Bændablaðið - 22.06.2017, Síða 8

Bændablaðið - 22.06.2017, Síða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017 Ónýtt verðmæti í mjólk sauða og geita – Fræðslufundur haldinn á morgun, 23. júní, fyrir áhugasama bændur Fræðslufundur um nýtingu á sauða- og geitamjólk verður haldinn á morgun 23. júní á Hvanneyri. Fundinum er ætlað að kynna fólki sem hefur áhuga á að nýta sauða- og eða geitamjólk hvaða aðstaða þarf að vera fyrir hendi, hvaða kröfur eru gerðar til aðstöðunnar og hverju þarf að huga að áður en farið er út í slíkt verkefni. Ráðgjafarmiðstöð landbúnað- arins (RML), Landssamtök sauð- fjárbænda og Geitfjárræktarfélag Íslands standa að fræðslufundinum. Eyþór Einarsson, ábyrgðarmaður í sauðfjárrækt hjá RML, segir að til- gangur fundarins sé að hvetja fólk til að skoða möguleikana á þessari nýtingu og hlú að þeim áhuga sem þegar er fyrir hendi. „Á þessum fundi verður aðallega farið yfir það hvað þarf að hafa í huga áður en farið er út í framleiðslu á mjólk og vörum úr sauða- og geita- mjólk þannig að áhugasamir geti aðeins áttað sig á því hvaða aðstöðu þeir þurfa og hvaða reglur gilda um slíka framleiðslu,“ segir Eyþór. Fráfærur almennt stundaðar áður fyrr Að sögn segir Eyþór að lömbin þurfi vissulega á mjólkinni að halda fyrstu vikurnar. „Eftir því sem þau eldast og þroskast eru þau betur í stakk búin til þess að vaxa áfram á öðru fóðri án þess að það hægi mikið á vexti þeirra. Mér sýnist að það tíðk- ist að taka þau undan frá 4 vikna aldri til 4 mánaða aldurs – og fer það sjálfsagt eftir aðstæðum á hverj- um stað til að ala lömbin áfram og mörkuðum fyrir afurðirnar. Á öldum áður voru frá færur almennt stundaðar af sauðfjárbænd- um hér á landi. Þá var byrjað á því að taka lömbin undan á kvöldin, ærnar mjólkaðar að morgni og síðan fengu ærnar lömbin aftur. Þetta tímabil var kallað stekktíð. Við fimm til átta vikna aldur lambanna voru þau alveg tekin undan og ærnar mjólkaðar fram á haust. Það sem trúlega hentar best við íslenskar aðstæður í dag er að venja lömbin undan upp eftir miðjan júlí eða þegar þau hafa náð þokkalegum þroska, kannski í kringum 20 kíló á fæti, og koma þeim á kjarngóða beit. Í beitartilraunum sem gerðar hafa verið hér á landi hefur t.d. komið fram að lömb sem fara á fóðurkál í byrjun ágúst geta náð betri vexti en lömb sem ganga undir mæðrum sínum í úthaga. Nú á seinni árum hafa menn aðeins verið að prófa sig áfram með eldi á heimalningum – þar sem frjósemi er orðin mjög mikil – og náð góðum vexti í þau lömb þannig að það á vel að vera hægt að ná góðum vexti í lömb þótt þau séu vanin undan um mitt sumar og ærnar mjólkaðar.“ Hefð fyrir mjöltum og fráfærum við Miðjarðarhaf Eyþór segir að mismunandi sé milli landa hversu gömul lömbin eru sem fara á markað. „Ég held til dæmis að á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu séu menn vanari lambakjöti af heldur eldri lömbum en við erum vön hér á landi. Síðan í löndum þar sem rík hefð er fyrir mjöltum og fráfærum, þar er hefð fyrir nýtingu á kjöti af smálömbum. Dæmi um slíka markaði væri í löndum við Miðjarðarhafið. Hér á landi hefur verið boðið upp á sumarslátrun lamba hjá einhverjum afurðastöðvum sem hefst þá í ágúst- mánuði. Fyrir þá sem vilja taka undan lömb, en telja sig ekki hafa hag af því að bata þau mikið þá getur verið val- möguleiki að taka frekar seint undan og velja ær til mjalta sem eru komin með þokkalega sláturhæf lömb sem stíla mætti inn á sumarslátrun. Þá er væntanlega ekki útilokað að ef áhugi fyrir mjöltum yrði mikill að hægt væri að fara í samstarf við afurðastöðvarn- ar með að leita að mörkuðum fyrir smálömb eða prófa að markaðssetja það hér á landi og hefja slátranir enn fyrr.“ Spennandi viðbót við hefðbundinn sauðfjárbúskap „Ég myndi telja það mjög spennandi viðbót við hefðbundinn sauðfjárbúskap hér á landi ef við næðum að skapa hér einhverja menningu fyrir framleiðslu á vörum úr sauðamjólk. Þetta var stundað hér um aldir og því ekki hægt að segja annað en nýting sauðamjólkur eigi sér mikla sögu hér á landi þótt sá þráður hafi slitnað. Það er vissulega mjög jákvætt að geta nýtt sem mest allar afurðir sem ærnar gefa af sér og jákvætt gagnvart neytendum að geta boðið upp á fjölbreytt vöruúrval af íslenskum landbúnaðarvörum. Mér hefur skilist á þeim sem eitthvað hafa prófað að framleiða osta að auðvelt sé að selja vöruna. Nú er staðan þannig að sveitirnar eru fullar af ferðamönnum og víst er að einhver hluti þeirra hefur mikinn áhuga á því að smakka innlenda framleiðslu og sérvörur beint frá bændum. Þá er staðan aðeins snúin í útflutningi á dilkakjöti um þessar mundir og því í raun margt sem gerir það áhugavert að prófa möguleikana á nýtingu sauðamjólkurinnar. Það ætti jafnframt að vera jákvætt innslag í ræktunarstarfið ef einhver bú fara að leggja áherslu á mjaltir og velja gripi til ræktunar sem sannarlega eru mjólkurlagnir. Mikilvægt er að þeir sem eru að spá í þennan möguleika kynni sér vel hvernig best sé að haga öllum málum, þannig að menn æði ekki af stað og lendi síðan á vegg og missi móðinn. Hugsanlega getur verið sniðugt ef menn ætla að vinna úr afurðunum að einhverjir taki sig saman um að koma upp aðstöðu sem stenst allar kröfur. Fræðslufundurinn er einmitt hugsaður til að hjálpa þeim sem hafa áhugann að átta sig á hvað til þarf,“ segir Eyþór. Geitamjólkin á líka góða möguleika Eyþór telur geitamjólkina ekki síður eiga góða möguleika þótt lítil hefð og reynsla sé fyrir vinnslu á afurðum úr henni. „Fyrir verndun íslenska geitastofnsins væri það gríðarlegur hvalreki ef nýting mjólkurinnar næði einhverju flugi og þar með myndi stofninn öðlast aukið gildi sem auðveldar verndun hans. Til að mjólkurframleiðsla með geitum eða sauðfé eflist þarf sjálfsagt ákveðna hugarfarsbreytingu og síðan góðan stuðning við þá sem hafa áhuga á að prófa sig áfram í þessum geira, þannig að auðvelt sé að hefjast handa,“ segir Eyþór. /smh Lúsmý viðist með hlýnandi veður- fari vera að fara að ná sér verulega á strik hérlendis. Fréttir hafa verið að færast í vöxt á síðustu tveim árum og hefur orðið vart við mjög slæm skordýrabit án þess að fólk hafi alltaf getað greint söku- dólginn. Slík tilfelli hafa komið upp í Kjós, Mosfellsbæ, Reykjavík og Hafnarfirði. Hefur lúsmýi verið kennt um. Lúsmý má finna víðast hvar á jörðinni og er ein tegund þeirra nýfarin að finnast á Íslandi. Lýsmý er af lúsmýsætt eða svið- mý. Fræðiheitið er Ceratopogonidae sem er af ættbálki tvívængja. Lúsmý eru örsmáar blóðsugur á öðrum smá- dýrum, fuglum og spendýrum og flokkast því sem bitmý. Þær verða vart meira en 1,5 millimetrar að lengd. Skoðun sumra er að bit lúsmýs séu verri en bit moskítóflugunnar sem er samt miklu stærri. Því fylgja bólgur, útbrot og ofsakláði sem varað getur í marga daga. Virðist mikill gikkur hvað varðar blóðgæði Blaðamaður Bændablaðsins getur tekið undir það eftir að hafa orðið illilega fyrir barðinu á meintu lúsmýi á heimili sínu á Álftanesi tvö undan- farin sumur án þess að hafa nokkru sinni séð bitvarginn. Virðist lúsmý- ið fara í manngreinarálit þegar það velur fórnarlömb sín en þó líklegra að það sé mikill gikkur þegar kemur að blóðflokkum eða efnainnihaldi blóðs. Þær virðast helst fara á stjá á kvöldin þegar kyrrt er og leita þá gjarnan inn í hús. Þekkist best á því að það sést helst ekki! Mjög erfitt getur verið að staðfesta að um lúsmý sé að ræða þar sem fáir hafa séð það með berum augum. Í svari við fyrirspurn um lúsmýið sem send var Erlingi Ólafssyni, skordýra- fræðingi hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, var svo sem heldur ekki mikið að græða. Hann segist ekki hafa trú á að lúsmý sé nýtt í landinu, öllu heldur að það hafi ekki uppgötv- ast fyrr en nú á síðustu árum þegar því fór að fjölga ótæpilega, hugsan- lega vegna hlýnunar loftslags. „Það er útbreitt á allstóru svæði á Suðvesturlandi. Segja má að lúsmý þekkist best á því að það sést helst ekki! Það er agnarsmátt. Sést helst þegar það fer að safnast út í glugga,“ sagði Erling m.a. í svari sínu. /HKr. Skæðar stungur eða skordýrabit færast í vöxt hérlendis og eru oft eignuð agnarsmáu lúsmýi: „Þekkist best á því að það sést helst ekki“ FRÉTTIR Jóhanna Þorvaldsdóttir á Háafelli við geitamjaltir. Mynd / smhEyþór Einarsson, ábyrgðarmaður í sauðfjárrækt hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Mynd / RML Í Akurnesi í Hornafirði voru ær mjólkaðar og mjólkin notuð til ostagerðar árin 2008 til 2010. Úr mjólkinni var unninn blámygluosturinn Breði sem er í ætt við hinn fræga franska Roquefort og þótti vel heppnaður meðal ostaáhugafólks. Í Akurnesi voru mjólkaðar rúmlega 30 ær. Í byrjun júlí voru lömbin tekin undan ánum og sett á há og sumarrýgresi. Ærnar voru mjólkaðar kvölds og morgna og fengust um 20 kíló á dag af mjólk. Beitin sem ærnar fengu var há og svo fengu þær að auki 100 grömm hver af fóðurbæti í mjöltunum. Helgi Ragnarsson í Akurnesi smíðaði básinn sérstaklega fyrir aðstöðuna í Akurnesi, en mjaltatækin komu frá Remfló. Mjaltabásinn tók átta ær og var hægt að mjólka fjórar ær í einu. Kerfið var svokallað láglínukerfi, en þá rennur öll mjólkin saman í einn kút við enda bássins. Blámygluosturinn Breði frá Akurnesi Úrvals afurðir úr sauða- og geitamjólk • Margir af bestu ostum í heimi eru gerðir úr geita- eða sauðamjólk. • M eð al helstu kosta geitamjólkurinnar fyrir mannfólkið eru taldir vera hversu lík hún er hinni mannlegu móðurmjólk að gerð. Í mörgum tilvikum hentar hún þeim sem hafa óþol gagnvart kúamjólk, bæði í ofnæmistilvikum en einnig fólki með mjólkursykursóþol. Geitamjólk er rík af vítamínum. • Sauðamjólk er rjómakennd og þurrefnarík og er því afar hentug til ostagerðar. Eins og geitamjólkin er sauðamjólkin ólík kúamjólkinni að gerð og fólk með óþol fyrir kúamjólk gæti því í einhverjum tilvikum neytt afurða úr sauðamjólk. Hún er auðug af vítamínum og steinefnum. Sveinn Rúnar Ragnarsson í Akurnesi við sauðamjaltir. Mynd / bssl.is Lúsmý er örsmátt og lítt sýilegt. Bit lúsmýs er jafnvel talið verra en

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.