Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Elmar Gilbertsson upplifir draum sveitapiltsins sem tenórsöngvari með alla Evrópu sem starfsvettvang:
Hóf söngferilinn í heyskap í Dölunum
akandi á gömlum Massey Ferguson
− Syngur nú stórt hlutverk í Évgení Onegin eftir Pjotr Tchaikovsky í Íslensku óperunni
Dalamaðurinn, búfræðingur-
inn, rafeindavirkinn og tenór-
inn Elmar Gilbertsson fer með
hlutverk skáldsins Lenskís í
óperunni Évgení Onegin eftir
Pjotr Tchaikovsky sem frumsýnd
verður í Íslensku óperunni 22.
október. Athyglisverð staða fyrir
sveitastrákinn sem hóf sinn söng-
feril sitjandi á dráttarvél vestur
í Dölum.
Skáldið Lenskí mun lengi hafa
verið draumahlutverk Elmars í
þessu rússneska drama-rómantíska
verki eftir Tchaikovsky. Örlög hans
í óperunni eru þó ekki glæsileg, því
hann fellur fyrir hendi vinar síns,
Onegins, sem leikin er af Andrey
Zhilikhovsky, í fullkomlega tilgangs-
lausu einvígi. Önnur helstu hlutverk
eru Olga, sem leikin er af Nathalíu
Druzin Halldórsdóttur, Larína, leikin
af Hönnu Dóru Sturludóttur, Tatjana
er leikin af Þóru Einarsdóttur,
Rúni Brattaberg leikur hlutverk
Gremín fursta, Alina Dubik leikur
Filippíevnu og Hlöðver Sigurðsson
er í hlutverki Monsieur Triquet.
Í verkinu Évgení Onegin er viss
sveitarómantík á rússneska vísu,
en sveitin er heldur ekki fjarri
veruleikaheimi Elmars.
„Ég er alinn upp í sveit. Afi og
amma í báðar áttir voru bændur.
Móðurfólkið mitt var með sauðfjár-
búskap vestur í Saurbæ í Dölum á bæ
sem heitir Stórholt. Föðurfólkið mitt
var líka með sauðfjárbú í Laxárdal
í Dölum. Ég ólst mjög mikið upp á
báðum þessum bæjum og tók þar
þátt í öllum sveitastörfum eins og
vera bar.“
Hóf söngferilinn í heyskap á
dráttarvél
−Varla hefur þú byrjað að syngja
þar fyrir sauðféð?
„Nei, ég var nú ekki að syngja
fyrir sauðféð, en að sögn talsvert
fyrir sjálfan mig í heyskap úti á túni.
Þá var ég látinn slá, snúa heyi og
raka á gamalli Massey Ferguson-
dráttarvél. Traktorinn var ekki með
húsi heldur einungis veltigrind og í
honum var ekkert útvarp. Í þá daga
þekktust heldur ekki heyrnartól með
útvarpi. Maður varð því bara að hafa
ofan af fyrir sér sjálfur með söng.
Það má eiginlega segja að þar hafi
fyrstu spor söngferilsins hafist.“
Elmar segist hafa alist upp í
sveitinni en síðan farið suður til
Reykjavíkur að grunnskólanáminu
loknu.
Vissi ekki hvað hann vildi og
fór í bændaskóla
„Þá fór ég í framhaldsnám í tölv-
unarfræði, en fann mig ekki í því
námi. Þá fór ég aftur út á land en
vissi ekkert hvað mig langaði til
að verða. Kannski langaði mig til
að vera bóndi, en var ekki viss en
ákvað samt að fara í Bændaskólann
á Hvanneyri. Þar var ég 1997 og
kláraði búfræðinámið vorið 1999.“
Heillaðist af söng karlakórsins
Söngbræðra
„Það skemmtilega við veruna á
Hvanneyri var að seinni vetur-
inn var ég eitthvað að væflast um
gangana í heimavistinni að kvöldi til
og heyri þá kórsöng af loftinu fyrir
ofan. Þar voru félagar úr karlakórn-
um Söngbræðrum í Borgarfirði að
æfa sig. Ég læddist þar inn og kom
mér fyrir svo lítið bar á. Þar settist
ég niður bara til að hlusta, því mér
fannst þetta svo flott.
Einn kórfélaginn sneri sér að mér
og spurði hvað ég væri að gera þarna.
Sagðist ég þá bara vera nemandi í
skólanum og hefði heyrt óminn af
söng þeirra og hvort ekki væri í
lagi að ég sæti þarna og hlustaði á
þá. Það var auðvitað auðsótt mál.
Kórfélagarnir sungu síðan nokkur
lög og þá sneri annar maður sér að
mér og kallaði: „Heyrðu, viltu ekki
bara vera með?“
Ég sagðist ekkert kunna að syngja
og kynni ekki einu sinni að lesa
nótur. Þá var mér svarað til baka:
„Það lærist maður.“
Ég fór svo að syngja með þeim
en þó ekki sem formlegur félagi. Ég
hafði bara gaman af þessu og þeir
leyfðu mér að vera með.
Þarna lærði ég mikið og heillaðist
algjörlega af þessari karlakórshefð
sem við höfum í svo ríkum mæli
hér á Íslandi.“
Tók þátt í söngleik ungmenna-
félagsins Íslendings
„Seinni vetur minn á Hvanneyri
tók ég þátt í söngleik sem settur
var upp í félagsheimilinu Brún
af ungmennafélaginu Íslendingi
í Borgarfirði. Viðar Eggertsson
leikstýrði því verki, sem heitir
Hamingjuránið og er eftir Bengt
Alfons. Þarna vorum við fjögur úr
skólanum á Hvanneyri. Þetta var
hluti af félagslegu upplifun minni
og var æðislega gaman. Þarna kom
allur skólinn til að horfa á okkur.
Það varð því margt til að kveikja
áhuga minn á söng á meðan ég var
á Hvanneyri.
Ég smitaðist þarna af þessari
söngbakteríu og gekk eftir þetta til
liðs við kirkjukóra og karlakóra.
Hápunkturinn í hverri viku fannst
Elmar Gilbertsson syngur nú hlutverk Lenskí í óperunni Évgení Onegin eftir Pjotr Tchaikovsky. Hann ólst upp í Dölunum, útskrifaðist sem búfræðingur
frá Bændaskólanum á Hvanneyri, lærði rafeindavirkjun og og fór síðan og lærði óperusöng. Þrátt fyrir upphefð í óperuhúsum víða um Evrópu segir hann
að rafeindavirkinn og bóndinn blundi alltaf undir niðri. Myndir / HKr.