Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 57

Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Maíusmekkur – fljótheklaður og einfaldur HANNYRÐAHORNIÐ garn@garn.is Þegar Maía dóttir mín var smá- barn langaði mig að hekla á hana smekk. Hún slefaði ekki af neinu viti svo ég ákvað að hekla á hana matarsmekk. Ég hafði skoðað nokkrar uppskriftir af smekkj- um sem heilluðu mig bara ekki nógu mikið. Dag einn var ég að gramsa í Rauða kross-búð og fann gamlan heklaðan smekk. Hann var stílhreinn og einfaldur sem var einmitt það sem ég sóttist eftir. Ég keypti því smekkinn og notaði hann sem fyrirmyndina að Maíusmekknum. Garn: Scheepjes Catona frá Handverkskúnst. Ein dokka dugar í ca. 3 smekki. Heklunál : 3 mm. Skammstafanir: L = lykkja, LL = loftlykkja, FP = fastapinni, ST = stuðull, sl. = sleppa. xx Uppskriftin: Ég gerði ekki 3 LL í byrjun hverr- ar umferðar því ég vildi ekki fá þessi göt sem myndast þegar það er gert. Þess í stað geri í 2 LL í byrjun hverrar umferðar, sem ég tel ekki með og hekla ekki í, og hekla svo 1 ST strax í fyrstu L sem er venjulega ekki gert. Fitjið upp 30 LL. 1. umf: Heklið 1 ST í 4. LL frá nálinni, 1 ST í næstu 12 L, 3 ST í næstu L, 1 ST í næstu 13 L. Þessar 3 LL sem sleppt er í byrjun umferðar teljast EKKI sem 1 ST. 2. umf: Heklið 2 LL (teljast ekki með), 1 ST í næstu 14 L, 3 ST í næstu L, 1 ST í næstu 14 L. 3.-12. umf: Haldið áfram að hekla stuðla fram að miðjulykku, í hana eru alltaf heklaðir 3 ST. Stuðlunum fjölgar því um 2 í hverri umferð. Í lok 12. umferðar eru 46 ST. Kantur og bönd: Byrjað er í miðjulykkju 12. umferðar, þar er hekl- aður 1 FP og 1 FP í hverja L að horni, í hornið eru heklaðir 2-3 FP, FP heklaðir með jöfnu millibili meðfram smekknum, þegar búið er að hekla uppeftir smekknum er fyrra bandið gert, heklið 50-60 LL og heklið KL í aftari hluta lykkjunnar alla leiðina niður, þá er heklað aftur í smekkinn, FP í hverja L fram að miðlykkju, henni er sleppt. Heklið alveg eins hinn helminginn af smekknum, lokið umferðinni með FP í sömu L og byrjað var. Ef þú vilt gera breiðari kant skaltu hekla tvær umferðir af fastapinnum, böndin eru þá hekluð í seinni umferðinni. Vona að ykkur líki jafnvel við þessa smekki og mér. Heklkveðjur, Elín Guðrúnardóttir Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 8 9 1 4 3 7 6 7 2 8 9 4 7 3 5 8 9 2 7 1 7 6 5 2 1 8 6 5 7 6 2 8 9 4 7 6 2 1 8 5 9 2 4 3 Þyngst 8 7 9 2 1 5 4 2 4 7 6 8 1 4 3 5 6 9 3 7 4 9 5 2 1 6 1 3 7 4 6 8 9 5 1 8 3 2 4 8 5 1 5 1 3 6 2 1 4 2 5 6 9 2 1 9 3 8 1 5 7 4 6 1 3 5 2 7 5 4 9 6 9 8 6 2 4 1 3 5 2 7 6 1 9 5 4 7 4 2 2 4 9 1 8 FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Dugleg ballerína sem ætlar að verða hestastelpa Þórey María er dugleg ballerína sem var að byrja í 5 ára bekk í Ísaksskóla. Hún er mikil hesta- stelpa og á einn hest. Henni finnst rosalega gaman að föndra og tína falleg blóm. Nafn: Þórey María Einarsdóttir. Aldur: 4 ára, alveg að verða 5 ára. Stjörnumerki: Sporðdreki. Búseta: Kópavogur. Skóli: Ísaksskóli, 5 ára bekkur. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Leikfimi, perla með litlum perlum og föndra. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kanína og merin mín sem heitir Sjöbba. Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur. Uppáhaldshljómsveit: Emmsjé Gauti. Uppáhaldskvikmynd: Lína Langsokkur. Fyrsta minning þín? Þegar stóri bróðir minn var að leika við mig. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóð- færi? Æfi ballett hjá ballettskóla Eddu Scheving. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Hestastelpa. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Að fara í risastóra vatns- rennibraut á Tenerife. Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Fór með fjölskyldunni til sólarlanda, lærði að synda með enga kúta, fór að veiða lax í Elliðaánum og fékk göt í eyrun. Næst » Þórey skorar á Davíð Stein Einarsson, bróður sinn, að svara næst. Vantar þig íslenskan lopa? Álafosslopi - Plötulopi - Léttlopi - Einband - Bulkylopi - Kambgarn Heimasíðan gefjun.is býður upp á lopa frá Ístex á lægsta fáanlega verði ! Sendum um allt land!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.