Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 56

Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Býli: Brúnastaðir. Staðsett í sveit: Bærinn er í Austur- Fljótum í Skagafirði og stendur við suðaustanvert Miklavatn um 20 km frá Siglufirði. Ábúendur: Jóhannes Helgi Ríkharðsson (50 ára) og Stefanía Hjördís Leifsdóttir (51 árs). Fjölskyldustærð (og gæludýra): Ríkey Þöll, 20 ára nýstúdent á leið í heimsreisu, vinnur fyrir ferðinni á Sigló Hótel, Kristinn Knörr, 16 ára nemi í MA, Ólafur Ísar, 15 ára grunnskólanemi og Leifur Hlér, 10 ára grunnskólanemi. Svo eru 3 fósturbörn. Kolbrún Tanya, 18 ára nemi í VMA, Júlía Agar, 14 ára grunnskólanemi og Eldur Máni, 10 ára grunnskólanemi. Auk þess eru 2 grænlenskir verknemar, þeir Tom Jakobsen 22 ára og Inunngaq, 17 ára og grænlenski vinnumaðurinn Jens Hansen 18 ára. Stærð jarðar? Um það bil 1.000 ha, þar af töluvert af grjóti og snjó. Gerð bús? Sauðfjárbú ásamt ferða- þjónustu og fósturheimili. Fjöldi búfjár og tegundir? 850 kindur, 20 geitur, 5 hross, 3 holda- kýr, 20 geldneyti og kálfar, 2 svín, 40 hænur af ýmsum stofnum, 3 endur, 10 holdakanínur, 1 gömul húsakisa (Sunna Dís), 2 border collie-smalahundar (Sproti og Kjarkur) og einn íslenskur hvolp- ur (Pjakkur). Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Eftir að barnahersingunni hefur verið komið af stað í skólabílinn á morgnana taka við annir í búskap og ferðaþjónustu. Mismunandi handtök eftir árstíðum. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegastir eru annatímar kringum sauðfé, vor og haust. Margar hjálpandi hendur og mikið fjör. Viðgerðir á biluðum vélum er ekki það skemmtilegasta sem Jóhannes lendir í. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Með svipuðu sniði en vonandi með frekari uppbyggingu í ferða- þjónustunni þar sem hefðbundinn búskapur og ferðaþjónusta fléttast meira saman. Margar spennandi hugmyndir, vantar bara fleiri stundir í sólarhringinn. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Því miður virðast færri og færri bændur gefa sig í þessi störf. Það er of algengt sjón- armið að það séu einhverjir aðrir hæfari eða hafi meiri tíma til að sinna þeim en þeir sjálfir. Þessi störf eru oft tímafrek og gefa lítið í aðra hönd og oft og tíðum fá menn litla þökk fyrir. Þeir sem gefa sig í þetta fá allt okkar hrós fyrir og hafa að okkar mati staðið sig vel. Þó má alltaf segja að þeir mættu vera sýnilegri í fjölmiðlum og á það að miklu leyti við okkur bændur alla. Hins vegar er samningsstaða okkar bænda við ríkisvaldið og afurða- stöðvarnar sífellt að verða veik- ari og veikari eins og dæmin hafa sýnt undanfarið sumar og í haust. Af því höfum við áhyggjur og því mikilvægt að við bændur komum fram sem ein heild. Einnig þarf að einfalda lagaumhverfið um land- búnaðinn, sérstaklega það sem snýr að heimavinnslu og sölu afurða. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Vonandi vel ef skynsamlega er haldið á málum, bústærðir mið- ast við fjölskyldurekin bú sem hafa hollustu og umhverfisvitund að meginmarkmiði. Það er besta byggðastefnan sem styður einnig við ferðaþjónustuna hringinn í kringum landið. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Eigum að einbeita okkur að því að senda upprunamerktar vörur á dýra markaði, það kostar að framleiða úrvals matvæli og það erum við að gera. Eigum að vera stolt af því og halda því meira á lofti. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Alltaf eru til fjölmargir dallar fylltir alls kyns eggjum, jafnt úr íslenskum, kínverskum eða kornhænum. Einnig er þar að finna mjólkurvörur, græn- meti og ávexti, allt stoppar stutt við í ísskápnum þar sem marga munna er að metta. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Þar sem húsmóðirin á bænum dvaldi um árabil í Mið- Ameríku er ósjaldan boðið upp á eilítið amerískari útgáfu af þeirri fæðu sem þar var boðið upp á – og er hér á bæ kallaður mexíkómatur. Vinsældir hinnar framandi fæðu vestursins ná þó aldrei að toppa dálæti heimilismanna á hinum hefðbundna rétti, kjöti í rjómakarrí. Svo mikill er spenningurinn þegar sá veislumatur er borinn á borð að tár sjást á hvörmum og hamingju- svipir mást ekki af andlitum. Einnig vill heimilisfólk koma á framfæri einum af uppáhaldsréttum heim- ilisins; saltkjöt með grjónagraut, kartöflum og kanilsykri. Ekki skemmir fyrir að bera fram súrt slátur með þessum veislumat. Þó svo samsetningin kunni að hljóma undarlega í fyrstu þá er ekki um að villast að hér er að finna toppmat. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Örugglega þegar þurfti að nota stórvirkar vinnuvélar við að grafa öll útihús upp úr snjó á sauðburði 2013. Hér í stórbrotinni náttúru yst á Tröllaskaga getur veðrið tekið ýmsar vendingar og slíkir útúrdúrar sitja mest eftir í minningunni. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Svissneskur marengs og íslenskar skyrkleinur Girnilegri verða þeir varla eft- irréttirnir en þessir litlu mar- engstoppar sem dýft er í súkkulaði. Hér er líka boðið upp á ramm- íslenskar skyrkleinur sem eru orðn- ar víðfrægar og koma úr smiðju Smurstöðvarinnar í Hörpu. Svissneskur marengs hjúpaður í súkkulaði › 210 g eggjahvítur › 310 g flórsykur › 200 g súkkulaði að eigin vali › Súkkulaðiperlur til skrauts Setjið eggjahvítu með flórsykri í skál úr ryðfríu stáli. Settu skálina yfir pott með heitu vatni (55 til 60 gráður) og þeytið þar til hún þykknar. Þeytið í hrærivél eða með raf- magnsþeytara þar til áferðin á marengsinum er orðin góð. Setjið í poka með um 15 millimetra stút í þvermál og sprautið í toppa á smjörpappír. Bakið í ofni við 100 gráður í tvær klukkustundir. Húðið marengs með bræddu súkkulaði og stráið skrautkúlum yfir til skrauts (má sleppa). Njótið svona eða framreiðið með ís. Skyrkleinur › 4 egg › 1½ bolli sykur › 150 g smjör › 1½ bolli súrmjólk eða skyr › 1½ bolli mjólk › ½ tsk. Salt › 1½ tsk. kardemommur › 2–3 tsk. vanilludropar › 4 tsk. lyftiduft › ½ tsk. hjartarsalt › ½ tsk. sódaduft. › 1–1,2 kg hveiti eftir þörfum. Aðferð Egg og sykur þeytt saman Bræddu smjöri bætt saman við. Þá er skyri (eða súrmjólk) bætt við og mjólk, salti, kardemommum og vanilludropum einnig. Svo er lyftidufti, hjartarsalti og sódadufti bætt saman við og svo er hveitinu hrært saman við þangað til réttri þykkt á deiginu er náð. Ábending til þeirra sem eru að steikja kleinur í fyrsta sinn: Fyrst þegar ég bakaði þessa upp- skrift þá byrjaði ég með deigið aðeins of þunnt og lenti í vandræð- um en það er um að gera að setja bara nógu mikið hveiti til að deigið klessist ekki og fletja það ekki of þunnt út. Athuga líka að hræra það ekki of mikið eftir að hveitið er sett í, svo að kleinurnar verði ekki of seigar. Steikið í meðalheitri olíu og borðið helst strax. Deigið geymist í frysti og má steikja eftir hendinni. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Brúnastaðir Fjölskyldan Brúnastöðum. Hluti af geitastofninum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.