Bændablaðið - 20.10.2016, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 20.10.2016, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Láta meyrna í 8 vikur Önnur sérstök vinnsla er einnig í Holsted en það er sérstakur meyrnikælir. Þar er nautakjöt, aðallega hryggbitar, látið standa og meyrna í mun lengri tíma en gerist og gengur, eða átta vikur. Þetta er gömul dönsk aðferð og afar vanda- söm enda myglar kjötið að utan á þessum tíma, en það er einmitt hluti vinnsluaðferðarinnar. Segja má að verið sé að gera það við nautakjöt- ið sem myglusveppurinn gerir fyrir góða osta og þykir þetta kjöt víst einkar bragðmikið og gott. Þegar hryggbitarnir hafa verið í þessum sérstaka kæli í átta vikur, þar sem hita- og rakastigi hefur verið nákvæmlega stýrt og loft- skiptum einnig stjórnað, eru kjöt- bitarnir teknir og myglan hreinsuð af kjötinu. Þá er það sett í loft- tæmdar umbúðir og svo selt til betri veitingahúsa landsins. Eiga vörumerkið „Dansk kalv“ Á níunda áratug síðustu aldar áttu danskir kúabændur og afurðastöðv- ar þeirra í harðri samkeppni við inn- flutt nautakjöt og var þá búið til vörumerkið „Dansk kalv“ (danskur kálfur) en með því er ekki einungis átt við að um danskt nautakjöt sé að ræða heldur felst í vörumerkinu ákveðin trygging fyrir gæðum og dýravelferð. Fái bóndi slíka vottun, fær hann einnig hærra verð fyrir nautið í sláturhúsinu. „Dansk kalv“ vörumerkið var í upphafi í sameign nokkurra aðila en er í dag eign sam- vinnufélagsins Danish Crown. Kröfurnar varðandi aðbúnað og uppeldi nautanna sem eru seld sem „Dansk kalv“ eru töluvert breyttar í dag frá því sem áður var en nú eru t.d. kröfurnar þær að ætli bóndi að selja naut sem „Dansk kalv“ þá má það ekki hafa verið á rimlum eða í rimlastíu, nautinu þarf að slátra 8–10 mánaða gömlu, fallþunginn þarf að vera á bilinu 180–240 kíló og svo er einnig gerð lágmarks- krafa um holdfyllingu og fituhlut- fall. Þetta kunna að virka fjarrænar kröfur fyrir okkar íslensku naut en vaxtarhraðinn á hefðbundnum naut- um af Holstein-mjólkurkúakyninu er í dag slíkur, að ekki er sérlega erfitt að ná þessum kröfum. Þess utan er töluvert um holdanautaeldi í Danmörku en helstu holdakyn- in í dag ná nokkuð auðveldlega fallþunga í kringum 200 kíló á 10 mánuðum. Árlega tekur Danish Crown á móti 75–80 þúsund naut- um sem fá „Dansk kalv“ vottun og er þetta vörumerki vel þekkt í dag og eftirspurn mikil. Byggt til framtíðar Þó svo að starfsemin nú sé afar umfangsmikil þá telja forsvars- menn Danish Crown að aðstaðan í Holsted verði stækkuð enn frekar í framtíðinni. Þess vegna er bæði sláturhúsið og kjötvinnslan hönnuð með það í huga að geta tekið við gripum í slátrun utan hefðbundins dagvinnutíma. Það eina sem þurfi að gera til þess að geta stóraukið daglega slátrun er að lengja þarf kæligeymslurnar en þegar aðstaðan var byggð upp í Holsted var húsið þegar hannað með það í huga að afkastagetan gæti vaxið þrefalt án vandræða. Önnur aðstaða er nú þegar til staðar, en ef aukning verður er s.s. gert ráð fyrir að slátra á tveim- ur vöktum. Snorri Sigurðsson sns@seges.dk Ráðgjafi hjá SEGES P/S Danmörku TIL SÖLU Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Tilboð óskast í ríkisjörðina Litluvelli í Þingeyjarsveit 20437 – Litluvellir í Þingeyjarsveit Um er að ræða ríkisjörðina Litluvellir í Bárðardal í Þingeyjarsveit, landnr. 153505. Jörðin er talin vera allt að 913 ha en landamerkjum hefur ekki verið þinglýst. Ræktað land er alls 18,9 ha, að hluta til í órækt. Jörðin er á landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi. Jörðin er nokkuð innarlega í Bárðardalnum og stendur bærinn við rætur Vallnafjalls. Fjallshlíðin er há með grófum og giljum. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands - fasteignaskrá er á jörðinni íbúðarhús, 96,6 m² byggt 1929, geymsla 98,3 m² byggt 1946, fjárhús 69 m² byggt 1957, hlaða 56,7 m², byggð 1945, votheysgryfja 11,5 m² byggð 1953, fjárhús 138 m² byggt 1947, hlaða 130 ² byggð 1974 og fjárhús með áburðarkjallara 160 m² byggt 1976. Verðmestu byggingar- innar eru hlaða (byggð 1974) og fjárhús (byggt 1976). Fjarlægja eða endurbyggja þarf önnur hús jarðarinnar. Jörð og hús seljast í því ástandi sem þau eru í og eru áhugasamir tilboðs- gjafar hvattir til að kynna sér mjög vel ástand húsa og umhverfis þar sem ekki hefur verið búið á jörðinni í nokkur ár. Jörðin er ekki langt frá Akureyri og með tilkomu Vaðlaheiðargangnanna styttist sú vegalengd enn frekar. Öll vegsvæði á vegum Vegagerðarinnar sem liggja yfir land jarðar þessarar eru undanskilin við sölu þessa og er eignarhald þessara vegsvæða í eigu Ríkissjóðs Íslands. Í samræmi við 40. gr. jarðalaga nr. 81/2004 eru undanskilin í sölu þessari námuréttur og réttur til efnistöku, þ.m.t. sand- og malarnám, og vatns- og jarðhitaréttindi umfram heimilis- og búsþarfir. Nauðsynleg aðstaða til að hagnýta framangreind réttindi eru einnig undanskilin í sölu þessari. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík í síma 530 1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði. Sjá einnig nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 2. nóvember 2016 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Árvekni Matvælastofnun óskar eftir ráða metnaðarfullan og jákvæðan einstakling í starf við • • • kostur • Góð íslensku- og enskukunnátta • • • Helstu verkefni og ábyrgð • Eftirlit með búnaði, rekstri og • • Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin www.mast . is Framsækni TraustGegnsæi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.