Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 44

Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Héraðssýning lambhrúta í Strandasýslu haustið 2016: Glaðst yfir glæsilegum árangri Haustið skartaði sínu fegursta norður á Ströndum 8. október síð- astliðinn. Þá blésu Strandamenn í þriðja skipti til héraðssýn- ingar á lambhrútum í sýslunni. Sýningarstaðir voru þeir sömu og áður að Heydalsá hjá Sigríði og Ragnari norðan Bitrugirðingar og sunnan hennar í Bæ 2 hjá Þorgerði og Gunnari. Einstaklega glæsilegar og rúmgóðar fjárhús- byggingarnar á báðum stöðum bjóða heim glæsilegri sýningar- aðstöðu. Ég hef oft nefnt gildi slíkra sýn- inga sem félagslegrar samkomu til að koma saman til að gleðjast yfir glæsilegum árangri og er fljótsagt að aldrei hefur ástæða til slíks verið meiri en að þessu sinni. Þarna fá bændur um leið kjörið tækifæri til að bera eigin fjárrækt saman við það sem best gerist meðal nágranna á svæðinu og slíkt á öllum að vera lærdómsríkt. Fyrir okkur sem að dómstörfum vinnum er þetta um leið mjög gott til að geta gert beinan samanburð innan kjarnans þar sem gripirnir standa hlið við hlið. Þannig má áfram telja atriði sem gera starf sem þetta að lyftistöng fyrir rækt- unarstarfið. Frábærar gimbrar undan Sigurboga 14-113 Lengi hefur verið trú okkar dómara og næstum vissa að dómar okkar eru langt í frá óskeikulir og þannig líklegt að þeir hafi aldrei annað en takmarkað gildi vegna ræktunar- starfsins. Reynslan af þessari tak- mörkuðu starfsemi á Ströndum er samt næstum farin að segja annað. Haustið 2014, þegar fyrsta sýningin er haldin, skipar toppsætið frábært lamb frá Birni og Böddu á Melum í Árneshreppi. Hrúturinn var alinn og heitir Sigurbogi 14-113. Haustið 2015 eru seldir þrír synir hans suður í Steingrímsfjörð að jafnmörgum búum. Þegar þetta er skrifað standa þeir hver á sínu búi í haust með bestar sláturniðurstöður á hverju búanna. Þess má til viðbótar geta að gimbrahópurinn undan Sigurboga sem kom til skoðunar í haust norður á Melum er einn sá frábærasti sem ég nokkru sinni hef séð. Barði átti ótrúlegan fjölda afburðalamba í haust Haustið 2015 skipaði efsta sætið á sýningunni einstakt hrútlamb frá Ernu og Jóni í Broddanesi 1. Hrúturinn var alinn og heitir Barði 15-075. Ákveðið var að fá hann til notkunar í afkvæmarannsókn vegna sæðingastöðvanna á síðasta vetri, sem er fátítt með gripi á þeim aldri. Það reyndist góðu heilli ekki skot í myrkrið. Barði átti ótrúlegan fjölda afburðalamba í haust og mun þegar á annan tug sona hans vera kominn dreift víða um land sem verðandi kynbótagripir. Þess má geta að Barða fylgdi á sýningunni í fyrra annan ofurlamb frá Broddanesi 1 sem einnig var alið og sá ég þá stallarana daginn fyrir héraðssýn- inguna og eins og þeir stóðu þá sem einstaklingar varð ég að láta þá skipta sætum. Komu samt báðir vel undan góðu sumri sem segir til um hvaða ofurkindur þarna fóru. Þetta nefni sem ég hér sem gott sýnidæmi um það hve bændur láta oft gervi veturgamalla hrúta villa sér sýn. Það eru sláturlömb sem þið framleiðið og þess vegna eigið þið að horfa til einstaklingsdóms lambsárið og síðan reynslu afkvæma hrútanna eftir það. Sú reynsla afkvæma þessara kappa í haust bendir til að Barði sé miklu öflugri sláturlambafaðir en stallari hans. Mörg fleiri dæmi mætti nefna um góðan árangur glæsigripa á sýn- ingunum 2014 og 2015 en þessi eru það sláandi að þau verða látin nægja. Nákvæmlega jafnmörg lömb á sýningu og í fyrra Snúum okkur aftur að sýningunni í haust. Á sýningu sunnar girðingar mættu 28 lömb, eða nákvæmlega jafnmörg og á síðasta ári, en norð- an girðingar 47, eða aðeins færri en á síðasta ári. Mest var þar að sjálfsögðu saknað að bændur í Árneshreppi mættu ekki með sín úrvalslömb sem samt var mörg þar að finna í haust. Skipulag á þessum sýningum verður alltaf vandamál. Lambafjöldi líkur því sem hefur verið á sýningun- um á Ströndum til þessa er ákaflega hæfilegur. Hins vegar væri að sumu leyti keppikefli að fá enn almennari þátttöku í þessum sýningum vegna þess að nánast hver og einn einasti fjárbóndi á Ströndum er virkur í ræktunarstarfinu og eiga sýninga- gripi til að tefla fram. Það yrði samt aldrei nema með enn meiri takmörk- unum á fjölda sýningagripa frá þeim sem hafa verið virkir til þessa sem slík breyting gerist. Hópur dökkra og mislitra hrúta vex sífellt líka að gæðum Lítum næst á skiptingu lambanna á sýningarflokka. Eins og áður yfir- gnæfðu kollóttu hrútarnir sem voru samtals 42 og á sýningunni norðan girðingar eru fjöldi þeirra yfirgnæf- andi. Hyrndu hrútarnir voru 15 og þar hefur gamli Bæjarhreppurinn yfirhöndina. Að síðustu voru 18 hrútar í hópi dökkra og mislitra og vex hann sífellt bæði að fjölda og gæðum. Dóma á sýningunni önnuð- ust ásamt mér húnvetnsk eðal- menni, Anna Margrét Jónsdóttur á Sölvabakka og Jón Árni Magnússon í Steinnesi. Þá skal lítillega geta topplamb- anna í hverjum sýningaflokki. Lömb um allt land virðast glæsileg í haust. Þess vegna voru þessir sýningahópar þarna einstakir og ég held ég taki ekki of sterkt til orða að hvergi hér á landi hefur áður verið mögulegt að safna saman jafn einstökum lamba- hópum að gæðum og þarna var gert. Lamb númer 7 efst mislitu lambanna Í hópi mislitu lambanna skipaði efsta sætið lamb númer 7 frá Miðdalsgröf. Hrútur þessi er svartbíldóttur að lit og kollóttur. Lamb þetta er einstakur glæsigripur, feikilega jafnvaxið og múrað í holdum þó að frábær bak- og lærahold vektu þar mesta athygli. Hrútur þessi er sonur Krapa 13-940, en þess má geta að lömb úr sæðing- um voru aðeins örfá á svæðinu norð- an girðingar og þau fáu flest undan Krapa. Í móðurætt er hann blanda af heimafé og fé frá Broddanesi 1. Alla gamla stöðvarhrúta frá Miðdalsgröf má finna í móðurlínunni. Í öðru sæti í þessum flokki kom svartflekkóttur, kollóttur hrútur frá Bassastöðum nr. 466. Hrútur þessi var gríðarvænn, ákaflega vel vöðvastæltur og vel gerður. Hann er ekki frekar en aðrir topphrútar þarna neinn tilviljunargripur. Faðir hans 14-109 er fenginn frá Ragnari á Heydalsá undan Voða 13-943 (Þau Bassastaðahjón hafa stundum síðari ár verið of sparsöm á að veita hrútum sínum skírn og er faðirinn því nafn- laus). Móðurfaðir hans er hins vegar Árneshreppshrútur undan Stera 07-855 og hin landsþekkta ræktun á Bassastöðum að öðru leyti að baki. Þriðji í röð var hrútur 68 í Guðlaugsvík. Hrútur þessi er svartur og hyrndur. Hann er þrælþungur, með ákaflega jafna og góða gerð og verulega ræktarlegur. Þó að ættgarð- ur hans sé ekki jafn vel þekktur og hinna er það sem fram kemur í ætt- argrunni traustvekjandi. Faðir hans kemur frá Guðmundi í Skálholtsvík undan Þrótti 08-871 og margir hrútar í Skálholtsvík sem verið hafa undir sjóngleri stöðvanna síðasta áratuginn að baki í föðurætt. Móðurföðurfaðir er síðan Kóngur 04-829. Lamb 16 efst hyrndu hrútanna Hyrndu hrútana var að meirihluta að finna sunnan girðingar og voru margir þeirra því tilkomnir við sæðingar. Efsta sætið í þeim flokki skipaði lamb 16 í Guðlaugsvík. Hrútur þessi er klettþungur og með afbrigðum þéttholda og fögur kind á velli. Hann er tilkominn við sæðingar undan Læk 13-928 og eins og föngulegustu synir hans verða. Móðurfaðir hans er Röðull 08-057 sem var hetjuhrútur hjá Guðmundi í Skálholtsvík undan Bifri 06-994. Beinan móðurlegg er hins vegar ekki mögulegt að rekja. Næstur í röð kom hrútur 133 í Laxárdal. Þetta er mjög þroskamikið lamb, bollangur og vel gerður hrútur með firnasterk bak- og lærahold. Faðir hrútsins er Börkur 13-952 en móðurætt er bæði fjölbreytt og víðfeðm. Móðurlína rakin á föður- hlið er kollótt fé og Snarfari 09-860 móðurföðurfaðir en móðurmóður- faðir aftur á móti Grábotnasonur 06-833 sem fenginn var austan frá Hafrafellstungu. Fjölbreyttur grautur. Þriðja sæti hyrndu hrútanna hreppti síðan nr. 137 frá Smáhömrum. Þetta lamb er holdakökkur og ákaflega vel gert og þrælþungt miðað við stærð, vantar ef til örlítið á bollengd miðað við allra bestu lömbin. Þjöppuð hold eru ekki óvænt vegna þess að faðir- inn Hringur 13-053 er Hergilssonur 08-870 sem Guðbrandur hefur notað með ágætum árangri síðustu árin. Á móðurhlið standa stólparnir Borði 08-838 og Sokki 07-835. Besti kollótti hrúturinn var lamb númer 147 Kollóttu hrútarnir voru eins og ætíð kóróna sýningarinnar og sá hópur sem þarna var áreiðanlega einstak- asti slíkur hópur sem nokkru sinni hefur verið sýndur hérlendis. Eins og áður þá var umtalsverður munur í þessum hópi á gripum norðan og sunnan girðingar. Þetta hefur verið á fyrri sýningum og þó að engir kollóttu hrútanna sunnan girðingar næði í hópa fimm bestu þá fullyrði ég að gæði þeirra þarna voru samt að þessu sinni að nær öll lömbin stóðu framar þeim sem áður hafa verið þar á sýningum. Því miður virðist koll- ótta féð frekar á undanhaldi í gamla Bæjarhreppi. Það held ég sé miður. Lömbin sem nú mættu sannfærðu Jón Stefánsson, Broddanesi, með verðlaun og farandbikar fyrir besta hrút sýningarinnar. Verðlaunahafar fyrir kollótta hrúta, talið frá vinstri: Reynir Björnsson, Miðdalsgröf, 3. sæti. Jón Stefánsson, Broddanesi, 1. sæti og Barbara Guðbjartsdóttir, sem heldur á verðlaunum fyrir Jón Stefánsson, Broddanesi, 2. sæti. Verðlaun fyrir mislita hrúta, talið frá vinstri: Samson Bjarni Jónasson, Guðlaugsvík, 3. sæti. Lilja Jóhannsdóttir, Bassastöðum, 1. sæti og Reynir Björnsson, Miðdalsgröf, 2. sæti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.