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Sjálfbært samfélag í Fljótum
Trausti Sveinsson, skíðakappi með
meiru, safnar nú liði til að bæta
undirstöður byggðar á svæðinu í
Fljótum.
Trausti Sveinsson, gönguskíða-
kappi og bóndi á Bjarnargili í
Fljótum, segir að bregðast þurfi af
krafti gegn hnignun byggða á jaðar-
svæðum. Hefur hann varpað fram
hugmynd um að stofnað verði félag
í sinni sveit í því augnamiði undir
nafninu Sjálfbært samfélag í Fljótum.
Trausti segir að ef fram fer sem
horfir, þá muni fjölmargir hætta
búskap á svæðinu vegna lækkandi
afurðaverðs til bænda. Slíkt muni
stórskaða þá uppbyggingu sem hafin
er í ferðaþjónustu í Fljótum. Án sam-
félags fólks í sveitinni með tilheyr-
andi samfélagslegum innviðum, þá
sé til lítils að ræða um uppbyggingu
ferðaþjónustu. Sveitir án íbúa séu
harla lítils virði fyrir alla þá ferða-
menn sem sækjast eftir að upplifa
bæði land og menningu þjóðarinnar.
Efla þarf bjartsýni
„Það þarf að efla bjartsýni fólks og
sýna mönnum að það er ýmislegt
hægt að gera með samtakamætti
heimamanna.“ Hann segir að með
lækkandi afurðaverði til bænda þá
sjái þeir ekki tilgang lengur í að halda
áfram. Þeirri þróun sé nauðsynlegt
að snúa við þannig að fólk fái til-
trú á því að það sé hægt að búa í
sveitinni. Annars fari illa, ekki bara
fyrir sveitinni heldur hafi það líka
keðjuverkandi áhrif inn í bæina, sem
hafa þjónustað sveitirnar, og ekki síst
fyrir ferðaþjónustuna.
„Það eru bæði sauðfjárbændur
sem standa tæpt og eins kúabænd-
ur. Þeir treysti sér margir illa til að
fara í fjárfestingar við að breyta
fjósum sínum í lausagöngufjós svo
þau standist hertar reglugerðir sem
innleiddar hafa verið frá Evrópu.
Slíkar breytingar kosta mikla pen-
inga. Samhliða því að búskapur
leggst af og innviðir molna, hrapa
jarðirnar í verði. Þær eru þá oftar en
ekki seldar útlendingum á hrakvirði,“
segir Trausti.
Borinn og barnfæddur
Fljótamaður
Trausti er borinn og barnfæddur á
Bjarnargili og hefur búið þar alla sína
tíð. Tók hann við blönduðu búi með
sauðfé og kýr af foreldrum sínum
1965. Rak hann með fjölskyldu sinni
í fjölda ára kúabú með um 40 mjólk-
andi kúm. Hættu þau hefðbundnum
búskap 1997. Síðan hefur Trausti
ásamt eiginkonu sinni, Sigurbjörgu
Bjarnadóttur, rekið Ferðaþjónustuna
Bjarnargili á sumrin og boðið þar
upp á gistingu, gönguferðir og fleira.
Sigurbjörg er fædd á Siglufirði en á
ættir að rekja í Fljótin.
„Það er nú reyndar konan sem
hefur átt mestan heiðurinn af
Ferðaþjónustunni, en ég er svona
Myndir / HKr.