Bændablaðið - 20.10.2016, Page 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Uppskerutímabil íslenskra
jarðarberja hefur verið frá maí
til október og því eru íslensk
jarðarber hvorki í boði á veturna
né vorin. Hins vegar vilja íslensk-
ir neytendur gjarnan líka borða
jarðarber yfir veturinn og þess
vegna eru þau flutt til landsins.
Vetrarræktun í gróðurhúsum á
Íslandi er algjörlega háð aukalýs-
ingu. Viðbótarlýsing getur því lengt
uppskerutímann og komið í stað
innflutnings að vetri til.
Grænmeti er ræktað yfir vetur-
inn með lýsingu og spurning hvort
ekki er hægt að lengja vaxtarskeið
jarðarberja á sama hátt. Í ljósi þessa
var Landbúnaðarháskóli Íslands á
annað ár að prófa vetrarræktun
jarðarberja með það að markmiði
að sjá, hvort vetrarræktun væri
möguleg á Íslandi og hvort ljós-
styrkur hefði áhrif á uppskeru og
gæði jarðarberja. Einnig var hag-
kvæmni slíkrar ræktunar skoðuð.
Verkefnisstjóri var Christina
Stadler og verkefnið var unnið í
samstarfi við jarðarberjabændur
og styrkt af Sambandi garðyrkju-
bænda og Samtökum sunnlenskra
sveitarfélaga.
Í Bændablaðinu nr. 461 var
meðal annars skrifað um jarðar-
berjaræktun í útlöndum og mark-
mið okkar á Íslandi var að ná sama
árangri í ræktun hvað varðar upp-
skeru. Tilgangurinn var að bæta þær
niðurstöður sem komu út úr fyrstu
jarðarberjatilrauninni sem einnig
var greint frá í fyrrnefndu blaði. Nú
eru komnar niðurstöður úr annarri
jarðarberjatilrauninni.
Tilraunaskipulag
Gerðar voru tvær tilraunir með
jarðarber (Fragaria x ananassa, yrki
'Sonata' og 'Elsanta'). Sú fyrri (A)
var framkvæmd frá miðjum sept-
ember til loka nóvember 2015 og
sú síðari (B) frá janúarlokum til
loka maí 2016, í tilraunagróður-
húsi Landbúnaðarháskóla Íslands
að Reykjum.
Jarðarber voru ræktuð í 5 l pott-
um í sex endurtekningum með 12
plöntum/m2 undir topplýsingu frá
háþrýsti-natríumlömpum (HPS)
með tvenns konar ljósstyrk (150 W/
m2 og 100 W/m2) að hámarki í 18
klst. Daghiti var 16° C og næturhiti
8° C, CO2 800 ppm. Jarðarberin
fengu næringu með dropavökvun.
Í hluta A og B voru áhrif ljósstyrks
prófuð og framlegð reiknuð út.
Niðurstöður og umræða
Það tók 1–2 daga frá blómgun til
frjóvgunar. Elsanta náði um 35
blóma / berja við hærri ljósstyrk
og um 30 við lægri ljósstyrk í hluta
A. Fjöldinn var hærri í hluta B um
70 við hærri ljósstyrk með báðum
yrkjum en 65 með Sonata og 60 með
Elsanta við lægri ljósstyrk (mynd 1).
Eftir að hámarki var náð, minnkaði
fjöldi jarðarberja þegar byrjað var
að uppskera.
Berin þroskuðust á 41 degi með
hærri ljósstyrk og á 43 dögum með
minni ljósstyrk í hluta A. Í hluta B
voru Elsanta þroskuð á 42 dögum
og Sonata á 46 dögum með 150
W/m2 og Elsanta á 44 dögum og
Sonata á 46 dögum með 100 W/m2.
Það virðist vera að meira ljós (150
W/m2) gefi fleiri blóm. Í upphafi
uppskerutímabils gaf meðferð með
hærri ljósstyrk þroskuð ber nokkrum
dögum fyrr borið saman við 100
W/m2. Að auki þroskaðist Elsanta
snemma, en þegar plantað var, var
Elsanta með þroskaðri plöntu en
Sonata.
Í lok uppskerutímabils fengust
380 g/plöntu markaðshæfrar upp-
skeru með Elsanta við 150 W/m2
en 320 g/plöntu við 100 W/m2 í
hluta A. En í hluta B fengust 740
g/plöntu með Elsanta og 830 g/
plöntu með Sonata við 150 W/m2
og 680 g/plöntu með Elsanta og 740
g/plöntu með Sonata við 100 W/
m2. Munurinn var oftast ekki töl-
fræðilega marktækur hvorki milli
ljósstyrkja né milli yrkja. Hins vegar
var uppskera af Sonata um 10 %
hærri samanborið við Elsanta.
Hærri ljósstyrkur hefur jákvæð
áhrif á markaðshæfa uppskeru,
uppskeran var 18 % meiri með
Elsanta í hluta A og 9 % meiri með
Elsanta í hluta B og 12 % meiri
með Sonata í hluta B. Ástæðan fyrir
meiri uppskeru við 150 W/m2 var
fjöldi jarðarberja. Mismunur milli
ljósstyrkja myndaðist í upphafi upp-
skeru tímabilsins og minnkaði á síð-
ari hluta tímabilsins. Meðalþyngd
minnkaði eftir því sem leið á upp-
skerutímabilið frá 18 g/ber í hluta A
og 29-37 g/ber í hluta B til um 10 g/
ber og var aðeins hærri við 150 W/
m2 við Elsanta en hærri við 100 W/
m2 við Sonata (mynd 2).
Hlutfall uppskerunnar sem hægt
var að selja var um 90 % í hluta A
og 90-95 % í hluta B. Hærra hlut-
fall illa lagaðra jarðarberja var í
Elsanta samanborið við Sonata
(tafla 1).
Þegar hærri ljósstyrkur var
notaður, þá jókst uppskera með
Elsanta um 0,7 kg/m2 (1 % hækkun
í ljósstyrk jók uppskeru um 0,2-0,6
%) og framlegð um 800 ISK/m2 í
hluta A og 900 ISK/m2 í hluta B.
Með Sonata jókst uppskera við 150
W/m2 um 1,1 kg/m2 (1 % hækkun
í ljósstyrk jók uppskeru um 0,2-0,3
%) og framlegð um 1.600 ISK/m2
í hluta B. Hærri rafmagnsgjaldskrá
breytir framlegð næstum ekkert.
Það skiptir ekki máli hvort gróður-
hús er staðsett í þéttbýli eða dreif-
býli, framlegð er svipuð.
Ályktun
Með þessum niðurstöðum var
markmiði okkar náð þ.e. að ná
uppskerutölum hollendinga, sem
voru með 700 g söluhæfa uppskeru
á plöntu á 6 vikna uppskerutímabili
(sjá Bændablað nr. 461). En það
var augljóst að ástand plantna
þegar plantað var, hefur mikil áhrif
á hvort að uppskera verði mikil eða
lítil og leggur með því fram skerf
til uppskeruárangurs.
Frá hagkvæmnisjónarmiði er
mælt með því að nota hærri ljós-
styrk og Sonata til að auka upp-
skeru og framlegð jarðarberja. En
hins vegar út frá útliti plöntunnar
er mælt með lægri ljósstyrk.
Nú eru aftur farnar af stað til-
raunir við LbhÍ þar sem prófuð
verða áhrif ljósstyrks yfir hávet-
urinn 2016/2017 á „everbearers“
(sem hafa lengra uppskerutímabil
en junebearers en eru með minni
uppskeru á viku) í samanburði
við hefðbundna gróðurhúsarækt-
un jarðarberja (junebearers).
Niðurstöður verður kynntar í
Bændablaðinu þegar þær liggja
fyrir.
Christina Stadler
Landbúnaðarháskóla Íslands
Reykjum − Hveragerði
0
10
20
30
40
50
60
70
21.9 5.10 19.10 2.11 16.11
B
ló
m
/
be
r (
nú
m
er
/
pl
ön
tu
) Elsanta 150 W/m²
Elsanta 100 W/m²
Hluti A
a
mþ.
12,1
10,3
a
0
2
4
6
8
10
12
14
16
18
20
0
200
400
600
800
1000
1200
15.10 29.10 12.11 26.11
M
eð
al
þy
ng
d
(g
/
al
di
n)
Sö
lu
hæ
f u
pp
sk
er
a
(g
/
pl
ön
tu
)
Elsanta 150 W/m²
Elsanta 100 W/m²
Hluti A
b
abab
a
mþ.
14,6
13,1
13,8
14,3
0
5
10
15
20
25
30
35
40
0
200
400
600
800
1000
1200
11.4 25.4 9.5 23.5
M
eð
al
þy
ng
d
(g
/
al
di
n)
Sö
lu
hæ
f u
pp
sk
er
a
(g
/
pl
ön
tu
)
Elsanta 150 W/m²
Sonata 150 W/m²
Elsanta 100 W/m²
Sonata 100 W/m²
Hluti B
0
10
20
30
40
50
60
70
7.3 21.3 4.4 18.4 2.5 16.5 30.5
B
ló
m
/
be
r (
nú
m
er
/
pl
ön
tu
)
Elsanta 150 W/m²
Sonata 150 W/m²
Elsanta 100 W/m²
Sonata 100 W/m²
Hluti B
Mynd 1: Opið blóm/ber á plöntu í hluta A og B við mismunandi ljósstyrk árið 2015 / 2016.
Mynd 2: Uppskera af jarðarberjum og meðalþyngd aldina árið 2015/2016 í hluta A og B eftir mismunandi ljósstyrk. Munur milli meðferða er ekki marktækur
Hlutfallsleg skipting söluhæfra og ósöluhæfra jarðarberja
eftir ljósstyrk í hluta A og hluta B
Meðferð
Úrvalsfl. 1. fl. Of smá Mygluð Illa löguð Græn
% % % % % %
Hluti A
Hluti B
Söluhæfrar uppskeru Ósöluhæfrar uppskeru
Mynd 2: Uppskera af jarðarberjum og meðalþyngd aldina árið 2015 / 2016 í hluta A og B eftir mismunandi ljósstyrk.
Landbúnaðarháskóli Íslands
Háskóli lífs og lands
Jarðarberjaræktun á óhefðbundnum tíma á Íslandi
– nýjustu niðurstöður