Bændablaðið - 20.10.2016, Síða 52

Bændablaðið - 20.10.2016, Síða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Uppskerutímabil íslenskra jarðarberja hefur verið frá maí til október og því eru íslensk jarðarber hvorki í boði á veturna né vorin. Hins vegar vilja íslensk- ir neytendur gjarnan líka borða jarðarber yfir veturinn og þess vegna eru þau flutt til landsins. Vetrarræktun í gróðurhúsum á Íslandi er algjörlega háð aukalýs- ingu. Viðbótarlýsing getur því lengt uppskerutímann og komið í stað innflutnings að vetri til. Grænmeti er ræktað yfir vetur- inn með lýsingu og spurning hvort ekki er hægt að lengja vaxtarskeið jarðarberja á sama hátt. Í ljósi þessa var Landbúnaðarháskóli Íslands á annað ár að prófa vetrarræktun jarðarberja með það að markmiði að sjá, hvort vetrarræktun væri möguleg á Íslandi og hvort ljós- styrkur hefði áhrif á uppskeru og gæði jarðarberja. Einnig var hag- kvæmni slíkrar ræktunar skoðuð. Verkefnisstjóri var Christina Stadler og verkefnið var unnið í samstarfi við jarðarberjabændur og styrkt af Sambandi garðyrkju- bænda og Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Í Bændablaðinu nr. 461 var meðal annars skrifað um jarðar- berjaræktun í útlöndum og mark- mið okkar á Íslandi var að ná sama árangri í ræktun hvað varðar upp- skeru. Tilgangurinn var að bæta þær niðurstöður sem komu út úr fyrstu jarðarberjatilrauninni sem einnig var greint frá í fyrrnefndu blaði. Nú eru komnar niðurstöður úr annarri jarðarberjatilrauninni. Tilraunaskipulag Gerðar voru tvær tilraunir með jarðarber (Fragaria x ananassa, yrki 'Sonata' og 'Elsanta'). Sú fyrri (A) var framkvæmd frá miðjum sept- ember til loka nóvember 2015 og sú síðari (B) frá janúarlokum til loka maí 2016, í tilraunagróður- húsi Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum. Jarðarber voru ræktuð í 5 l pott- um í sex endurtekningum með 12 plöntum/m2 undir topplýsingu frá háþrýsti-natríumlömpum (HPS) með tvenns konar ljósstyrk (150 W/ m2 og 100 W/m2) að hámarki í 18 klst. Daghiti var 16° C og næturhiti 8° C, CO2 800 ppm. Jarðarberin fengu næringu með dropavökvun. Í hluta A og B voru áhrif ljósstyrks prófuð og framlegð reiknuð út. Niðurstöður og umræða Það tók 1–2 daga frá blómgun til frjóvgunar. Elsanta náði um 35 blóma / berja við hærri ljósstyrk og um 30 við lægri ljósstyrk í hluta A. Fjöldinn var hærri í hluta B um 70 við hærri ljósstyrk með báðum yrkjum en 65 með Sonata og 60 með Elsanta við lægri ljósstyrk (mynd 1). Eftir að hámarki var náð, minnkaði fjöldi jarðarberja þegar byrjað var að uppskera. Berin þroskuðust á 41 degi með hærri ljósstyrk og á 43 dögum með minni ljósstyrk í hluta A. Í hluta B voru Elsanta þroskuð á 42 dögum og Sonata á 46 dögum með 150 W/m2 og Elsanta á 44 dögum og Sonata á 46 dögum með 100 W/m2. Það virðist vera að meira ljós (150 W/m2) gefi fleiri blóm. Í upphafi uppskerutímabils gaf meðferð með hærri ljósstyrk þroskuð ber nokkrum dögum fyrr borið saman við 100 W/m2. Að auki þroskaðist Elsanta snemma, en þegar plantað var, var Elsanta með þroskaðri plöntu en Sonata. Í lok uppskerutímabils fengust 380 g/plöntu markaðshæfrar upp- skeru með Elsanta við 150 W/m2 en 320 g/plöntu við 100 W/m2 í hluta A. En í hluta B fengust 740 g/plöntu með Elsanta og 830 g/ plöntu með Sonata við 150 W/m2 og 680 g/plöntu með Elsanta og 740 g/plöntu með Sonata við 100 W/ m2. Munurinn var oftast ekki töl- fræðilega marktækur hvorki milli ljósstyrkja né milli yrkja. Hins vegar var uppskera af Sonata um 10 % hærri samanborið við Elsanta. Hærri ljósstyrkur hefur jákvæð áhrif á markaðshæfa uppskeru, uppskeran var 18 % meiri með Elsanta í hluta A og 9 % meiri með Elsanta í hluta B og 12 % meiri með Sonata í hluta B. Ástæðan fyrir meiri uppskeru við 150 W/m2 var fjöldi jarðarberja. Mismunur milli ljósstyrkja myndaðist í upphafi upp- skeru tímabilsins og minnkaði á síð- ari hluta tímabilsins. Meðalþyngd minnkaði eftir því sem leið á upp- skerutímabilið frá 18 g/ber í hluta A og 29-37 g/ber í hluta B til um 10 g/ ber og var aðeins hærri við 150 W/ m2 við Elsanta en hærri við 100 W/ m2 við Sonata (mynd 2). Hlutfall uppskerunnar sem hægt var að selja var um 90 % í hluta A og 90-95 % í hluta B. Hærra hlut- fall illa lagaðra jarðarberja var í Elsanta samanborið við Sonata (tafla 1). Þegar hærri ljósstyrkur var notaður, þá jókst uppskera með Elsanta um 0,7 kg/m2 (1 % hækkun í ljósstyrk jók uppskeru um 0,2-0,6 %) og framlegð um 800 ISK/m2 í hluta A og 900 ISK/m2 í hluta B. Með Sonata jókst uppskera við 150 W/m2 um 1,1 kg/m2 (1 % hækkun í ljósstyrk jók uppskeru um 0,2-0,3 %) og framlegð um 1.600 ISK/m2 í hluta B. Hærri rafmagnsgjaldskrá breytir framlegð næstum ekkert. Það skiptir ekki máli hvort gróður- hús er staðsett í þéttbýli eða dreif- býli, framlegð er svipuð. Ályktun Með þessum niðurstöðum var markmiði okkar náð þ.e. að ná uppskerutölum hollendinga, sem voru með 700 g söluhæfa uppskeru á plöntu á 6 vikna uppskerutímabili (sjá Bændablað nr. 461). En það var augljóst að ástand plantna þegar plantað var, hefur mikil áhrif á hvort að uppskera verði mikil eða lítil og leggur með því fram skerf til uppskeruárangurs. Frá hagkvæmnisjónarmiði er mælt með því að nota hærri ljós- styrk og Sonata til að auka upp- skeru og framlegð jarðarberja. En hins vegar út frá útliti plöntunnar er mælt með lægri ljósstyrk. Nú eru aftur farnar af stað til- raunir við LbhÍ þar sem prófuð verða áhrif ljósstyrks yfir hávet- urinn 2016/2017 á „everbearers“ (sem hafa lengra uppskerutímabil en junebearers en eru með minni uppskeru á viku) í samanburði við hefðbundna gróðurhúsarækt- un jarðarberja (junebearers). Niðurstöður verður kynntar í Bændablaðinu þegar þær liggja fyrir. Christina Stadler Landbúnaðarháskóla Íslands Reykjum − Hveragerði 0 10 20 30 40 50 60 70 21.9 5.10 19.10 2.11 16.11 B ló m / be r ( nú m er / pl ön tu ) Elsanta 150 W/m² Elsanta 100 W/m² Hluti A a mþ. 12,1 10,3 a 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 0 200 400 600 800 1000 1200 15.10 29.10 12.11 26.11 M eð al þy ng d (g / al di n) Sö lu hæ f u pp sk er a (g / pl ön tu ) Elsanta 150 W/m² Elsanta 100 W/m² Hluti A b abab a mþ. 14,6 13,1 13,8 14,3 0 5 10 15 20 25 30 35 40 0 200 400 600 800 1000 1200 11.4 25.4 9.5 23.5 M eð al þy ng d (g / al di n) Sö lu hæ f u pp sk er a (g / pl ön tu ) Elsanta 150 W/m² Sonata 150 W/m² Elsanta 100 W/m² Sonata 100 W/m² Hluti B 0 10 20 30 40 50 60 70 7.3 21.3 4.4 18.4 2.5 16.5 30.5 B ló m / be r ( nú m er / pl ön tu ) Elsanta 150 W/m² Sonata 150 W/m² Elsanta 100 W/m² Sonata 100 W/m² Hluti B Mynd 1: Opið blóm/ber á plöntu í hluta A og B við mismunandi ljósstyrk árið 2015 / 2016. Mynd 2: Uppskera af jarðarberjum og meðalþyngd aldina árið 2015/2016 í hluta A og B eftir mismunandi ljósstyrk. Munur milli meðferða er ekki marktækur Hlutfallsleg skipting söluhæfra og ósöluhæfra jarðarberja eftir ljósstyrk í hluta A og hluta B Meðferð Úrvalsfl. 1. fl. Of smá Mygluð Illa löguð Græn % % % % % % Hluti A Hluti B Söluhæfrar uppskeru Ósöluhæfrar uppskeru Mynd 2: Uppskera af jarðarberjum og meðalþyngd aldina árið 2015 / 2016 í hluta A og B eftir mismunandi ljósstyrk. Landbúnaðarháskóli Íslands Háskóli lífs og lands Jarðarberjaræktun á óhefðbundnum tíma á Íslandi – nýjustu niðurstöður

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.