Bændablaðið - 20.10.2016, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Helstu nytjadýr heimsins
Menn hafa alið endur í nokkur
þúsund ár vegna kjötsins, eggj-
anna og fiðursins. Pekingendur
eru algengasti aliandastofninn og
mest er neytt af andakjöti í Asíu.
Samkvæmt opinberri talningu
finnast innan við 800 aliendur á
Íslandi.
Önd er samheiti á nokkrum
tegundum vatna- og sjófugla af ætt-
kvíslinni Anas og ætt andfugla sem
gæsir (Anser), og svanir (Cygnus)
tilheyra einnig. Endur, bæði villtar
og aldar, hafa breiðan flatan gogg
sem þær nýta við fjölbreytt fæðuval
eins og vatnagróður, skordýr, fisk
og skelfisk. Kafendur geta kafað
djúpt eftir æti en buslendur láta sér
nægja að stinga höfðinu í vatnið í
leit að æti. Kafendur eru þyngri en
buslendur sem gerir þeim kleift að
kafa dýpra en jafnframt erfiðara að
hefja sig til flugs.
Flestar aliendur í Asíu
Erfitt er að henda reiður á fjölda
alianda í heiminum en flestar munu
þær vera í Kína, Víetnam, Indónesíu,
Indlandi, Frakklandi, Bangladess,
Malasíu, Taílandi, Suður-Kóreu og
Filippseyjum.
Afkomendur stokkanda
Fjöldi ræktunarafbrigða alianda í
heiminum er vel yfir eitt hundrað
og hvert og eitt þeirra hefur sín sér-
kenni. Sum eru ræktuð vegna kjöts-
ins, önnur vegna eggjanna og enn
önnur fyrir hvort tveggja. Auk þess
sem fiðrið er nýtt.
Nánast öll ræktunarafbrigði
anda eiga sameiginlegan forföður
í stokköndinni Anas platyrhynchos.
Þrátt fyrir að ræktunarafbrigði
og landsortir alianda séu mörg telja
sum þeirra einungis tugi fugla og
í útrýmingarhættu. Af ræktunaraf-
brigðum má nefna enskar Aylesbury-
endur sem eru hvítar með bleikan
gogg og Buff-endur í Kent sem eru
rauðbrúnar og aldar vegna eggja og
kjöts. Silfraðar Appeleyard-endur
finnast í einhverjum hundruðum
í Bandaríkjunum en evrópskar
Magpi-endur eru hvítar með svört-
um skjöldum. Hvítar Pekingendur
sem upprunalega koma frá Kína eru
langaalgengustu aliendur í heiminum
í dag. Aliendur geta orðið mun stærri
en villtar.
Orðsifjar
Karlendur eru kallaðar steggur
eða bliki á íslensku, en kvenfuglar
ýmist önd eða kolla.
Orðið önd er komið af frumger-
mönsku orðunum anuð, anið og
anað sem kom úr indóevrópsku,
anet. Orðið er samstofna í mörgum
Evrópumálum, til dæmis færeyska
orðið ont, and á nýnorsku, sænsku
og dönsku, ant á miðlágþýsku, anut,
anat og anit á fornháþýsku, ente
á nýháþýska. Á fornensku er það
ænid og enid en eend í hollensku,
anas í latínu og antas í litháísku.
Enska orðið duck er komið af
sögninni „to duck“, að beygja sig
niður eða undir eitthvað. Samanber
„að dúkka“.
Endur fyrir löngu
Steingervingar sýna að frumend-
ur hafi verið uppi fyrir 50 til 80
milljón árum ásamt forneðlum og
endur hafi lifað af hamfarirnar sem
útrýmdu risaeðlunum.
Ríflega tíu þúsund ára hellaristur
í Norður-Afríku sýna fólk veiða
endur og í indverska helgiritinu
Rig-Veda, sem var skrifað 1500
fyrir Krist, er sagt frá önd sem
verpir gulleggi í hreiður sem hún
byggði sér á höfði þjófs.
Ekki er vitað fyrir víst hvenær
andaeldi hófst en vitað er að
Egyptar notuðu þær við fórnar-
athafnir og ólu þær til matar. Vitað
er að endur voru aldar í Kína 2000
árum fyrir upphaf okkar tímatals
og að Rómverjar voru hrifnir af
grilluðu andakjöti.
Pekingönd varð hirðréttur kín-
versku keisarahirðarinnar þúsund
árum eftir Krist en indíánar Norður-
Ameríku ófu gerviendur úr sefi sem
tálbeitur við andaveiðar á svipuð-
um tíma.
Fram á nítjándu öld voru endur
nær eingöngu aldar vegna kjöts-
ins en lítið vegna eggjanna. Í dag
er andadúnn og andafiður dýrt
og vinsæl fylling í sængurfatnað.
Endur eru einnig ræktaðar sem
skrautfuglar.
Aliendur geta lifað góðan áratug
í góðu yfirlæti en líftími þeirra er
að öllu jöfnu fimm til sjö ár.
Foie gras
Í Frakklandi og eflaust víðar eru
endur ræktaðar til framleiðslu á foie
gras, eða andalifur. Dæmi eru um
að fóðri sé neytt ofan í endur sem
aldar eru vegna foie gras með trekkt
til að fita lifrina á sem skemmstum
tíma. Slíkar aðferðir eru bannaðar
í flestum löndum Evrópu nema
Frakklandi þar sem hún er leyfð
á grundvelli þess að eldisaðferðin
byggi á gömlum hefðum.
Í Víetnam er andablóð notað í
rétt sem kallast tiet canh.
Andaregg
Stærð eggja alianda er mismunandi
milli stofna en í flestum tilfellum
eru þau eilítið stærri en meðalstórt
hænuegg. Litur skurnarinnar er
einnig breytilegur og getur verið
allt að því svartur en er yfirleitt
ljósblágrænn. Skurnin er þykkari
en skurn hænueggja og rauðan í
andareggjum er hlutfallslega stærri
en rauða hænueggja.
Meðalvarp Pekingandarkollu er
200 egg á ári.
Útlit og hegðun
Skrokkur anda er í grófum drátt-
um ílangur og breiður og með
langan háls. Vængirnir eru stuttir.
Goggurinn breiður og stundum
er sagt að fólk sé með andanef
sé nefið á því framstætt og flatt. Í
goggi anda eru skíði sem þær geta
síað fæðuna með líkt og skíðis-
hvalir. Fæturnir, sem eru stuttir en
sterkir, eru aftarlega á skrokknum
og með sundfit.
Flestar villiandategundir verða
tímabundið ófleygar vegna þess
að þær fella flugfjaðrirnar. Leita
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Ungar hvítra Pekinganda. Þessi tegund kom upprunalega frá Kína og eru það langalgengustu aliendur í heiminum í dag.
Endur eru skemmtilegar skepnur og víða haldnar sem gæludýr.
þau eilítið stærri en meðalstórt hænuegg og ljósgrænblá að lit.
Dæmi eru um að fóðri sé neytt ofan í
endur sem aldar eru vegna lifrarinn-
skemmstum tíma.