Bændablaðið - 22.06.2017, Page 1
12. tölublað 2017 ▯ Fimmtudagur 22. júní ▯ Blað nr. 493 ▯ 23. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Fósturvísar af Aberdeen-Angus
holdanautgripum frá Noregi
voru teknir í maí sl. og stefnt er á
að þeir verði settir upp í íslenskar
kýr í nýrri einangrunarstöð
Nautgriparæktarmiðstöðvar
Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa í
september nk. Gangi það eftir
koma fyrstu kálfarnir í heiminn
vorið 2018.
Upphaflega var gert ráð fyrir
að fluttir yrðu inn 40 fósturvísar
fyrir 16–20 kýr en alls náðust
55 fósturvísar frá tveimur búum
í Noregi í maí. Fósturvísarnir
eru undan þremur nautum og sjö
kvígum; kvígurnar eru undan
fjórum nautum.
Miklar heilbrigðiskröfur
Nú eru fósturvísarnir í sóttkví
en minnst 60 dagar þurfa að
líða frá því að fósturvísarnir eru
teknir, þangað til þeir eru settir
upp í fósturmæður, samkvæmt
heilbrigðiskröfum.
„Venjuleg heilbrigðisvottorð,
fyrir t.d. sæði, gera ráð fyrir
mánaðarbið en þar sem
heilbrigðiskröfur innflutningsins
eru gríðarlega miklar þá eru allir
tímafrestir tvöfaldaðir,“ segir
Baldur Helgi Benjamínsson
búfjárerfðafræðingur. Á meðan
verður grannt fylgst með
gripunum og litið er eftir minnstu
sjúkdómseinkennum.
„Ef eitthvað kemur upp á
meðan á þessu tímabili stendur
verða fósturvísarnir ekki notaðir.
Varúðarráðstafanirnar snúast
allar um að fyrirbyggja eins og
mögulegt er að þessu fylgi nokkur
einasta áhætta varðandi sjúkdóma í
íslensku búfé,“ segir Baldur Helgi.
Sýklalyfjanotkun hvergi minni
Næsta skref er að Nautgripa-
ræktarmiðstöð Íslands (NautÍs)
sækir formlega um heimild
til Matvælastofnunar til
innflutningsins en fyrir liggja
meðmæli Fagráðs í nautgriparækt
fyrir innflutningnum.
Samkvæmt reglugerð um
innflutning erfðaefnis holda-
nauta og kröfur um útbúnað
einangrunarstöðva nr. 850/2015,
með síðari breytingum, er einungis
heimilt að flytja inn erfðaefni frá
Noregi. Sú skipan byggist alfarið
á þeirri staðreynd að heilsufar
nautgripa í Noregi er með því
besta sem þekkist í heiminum.
Sýklalyfjanotkun í landbúnaði er
til að mynda hvergi minni en þar.
Einangrunarstöð í byggingu
Þá eru byggingaframkvæmdir
á Stóra-Ármóti í fullum gangi.
Samkvæmt upplýsingum frá Sveini
Sigurmundssyni, framkvæmda -
stjóri NautÍs, og Búnaðar-
sambandi Suðurlands, er grunnur
og haugkjallari nýrrar einangrunar-
miðstöðvar tilbúnir og verið er að
steypa veggi.
Angus-kynið er að sögn Baldurs
harðgerðir gripir sem henta vel,
þar sem búskapur byggir á nýtingu
beitar og gróffóðurs. Við val á
nautum var lögð áhersla á góða
móðureiginleika (mjólkurlagni
og léttan burð) og mikil kjötgæði;
meyrt og fitusprengt kjöt. /ghp
55 fósturvísum af nautgripum af Aberdeen-Angus-kyni verða settir upp í íslenskar kýr í september:
Fyrstu naut af nýjum stofni væntanleg í vor
Sigurður Sigurðarson dýralæknir mun á næstu tveim mánuðum aka um landið ásamt konu sinni, Ólöfu Erlu Hall-
dórsdóttur, til að athuga merkingar á miltisbrandsgröfum sem hann hefur vitneskju um. Einnig mun hann merkja
– Sjá nánar á bls. 4 Mynd / HKr.
Magni Þór Pálsson, sérfræðingur
í kerfis þróun og verkefnastjóri
rannsókna á þróunar- og tækni-
sviði Landsnets, segir að viðrað-
ar hafi verið hugmyndir, innan
Landsnets um að styrkja flutnings-
kerfi raforku með nýrri tengingu á
milli Suðurlands og Norðurlands
um Sprengisand. Annaðhvort með
riðstraums-jarðstreng á hluta
leiðarinnar eða jafnstraumsstreng
í jörðu alla leið.
Varðandi línulögn yfir Kjöl og
Sprengisand hafa menn verið að
skoða möguleika á að leggja þar
400 kV línu sem anna myndi veru-
lega aukinni orkuþörf til langrar
framtíðar, eins og fram kemur í
Kerfisáætlun Landsnets 2016–2025.
Áætlað er að jafnstraums-jarðstreng-
ur alla leið yfir Sprengisand myndi
kosta um 40 milljarða króna á
meðan loftlína (riðstraums) sömu
leið myndi kosta um 15 milljarða.
Hins vegar hafa menn einnig verið
að skoða þann möguleika að leggja
einungis jarðstreng (riðstraums) yfir
það svæði þar sem mikið víðsýni er
á hálendinu og loftlínur yrðu mjög
áberandi, allt að 50 km leið. Restin
yrði svo með loftlínum. Talið er að
slíkur kostur gæti kostað um 18–20
milljarða króna. /HKr.
– Sjá umfjöllun á bls. 20–21
Mynd / HKr.
Jarðstrengur yfir
Sprengisand
.
18
gegn sumar exemi
Ræktun Inkakorns
22
Nauðsynlegt að meiri sátt
28–29