Bændablaðið - 22.06.2017, Side 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Ástþór Atli Haraldsson var einn
af fjölmörgum snillingum á
Vatnajökli í byrjun júní í hinni
árlegu jeppaferð Hjálparsveitar
skáta í Kópavogi (HSSK). Að
sjálfsögðu var Bændablaðið með
í ferðum.
Í þessari hvítu víðáttu þurfa
menn svo sem ekki að hafa miklar
áhyggjur af að aka utan í umferð-
arskilti eða yfir reiðhjól borgar-
stjórans. Ástþór, sem ekur á sér-
byggðum fjallabíl, lét bílinn rölta
í rólegheitunum yfir ísbreiðuna
og gluggaði í Bændablaðið og gaf
þessa skýringu á athæfi sínu:
„Já, þegar handolíugjöfin er á og
stefnan er rétt, þá er ekkert annað
að gera en að glugga í smáauglýs-
ingarnar í Bændablaðinu. Og í þéttu
færi þá er vissara að kæla mótorinn
með því að hafa miðstöðina í botni
og opna hurð.“
Ástþór vinnur hjá Jeppa-
þjónustunni Breyti sem sérhæfir
sig í að breyta jeppum í alvöru
fjallatrukka.
Hann segir að jeppinn sé á 46
tommu dekkjum og efniviður í hann
kom úr ýmsum áttum, meðal annars
er grindin úr Rover, vélin 3,4 lítra
Toyota dísil, gírkassinn frá Benz og
hásingar undan K5 Blazer. Svo eru
stýrið og speglarnir það eina sem
eftir er af bílnum sem þetta byrjaði
allt á. /HKr.
Gluggað í Bændablaðið
lengst inni á Vatnajökli
Hefur þú tryggt þér
tæki fyrir heyskapinn?
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Menningarveisla
Sólheima
Það er mikið um að vera á
Sólheimum á næstunni og boðið
upp á vegleg atriði.
Laugardagur 24. júní
Lay Low,
Lovísa Elísa-
bet , mun
flytja nokkur
vel valin lög í
Sólheima kirkju
kl. 14.00, en
hún vinnur
nú að sinni
fjórðu plötu.
Aðgangur er
ókeypis.
Bubbi og Stebba frá Vorsabæ 2
gleðja litla og stóra klukkan 15.00
við Völu. Þar gefst tækifæri til að
komast á hestbak og verður teymt
undir ljúfum hestum.
Jónsmessu útijóga verður á
Sólheimum klukkan 16.00 við
Grænu könnuna.
Unnur Arndísardóttir jógakennari
leiðir gesti í útijóga fyrir alla fjöl-
skylduna.
Sunnudagur 25. júní
Íslenski fíllinn kemur í heim-
sókn klukkan 14.00 í íþróttaleik-
húsi Sólheima. Þar er á ferðinni
Brúðuleikhús Bernd Odgrodnik.
Aðgangur er ókeypis.
Laugardagur 1. júlí
Hljómsveitin
Sæbrá spilar
í Sólheima-
kirkju klukk-
an 14.00.
Hljómsveit-
ina skipa
þrjár ungar konur sem syngja eigið
efni.
Þá verður umhverfis fræðsla
í Sesseljuhúsi kl. 16.00 þar sem
Caitlin Wilson frá Landvernd flytur
erindi.
Einnig verður kennsla í
heimagerðum snyrtivörum úr
lífrænu hráefni.
Sunnudagur 2. júlí
Kirkjudagur verður á Sólheimum
sunnudaginn 2. júlí. Þá verður guðs-
þjónusta í Sólheimakirkju kl. 14.00.
Þar mun sr. Kristján Valur Ingólfsson
vígslubiskup í Skálholti messa.
Velkomin í Menningarveislu
Sólheima!
-
Mynd / Páll Halldór Halldórsson