Bændablaðið - 20.10.2016, Page 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Icetrack ehf. Sími 773 4334
netfang: mtdekk@mtdekk.is / www.mtdekk.is
MICKEY THOMPSON
jeppadekkin hafa sannað sig á Íslandi
M/T merkið er þekkt um allan heim sem hágæða jeppadekk og felgur.
Stærðir 32” - 54”
J E P PA D E K K
BAJA CLAW MTZDEEGAN
AMAZONE samsteypan hefur keypt plógaframleiðslu Vogel & Noot ásamt plógaverksmiðju þeirra
sem staðsett er í Mosonmagyaróvár í Ungverjalandi. Í söluferli Vogel & Noot samteypunnar, þann
19. september, 2016, skiptu 3 stórir fjárfestar stærstum hluta samsteypunnar sín á milli. Í þessu
söluferli, tryggði AMAZONE sér plógaframleiðsluna ásamt framleiðsluréttinum á allri plógavörulínu
Vogel & Noot.
Móðurfélag Vogel & Noot samsteypunnar, Vogel & Noot Landmaschinen GmbH & Co KG, staðsett
í Wartberg í Austurríki, sótti um gjaldþrotaskipti í byrjun Ágúst 2016. Dótturfyrirtæki þess sem
framleiðir plógana í Ungverjalandi varð hins vegar ekki gjaldþrota og verður að fullu tekið yfir af
AMAZONE.
Amazone kemur til með að nota vörulínu Vogel & Noot plógaframleiðslunnar til þess að bæta við
eigið vöruúrval. Einnig mun þessi yfirtaka AMAZONE tryggja áframhaldandi framboð af varahlutum
í Vogel & Noot plóga.
Við yfirtökuna fjölgar framleiðslustöðum AMAZONE samsteypunnar úr fimm í sex. AMAZONE rekur
nú þegar verksmiðjur í Þýskalandi, Frakklandi og Rússlandi og nú bætist við verksmiðja í Suðaustur
Evrópu. Borgin Mosonmagyaróvár er í Norðausturhluta Ungverjalands, nálægt landamærum Ung-
verjalands og Austurríkis.
Þór hf. er umboðsaðili AMAZONE á Íslandi og mun innan tíðar bjóða eigendum Vogel & Noot plóga
á Íslandi uppá vandaða og góða varahlutaþjónustu sem og sölu á plógum undir merkjum AMAZONE
þegar fram líða stundir.
ORÐSENDING
til eigenda Vogel&Noot plóga
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefverslun:
www.thor.is
Til sölu lítilega útlitsgallaðar samlokueiningar,
einangraðar með 18 cm Urethan.
Tilvaldar til að klæða skemmu eða kæli/frystigeymslu.
Mál pr. eining, lengd allt að 12,10 m breidd 1,1 m.
Upplýsingar veittar í síma 8641501
Samlokueiningar
Framkvæmdir við ljósleiðara-
lagninu í Þingeyjarsveit ganga
vel og eru þær rúmlega á
áætlun, að því er haft er eftir
Gunnari Birni Þórhallssyni,
framkvæmdastjóra Tengis hf. á
Akureyri, á vefsíðu 641.is.
Búið er að leggja stofnlögnina á
næstum allt svæðið sem var áætlað
að leggja á í fyrsta áfanga og þá
er lokið við að leggja heimtaugar
heim á 82 bæi af 150. Að sögn
Gunnars var þátttaka íbúa í ljós-
leiðaraverkefninu í Þingeyjarsveit
góð, en einungis 6 aðilar af 150
aðilum (heimilum) vildu ekki fá
ljósleiðarann inn til sín.
Einungis er eftir að plægja
stofnlögnina niður á nokkrum
bæjum við Staðarbraut í Aðaldal,
en búið er að leggja stofnlögnina
suður Reykjadal. Lokið er við
að leggja heimtaugar heim á bæi
í Fnjóskadal, Ljósavatnsskarði
og Kinn og er heimtaugalagn-
ing á bæjum í Aðaldal vel á veg
komin, sem til stóð að leggja á í
fyrsta áfanga. Eftir er að leggja
heimtaugar á bæi í Reykjadal og
hluta bæja í Aðaldal, en hafist
var handa við það verk í vikunni
og áfram haldið í þeirri næstu.
Um næstu mánaðamót er gert
ráð fyrir að hægt verði að virkja
fyrstu notendurna í Fnjóskadal,
Ljósavatnsskarði og í Kinn og þeir
kæmust þá í langþráð ljósleiðara-
samband. Notendur í Aðaldal og
Reykjadal ættu að geta tengst ljós-
leiðaranum fyrir áramót gangi allar
áætlanir eftir. /MÞÞ
Þingeyjarsveit:
Framkvæmdir við ljósleiðaralagningu ganga vel
Engin lagasetning um línulagnir að Bakka:
Óvissa með framhald
framkvæmdanna
Með úrskurði sem birtur var
10. október síðastliðinn hefur
úrskurðarnefnd um umhverf-
is- og auðlindamál (ÚUA) fellt
úr gildi framkvæmdaleyfi
sem Skútustaðahreppur veitti
Landsneti fyrir lagningu
Kröflulínu 4.
Fyrirhuguð Kröflulína 4 átti,
ásamt Þeistareykjalínu 1, að sjá
fyrirhugaðri kísilmálmverksmiðju
á Bakka við Húsavík fyrir rafmagni
frá Kröfluvirkjun.
Lagasetning sem átti að heimila
lagningu línanna, þrátt fyrir stöðv-
un ÚUA í ágúst síðastliðnum, var
ekki afgreidd fyrir þinglok í síðustu
viku.
Taka átti tillit til nýrra
náttúruverndarlaga
Í úrskurðinum kemur fram að
sveitarstjórn Skútustaðahrepps
hafi við undirbúning og málsmeð-
ferð framkvæmdaleyfisins ekki í
öllu gætt ákvæða skipulags- og
náttúruverndarlaga, auk þess sem
farið var á svig við stjórnsýslulög.
Þá hafi sveitarfélagið ekki birt aug-
lýsingu um framkvæmdaleyfið og
almenningur því ekki verið upp-
lýstur um ákvörðunina, svo hann
gæti kynnt sér forsendur hans og
fengið upplýsingar um kæruheimild
og kærufresti.
Sveitarstjórn hafi átt að taka
tillit til nýrra náttúruverndarlaga,
þrátt fyrir að framkvæmdin hafi
farið í umhverfismat á þeim tíma
þegar eldri náttúruverndarlög
voru í gildi. Þá hafi sveitarstjórn
ekki tekið rökstudda afstöðu til
álits Skipulagsstofnunar um fram-
kvæmdina og það hafi verið næg
ástæða, að mati nefndarinnar, til
að fella framkvæmdaleyfið úr gildi.
Í Bændablaðinu þann 22. sept-
ember síðastliðinn sagði Steinunn
Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi
Landsnets, að ef Landneti yrði gert
að leggja línurnar aðra leið en áætl-
anir gerðu ráð fyrir þyrfti að byrja
ferlið að nýju. Gera yrði ráð fyrir
að verkið myndi tefjast um allt að
tvö ár og kostnaður við lagningu
í jörð, miðað við hámarkslengd,
gæti orðið rúmlega einn milljarð-
ur króna. Kostnaður við loftlínu á
sama kafla væri hins vegar áætlaður
á milli 400 og 500 milljónir króna.
Umhverfismat stendur
Í yfirlýsingu frá iðnaðarráðuneytinu
kemur fram að næst sé á dagskrá að
fara yfir framkvæmdaleyfin sem
gefin hafa verið út og meta hvort
tilefni sé til frekari viðbragða með
það að markmiði að eyða enn frekar
óvissu um framgang framkvæmdar-
innar.
„Með úrskurðinum sé jafn-
framt staðfest að umhverfismat
vegna háspennulínu frá Kröflu
og Þeistareykjum að Bakka sé í
gildi og því sé ekki þörf á nýju
umhverfismati. Því hefur verið
eytt veigamikilli óvissu varðandi
umræddar framkvæmdir…,“ segir
meðal annars í yfirlýsingunni.
/smh
-
Myndir / Landsnet