Bændablaðið - 20.10.2016, Page 29

Bændablaðið - 20.10.2016, Page 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 sem enginn annar hrísgrjónafram- leiðandi í heiminum notar. Til að hvert grjón sé öðrum líkt – og til að halda öllu grjóninu heilu – tók Rondolino-fjölskyldan upp gamla aðferð við að ná hýðinu hægt og varlega af. Tæknin er kölluð Helix- aðferðin og var fundin upp árið 1884, en einungis Acquerello notar þessa aðferð í heiminum í dag. Önnur mikilvæg tækni sem notuð er hjá þeim – og er beinlín- is upprunnin þaðan – er ferli sem felst í því að blanda kími grjónsins saman við það aftur, eftir að hýðið hefur verið tekið af og grjónið geymt í eitt til sjö ár. Þessi blöndunartækni gerir það að verkum að lokaafurðin inniheld- ur mikilvæg næringarefni úr öllu grjóninu sem annars tapast í öllum tilvikum við framleiðslu á hvítum grjónum. Acqerello á einkaleyfið fyrir þessari aðferð. Rondolino-fjölskyldan var einnig fyrst til að geyma grjónin í svo langan tíma áður en þau voru seld. Þau eru geymd í kældum sílóum að lágmarki í eitt ár, en lítill hluti fram- leiðslunnar er geymdur í allt að sjö ár. Tilgangurinn er að leyfa sterkjunni að þróast svo grjónin taki betur upp vökvann sem þau eru elduð í, án þess að glata áferðinni. Þetta hjálpast allt að, að margra mati, við að gera þessi grjón einhver þau bestu og hollustu sem völ er á. Skilyrði til ræktunar Veðurfarsleg skilyrði og jarðvegur skipta höfuðmáli í ræktun á hrís- grjónum. Sól, vatn og mold eru hrísgrjónaplöntunni nauðsynleg eins og flestum öðrum. Einungis er hægt að rækta hrísgrjón á sólríkum svæðum, sunnan 45 breiddargráðu (á norðurhveli) – í hlýtempruðu lofts- lagi. Utan slíkra skilyrða nær grjónið ekki nægum þroska. Vatn er grjón- inu nauðsynlegt því spírun getur ein- göngu átt sér stað í vatni. Rótarhlutinn leitar svo niður í jarðveginn þegar fræið hefur spírað. Acquerello nýtur nærveru Alpanna hvað vatnsbúskap varðar og notar áveitukerfi á vorin til að láta vatnið flæða yfir akrana. Jarðvegurinn verður svo að vera nægi- lega leirkenndur svo hann haldi vatni. Sáning fer fram í apríl og maí, upp- skera í september og október. Fjölskyldubúskapur Eins og fyrr segir er Acquerello fjölskyldufyrirtæki og fimm fjöl- skyldumeðlimir starfa eingöngu við framleiðsluna. Starfsmenn við fram- leiðsluferlið eru alls um 20 árið um kring; á skrifstofu, við verkun og úti á akrinum. Sjaldgæft er að hrísgrjóna- bændur verki sjálfir til fulls sína afurð og sjái einnig um umbúðahönnun og markaðsmál. Ræktað land á Colombara- jarðareigninni er 200 hektarar og gefur það 600 tonn af grjónum ár hvert. Einn þriðji af framleiðslu- magninu er selt á Ítalíu og fer helmingur þess í verslanir og hinn helmingurinn á veitingastaði. Tveir þriðju er flutt út til 49 landa – aðal- lega á veitingastaði. Gott samstarf við Slow Food Acquerello hefur átt gott samstarf við Slow Food-hreyfinguna og stendur reglulega fyrir námskeiðum og viðburðum, þar sem fræðsla um hrísgrjónaframleiðslu fer fram. Þá er hluta af Colombara-setrinu breytt í lærdómssetur og óhætt að segja að húsakosturinn og staðsetningin henti einkar vel til slíks fræðslustarfs. Slow Food valdi Acquerello sem einn af erindrekum sínum á þrjátíu ára afmælisárinu og fengu að merkja sig með sniglinum, einkennismerki Slow Food, á Salone del Gusto Terra Madre hátíðinni. Snigillinn á umbúð- um smáframleiðendanna er þannig viðurkenning fyrir að halda í heiðri slagorði hreyfingarinnar (good, clean and fair nutrition) með framleiðslu sinni. /smh Lægra verð í Lyfju lyfja.is Liðverkir? Inniheldur glucosamin súlfat Duft í skammtapokum Leyst upp í vatni – auðvelt að taka inn Nær bragðalaust – með sætuefnum Einn skammtur á dag Notkunarsvið: Glucosamin LYFIS er notað til að draga úr einkennum vægrar til meðalsvæsinnar slitgigtar í hné. Ekki má nota lyfið ef um er að ræða ofnæmi fyrir glucosamini, einhverju öðru innihaldsefni lyfsins eða fyrir skelfiski, þar sem glucosamin er unnið úr skelfiski og ef um er að ræða meðfæddan efnaskiptasjúkdóm (fenýlketonmigu). Gæta skal sérstakrar varúðar: Einstaklingar með sykursýki, astma, alvarlegt lifrar- eða nýrnavandamál, óþol fyrir einhverjum tegundum sykurs eða eru á natríumskertu fæði skulu leita ráða hjá lækni áður en lyfið er notað. Einnig þarf að útiloka að um sé að ræða annan liðsjúkdóm. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki liggja fyrir nægilegar upplýsingar um notkun og því skal ekki nota Glucosamin LYFIS á meðgöngu eða samhliða brjóstagjöf. Skömmtun: Fullorðnir, einnig aldraðir: Innihald eins skammtapoka á dag, helst með mat. Algengustu aukaverkanir: Ógleði, kviðverkur, meltingartruflanir, vindgangur, hægðatregða og niðurgangur. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Febrúar 2014. Glucosamin LYFIS Við vægri til meðalsvæsinni slitgigt í hné 1.178 mg glucosamin – 30 skammtapokar afslátt ur 20% Umberto, sonur Piero, sér um ýmis markaðsmál og kemur að hönnun fyrir Acquerelo. Blaðamaður snæddi risotto með honum á veitingastað steinsnar frá setri Rondolino-fjölskyldunnar. Ítalir taka risotto-matreiðsluna hátíðlega og vanda til verka, jafnvel þótt rétturinn sé borðaður hversdags. Ræktað land á Colombara-jarðareigninni er 200 hektarar og gefur það 600 tonn af grjónum ár hvert. Til að hafa betri stjórn á gæðum vörunnar, þannig að hún yrði betri og stöðugri, var umfang búrekstrarins minnkað talsvert og lönd seld. Colombara-setrið er að stórum hluta safn. Hér til vinstri sést inn í gamla fjósið en til hægri sést inn í gamla borðstofu. Gömul jarðvinnslutæki frá ýmsum tímum.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.