Bændablaðið - 22.06.2017, Side 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson,
og Eliza Reid forsetafrú mættu í opinbera
heimsókn í Bláskógabyggð föstudaginn 9.
júní en heimsóknin var í tilefni af 15 ára
afmæli Bláskógabyggðar.
Íbúar fjölmenntu hvarvetna sem forseta-
hjónin komu við í heimsókn sinni. Ekki spillti
hátíðinni að veðurguðirnir léku við afmælis-
gesti Bláskógabyggðar.
Forsetahjónin heiðruðu Bláskógabyggð á 15 ára afmælinu
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Nýr liðsmaður vísnaþáttarins, Lárus Jón Guðmundsson, fær afurðum sínum stað í þessum þætti. Lárus
Jón er fæddur Hafnfirðingur, en móðurætt
sína rekur hann að Stóra-Fjalli í Borgarfirði.
Föðurættin er hins vegar að vestan frá
Vinaminni í Bakkadal við Arnarfjörð. Þrátt
fyrir ungan aldur þá hefur Lárus Jón efnað
í og útgefið þrjár ljóðabækur, tvær þeirra
ætlaðar börnum, „Fröken Kúla könguló
og fleiri kvæði“ og „Ljúflingsljóð“, en sú
þriðja „ Í Lárusarhúsi“ kom út á árinu 2011.
Áhugasömum lesendum bendi ég á bækur
hans vilji þeir frekar kynnast kveðskap þessa
ágæta vísnasmiðs. Þær vísur Lárusar Jóns
sem hér birtast eru ortar fyrir vísnakeppni
sem efnt var til í tengslum við Sæluviku
Skagfirðinga. Þar þræðir Lárus Jón sig gegn-
um hið mikla sögusvið sem héraðið geymir:
Hrærist allt af hófadyni,
hóað snjallt í valnum.
Auðnukalt er Arasyni
innst í Hjaltadalnum.
Forlög völdu fellið Sauða,
feðgum köld var biðin.
Konunghöldar dæmdu dauða,
dýrðlingsöld var liðin.
Augun slokkna, eggjar stála
engum hnokka vægði.
Högg á stokk í holti Skála
höfðaflokkinn lægði.
Moldarvöngum laugin líknar,
ljóðin öngvum syngur.
-Líkaböngin soninn sýknar-
söngvinn Skagfirðingur.
Hrærðist allt af hófadyni,
hóað snjallt í valnum.
Auðnuvalt var Arasyni,
innst í Hjaltadalnum.
Lokavísa síðasta þáttar var eftir Þorberg
Þorsteinsson, þann lipra hagyrðing. Margar
vísna hans urðu landsþekktar enda bráð-
snjallar og hnyttnar. Næstu vísur eru eftir
Þorberg:
Dýrara en keypti síst ég sel,
sumt því litlu nemur,
mig langar oft að lifa vel
og lifa þá heldur skemur.
„Hin fornu kynni“ nefnir Þorbergur þessa
alþekktu vísu sína:
Oft eru dul og feimin fljóð
fremst á hæfnisprófi.
Þykir sumum syndin góð
sé hún drýgð í hófi.
Næstu sjö samstæðu vísur orti Þorbergur,
og nefnir „Vísurnar hennar Stínu“:
Þegar byrgir niðdimm nótt
og næðingarnir hvína,
mér finnst einhver mæla hljótt:
„Má ég koma Stína“.
Nú er frost og nepja um kinn,
norðurljósin skína,
ó, ég þrái ylinn þinn,
ertu þarna, Stína?
Svaraðu elska, ekkert hik,
ástin kann að dvína,
leyf mér aðeins augnablik
upp í til þín , Stína.
Þegar vetur þokast frá,
það fer að birta og hlýna,
eg vil planta, eg vil sá
akurinn með þér, Stína.
Þegar landið laugar sól
og lokka vermir þína,
broshýr leika um bala og hól
börnin okkar, Stína.
Þó að falli fölvi á kinn
og fegurð snerti þína,
veistu að ég er vinur þinn
og verð það alltaf, Stína.
Þegar allt er orðið hljótt
eftir daga mína,
lífs og dauða lokanótt
lúri ég hjá þér, Stína.
180
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Hópur barna tók á móti forsetahjónunum í Aratungu með íslenska fánanum en í félagsheimilinu var haldin móttaka þar sem öllum íbúum var
boðið að koma. Í Bláskógabyggð búa um þúsund manns. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
LÍF&STARF
Leikskólabörn tóku á móti forsetahjónunum við Héraðsskólann þar sem þau sungu
fyrir þau tvö lög. Mikil spenna var í hópnum enda ekki á hverjum degi sem börnin
fá að syngja fyrir forseta lýðveldisins.
Kúabúið á Hjálmsstöðum í Laugardal var heimsótt en þar er nýtt og glæsilegt fjós hjá þeim
Daníel Pálssyni og Ragnhildi Sævarsdóttur. Eliza Reid hafði mun meiri áhuga á kálfunum á
bænum en Guðni, enda úr sveit. Guðni var aldrei í sveit og segist ekki vera sveitamaður, íþróttir
áttu hug hans allan á unglingsárunum.
Sigurður Rafn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Fontana, bauð
forsetahjónunum upp á nýbakað rúgbrauð úr sandinum og
hitanum þar niðri rétt við baðstaðinn. Íslenskt smjör og bleikja
frá Útey var notað á brauðið. Forsetahjónin sögðust sjaldan
eða aldrei hafa smakkað eins gott rúgbrauð.
Í heilsugæslunni í Laugarási skrifaði Bláskóga-
-
félag við Embætti landlæknis. Óttarr Proppé
heilbrigðisráðherra var viðstaddur, ásamt
Guðna Th. Jóhannessyni við undirritunina.
Helgi Kjartansson oddviti og Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, fyrir hönd landlæknis, undirrit-
uðu samninginn.
Knútur Ármann og Helena Hermundardóttir í
Friðheimum kynntu starfsemina á staðnum en
þar er stunduð tómatarækt og hestamennska
með ferðaþjónustu sem aðaláhersluatriði. Á
síðasta ári komu 135 þúsund ferðamenn í
heimsókn í Friðheima. Starfsmenn eru á milli
40 og 50.
hér er Guðni Th. kampakátur með blómið sem fer í
sólstofuna á Bessastöðum.