Bændablaðið - 20.10.2016, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
meira til aðstoðar,“ segir Trausti.
Hann var reyndar rétt að ljúka við
að slá garðinn umhverfis húsið þegar
blaðamann bar að garði. Mátti enn
finna ilmandi lyktina af nýslegnu
grasi þótt kominn væri 7. október.
Þetta sló samt ekki út ilminn af
nýbökuðum vöfflum úr eldhúsi
Trausta og Sigurbjargar.
Ódýrar jarðir vekja áhuga
útlendinga
Sem dæmi um áhuga útlendinga
á ódýrum jörðum á Íslandi, nefnir
Trausti að milljarða uppbygging á
gistiaðstöðu fyrir keðjuna Eleven
Experience á jörðinni Deplum í
Fljótum. Þar hafi jörðin fengist fyrir
sem svarar andvirði lítillar íbúðar
í Reykjavík. Þennan mikla áhuga
útlendinga mætti eflaust virkja betur
til hagsbóta fyrir heimafólk.
Á Deplum er nú búið að byggja
vel yfir 2.000 fermetra glæsilega
gistiaðstöðu með sundlaug og öllum
hugsanlegum þægindum, eins og
blaðamaður komst að í stuttri heim-
sókn. Einnig hefur verið komið upp
aðstöðu fyrir það sem kallað er „heli
skiing“, eins og fram kemur á http://
elevenexperience.com, heimasíðu
fyrirtækisins.
Koma gestir gjarnan á staðinn
fljúgandi í flugvélum sem lenda á
túninu eða í þyrlum frá Akureyri. Eru
þyrlurnar síðan notaðar til að flytja
skíðamenn upp á fjallstoppa þarna
í nágrenninu. Sú vertíð stendur þó
yfirleitt ekki, af veðurfars ástæðum,
nema frá mars fram í júní. Á öðum
árstíma er væntanlega hægt að nýta
byggingarnar fyrir annars konar
upplifun.
Þessi bygging er ekki flokkuð sem
eiginlegt hótel, heldur sem „lodge“,
sem gæti útlagst sem bjálkahús eða
fjallaskáli, en er þó annað og miklu
meira. Ekki er gert ráð fyrir nema
að hámarki 28 gestum í 13 her-
bergjum í einu, svo vel er rúmt um
hvern og einn. Búið er að leggja hita-
veituleiðslu í húsið frá jarðhitaholu
neðar í sveitinni og unnið er að því
að koma fjarskiptamálum í gott lag.
Auk þess að vera með aðstöðu í
Fljótum er Eleven Experience m.a.
búið að byggja upp glæsiaðstöðu á
Bahamaeyjum, í litlu fjallaþorpi á
landamærum Frakklands og Ítalíu, í
Hollandi og víðar um heim. Er þetta
hugsað fyrir vel efnað fólk sem sæk-
ist eftir margháttaðri útivist, skíða-
iðkun, bátasiglingar „River rafting“,
stangveiði, fjallgöngur og annað við
einstakar aðstæður og kyrrð. Það er
fyrst og fremst upplifunin sem gert er
út á og að lifa lífinu lifandi á meðan
tækifæri gefst.
Fagnar áhuga útlendinga
Trausti segist fagna þessari upp-
byggingu fyrir ríku útlendingana, en
segir að um leið verði að huga að því
að nærsamfélagið þurrkist ekki út.
Mikil fækkun í sveitum
Segir Trausti að þótt sveitir víða um
land hafi átt í vök að verjast vegna
fólksfækkunar, þá sé ekki svo ýkja
langt síðan staðan hafi verið allt
önnur. Þegar sveitarfélagið í Fljótum
var sameinað Skagafirði 1997 voru
íbúar yfir 140 talsins en eru nú um
50.
„Áður fyrr var sláturhús fyrir
Fljótamenn í Haganesvík. Tilkoma
þess var mikil framför fyrir sveitina.
Þá gátu bændur hætt að reka sitt fé
yfir fjall til Siglufjarðar í sláturhús.
Það var oft erfiður rekstur í vond-
um veðrum. Þegar búið var að slátra
þurfti svo helst að afsetja afurðirnar
strax þar sem skortur var á frystirými.
Gat það verið mikill eltingaleikur og
jafnvel reyndu menn að ganga í hús
til að selja kjötið ferskt. Nú er slát-
urhúsið í Haganesvík ekki starfrækt
lengur.“
Samvinnufélag Fljótamanna?
Hann segir helsta gallann við sam-
einingu sveitarfélaga hafa verið að
heimamenn missi tökin á þróuninni
þegar umsýsla fjármagnsins flytjist
öll í þéttbýliskjarnana. Eðlilega hafi
þeir sem ekki þekki til, minni skiln-
ing á þörfum sveitanna og því vilji
þær verða út undan. Sérstaklega á
samdráttartímum. Slíkt flýti svo enn
frekar fyrir hnignun.
„Um leið og við misstum frá
okkur sveitarstjórnina hvarf sam-
staðan og við höfum ekki haft neinn
vettvang til að ræða hagsmunamál
sveitarinnar. Nú vita stjórnendur
stóra sameinaða sveitarfélagsins
varla hvar Fljótin eru. Við verðum að
ná aftur okkar vopnum, en þá verð-
um við að stofna hagsmunasamtök
þeirra sem hafa hér lögbýli um sjálf-
bært samfélag í Fljótum. Legg ég
til að það fái nafnið Samvinnufélag
Fljótamanna.“
Trausti sendi umhverfis- og sam-
göngunefnd Alþingis erindi um þess-
ar hugmyndir sínar í febrúar 2012.
Þar bendir hann m.a. á mikilvægi
samgangna og ljósleiðaratengingar
í mögulegri uppbyggingu svæðis-
ins. Með jarðgöngum til Siglufjarðar
verði auk þess rökrétt að búa til öfl-
ugt sveitarfélag með Fljót, Siglufjörð
og Ólafsfjörð innanborðs.
Segist Trausti þó ekki vilja verða
neinn einvaldur með stofnun hags-
munafélags, einungis að reyna að
koma því á koppinn. Þar er hann með
ákveðnar hugmyndir en þær byggja
á því að ráða verkefnisstjóra til að
keyra verkefnið áfram. Vonast hann
til að þeir sem yfir peningum ráða
fáist til að styrkja þetta framtak svo
bjarga megi sveitinni.
Lykillinn er jarðgöng, bættir vegir
og hafnaraðstaða
Stofnun hagsmunafélags er eitt, en
mikla innviðauppbyggingu þarf þó
til ef möguleiki á að vera á að byggja
sjálfbært samfélag í Fljótum. Eitt af
því eru ný jarðgöng til Siglufjarðar.
Þau eru þegar orðin mjög aðkallandi
fyrir Siglfirðinga og aðra vegna
Way of Life!
SUZUKI BÍLAR HF.
25
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
HVERT SEM
HUGURINN LEITAR!
Jimny er hinn fullkomni smájeppi sem líður hvergi betur en
á fjöllum. Hann er nettur í borginni og utan hennar kemst hann
lengra en flestir aðrir í sama stærðarflokki.
Fjórhjóladrifinn, með ESC stöðugleikakerfi, hemlajöfnunarkerfi,
háu og lágu drifi og nákvæmu vökvastýri kemur Jimny þér
á áfangastað, hvert sem hugurinn leitar.
Suzuki bílar hf. I Skeifunni 17 I Sími 568 5100
Fáðu nánari upplýsingar á suzuki.is Komdu, skoðaðu og prófaðu gripinn.
Hjónin Trausti Sveinsson og Sigur-
björg Bjarnadóttir.
með sundlaug og öllum hugsanlegum þægindum fyrir efnaða ferðamenn.
í þyrlum upp á fjallstoppa í nágrenninu.
− Framhald á næstu síðu