Bændablaðið - 20.10.2016, Page 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Lesendabás
Litskrúðug hænsni á sýningu hjá ERL
− Nýtt hefti af Landnámshænunni komið út
Alltaf vekur athygli þegar
Eigenda- og ræktendafélag land-
námshænsna heldur sýningar, nú
síðast í Kópavogi, nánar tiltekið á
Dalvegi 30 þar sem Gróðrarstöðin
Storð er til húsa.
Sýningin, sem var haldin sunnu-
daginn 25. september sl., var að þessu
sinni sett upp utandyra í góðu veðri.
Við blasti mikil fjölbreytni í litum og
öðrum eiginleikum landnámshænsna
í samræmi við nýendurskoðaðar sýn-
ingarreglur félagsins. Þær falla vel
að ræktunarreglum ERL en nú hafa
28 ræktendur hlotið vottun þess, þar
af tveir í Bandaríkjunum. Öll voru
sýningarhænsnin falleg og vel hirt,
mest hænur á ýmsum aldri en einnig
tveir roggnir hanar og nokkrir litlir
ungar með móður sinni.
Auk þekktra ræktenda kom tölu-
vert af áhugafólki af höfuðborgar-
svæðinu á sýninguna en áhugi á
minni háttar hænsnahaldi hefur farið
vaxandi á seinni árum og nokkrir
hafa fengið leyfi til þess hjá sveitar-
félögunum. Þó er ekki heimilt að
halda hana í þéttbýli af tillitssemi
við nágrannana.
Oftar en ekki verða landnáms-
hænsni fyrir valinu og þar með er
verið að stuðla að verndun þessa
merka stofns sem á liðnu ári hlaut
viðurkenningu Slow Food samtak-
anna. Þau stuðla m.a. að aukinni
fjölbreytni í framleiðslu, vinnslu og
dreifingu afurða lítilla búfjárstofna
sem margir hverjir eru í útrým-
ingarhættu. Varðveisla erfðaauð-
linda er því ofarlega á dagskránni
og markvisst er unnið gegn verk-
smiðjuvæðingu landbúnaðar. Slow
Food starfar um heim, en hafa aðset-
ur á Ítalíu þar sem samtökin voru
stofnuð 1989.
Á sýningunni voru kynnt vegg-
spjald af íslensku landnámshæn-
unni, sem er fáanlegt í tveim stærð-
um hjá Bændasamtökum Íslands í
Bændahöllinni, og nýlega útgefið
2016-hefti af Landnámshænunni,
félagsriti ERL. Ritstjóri og ábyrgðar-
maður þess var Magnús Ingimarsson
búvísindamaður, ritari félagsins, en
Jóhanna Harðardóttir, fyrrv. for-
maður ERL, veitti honum aðstoð
við útgáfuna. Með Magnúsi sitja
í aðalstjórn ERL bændurnir Hugi
Ármannsson (form.) og Valgerður
Auðunsdóttir (gjaldk.).
Vel hefur tekist til við útgáf-
una, frábært lesefni með upplýs-
ingum og fróðleik af ýmsu tagi og
myndskreytingar eru með miklum
ágætum. Þar með eru teikningar og
myndir af litlum hænsnakofum, skrá
yfir vottaða ræktendur sem flestir
hafa unga til sölu, auk fróðlegra
greina, lærðra sem leikra, um ýmis
efni er tengjast hænsnahaldinu hér
á landi og erlendis, að ógleymdum
ræktunarreglum og sýningareglum
ERL. Allt er þetta til fyrirmyndar og
eru lesendur Bændablaðsins hvattir
til að kynna sér blaðið og hið merka
verndunarstarf sem ERL sinnir af
alúð og framsýni.
Höf. , dr. Ólafur R. Dýrmundsson,
er sjálfstætt starfandi búvísinda-
maður, stofnfélagi í ERL og félagi
í Slow Food samtökunum.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson.
Hægt er að skoða Tímarit Bændablaðsins 2016 á bbl.is
Tímarit Bændablaðsins vakti mikla lukku
í fyrravetur. Við ætlum að endurtaka
leikinn og gefa blaðið út 3. mars nk.
Tímaritið verður yfir 100 síður og prentað
á glanstímaritapappír í stærðinni A4.
Tímaritið tekur á helstu málefnum landbúnaðarins
og verða efnistökin fjölbreytt.
Tímarit Bændablaðsins er prentað í 8 þúsund
eintökum og dreift til allra áskrifenda, á öll lögbýli
landsins og í fyrirtæki sem tengjast landbúnaðinum.
Boðið er upp á hefðbundnar auglýsingar í ritinu en í
seinni hluta þess verður pláss fyrir kynningarefni frá
fyrirtækjum sem unnið er í samvinnu við blaðamenn.
Verðskrá auglýsinga
Heilsíða: 160.000 kr. án vsk.
Hálfsíða: 95.000 kr. án vsk.
Opna: 230.000 kr. án vsk.
Baksíða: 230.000 kr. án vsk.
Lógó/styrktarlína (hámark 10 lógó
á síðu) = 25.000 kr. án vsk.
Verðskrá kynninga
Heilsíða: 130.000 kr. án vsk.
Hálfsíða: 85.000 kr. án vsk.
Opna: 210.000 kr. án vsk.
Nánari upplýsingar
veittar í síma 563-0300 og
netfangið augl@bondi.is
Tryggðu þér
pláss í tíma
Tímarit Bændablaðsins 2017 í sjónmáli
Fagrabrekka
í Hrútafirði til sölu
Domus fasteignasala Blönduósi kynnir til sölu skemmtileg jörð í Hrúta-
firði, jörð sem getur hentað fyrir hefðbundinn búskap en getur einnig
nýst til annarra nota, t.d. ferðaþjónustu. Fagrabrekka er við þjóðveg 1.
Fallegt bæjarstæði, stórt íbúðarhús, fjárhús frá 1980, hesthús og hlaða.
Land talið um 950 ha. Staðarskáli er í túnfætinum.
Nánari upplýsingar á:
www.mbl.is www.visir.is www.domus.is www.fasteignir.is
eða hjá Magnúsi Ólafssyni, s. 898 5695, netfang: mao@centrum.is
Alfa IS2008258307 frá Hólum. (BLUP 117)
Kynbótadómur: Sköpulag: 8.31. Hæfileikar: 7.82. Aðaleinkunn: 8.02
Alfa er fylfull við Vita frá Kagaðarhóli.
Mylla IS2008258306 frá Hólum. (BLUP 122)
Kynbótadómur: Sköpulag: 8.33. Hæfileikar: 8.45. Aðaleinkunn: 8.41
Klakkur IS2008158311 frá Hólum.
Vel taminn reiðhestur.
Tilboð þurfa að berast til Guðmundar B. Eyþórssonar,
fjármálastjóra skólans í síðasta 10. nóvember nk. annað hvort
í tölvupósti (gbe@holar.is) eða með pósti merkt:
Háskólinn á Hólum, bt. Guðmundur B. Eyþórsson – hrossasala
Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki.
Nánari upplýsingar um hrossin veitir Víkingur (vikingur@holar.is)
Háskólinn á Hólum
auglýsir eftirfarandi
hross til sölu