Bændablaðið - 22.06.2017, Side 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
FRÉTTASKÝRING
Hugmyndir uppi um lagningu á jafnstraums-
rafstreng í jörðu yfir Sprengisand
– Myndi styrkja til muna öryggi raforkukerfisins
Landsnet heldur uppi umfangs-
miklu flutningskerfi raforku og
var um síðustu áramót með 3.283
kílómetra í rekstri af loftlínum.
Lengd jarð- og sæstrengja er þó
aðeins um 251 kílómetri, en sífellt
meiri pressa er á í samfélaginu
að skipta út loftlínum fyrir
jarðstrengi. Þar skortir hins vegar
ákveðna stefnumótun af hálfu
stjórnvalda, þó vissulega hafi verið
tekið á því að einhverju leyti með
þingsályktun um viðmið varðandi
lagningu raflína.
Magni Þór Pálsson, verkefnastjóri
rannsókna á þróunar- og tæknisviði
Landsnets, segir lagaákvæði, sem
skipi rekstraraðilum dreifi- og
flutningskerfanna hérlendis að
setja jarðstrengi í forgang við
lagningu raforkulína, fremur
veikburða. Alþingi samþykkti í
maí 2015 þingsályktun um stefnu
stjórnvalda um lagningu raflína.
Í raforkulögum er vísað til þess
að flutningsfyrirtækinu beri að
taka tillit til stefnu stjórnvalda um
uppbyggingu flutningskerfisins.
Hann bendir á að Danir hafi staðið
mjög framarlega á þessu sviði og
verið með ákveðin og metnaðarfull
markmið og sett sér skýra stefnu.
Þeir hafi verið að skipta út
loftlínum og leggja jarðstrengi í
staðinn fyrir loftlínulagnir í sínum
dreifi- og flutningskerfum, einkum
á lægri spennum. Það hafi verið
fjármagnað í gegnum gjaldskrá
flutningsfyrirtækisins og hafin var
vinna við þetta af krafti. Síðastliðið
haust benti Evrópusambandið þeim
á að fjármögnun af slíku tagi væri
ekki í samræmi við ESB-reglur.
Fjármagnið til slíks yrði að koma
beint í gegnum fjárlög ríkisins
en ekki í gegnum flutningsverð á
raforku til neytenda.
Líklegt má telja að vegna aðildar
Íslands að EES-samningnum,
þá gildi hið sama hér á landi og í
Danmörku. Það getur sett Landsneti
þröngar skorður í nýframkvæmdum
við jarðstrengjalagnir.
Átök um línulagnir
Töluverð átök hafa verið á undan-
förnum árum um lagningu rafstrengja
og umhverfisverndarsamtök og í
sumum tilfellum hafa landeigendur
lagst hart gegn lagningu
loftlína. Má þar nefna línulagnir
frá nýju jarðhitaraforkuveri
Landsvirkjunar við Þeistareyki
vegna iðnaðaruppbyggingar á Bakka
við Húsavík. Í dag, 8. júní, er eitt
af þeim málum m.a. til meðferðar
í Hæstarétti Íslands. Þá hafa verið
átök og ágreiningur um línulagnir
um Reykjanesskagann vegna
iðnaðaruppbyggingar við Helguvík
og fyrir almenna notkun. Sömu
sögu hefur verið að segja varðandi
fyrirhugaða eflingu raflínukerfis á
Norður- og Norðausturlandi, milli
Fljótsdals og Blönduvirkjunar.
Heimildarmynd sem sýnd var
í Sjónvarpinu nýlega lýsir vel
afstöðu landeigenda í Skagafirði
gegn áformum Landsnets um
loftlínulagnir á því svæði.
Ófullnægjandi byggðalína
með of litla flutningsgetu
Þrátt fyrir núverandi hring tengingu
raforkukerfisins í landinu um
svokallaða byggðalínu, þá er hún
engan veginn fullnægjandi ef tryggja
á stöðugleika og afhendingaröryggi
í raforkukerfi landsmanna. Þar má
nefna tvær megin ástæður.
1. Flutningsgeta byggðalínunnar
er of lítil til að takast á við
fyrirsjáanlega aukningu
raforku notkunar og fram leiðslu
og til að tryggja afhendingar-
öryggi.
2. Stóru framleiðslu kerfin á
Suðurlandi á Þjórsársvæðinu
og víðar og á Austfjörðum
(Fljótsdalsvirkjun) að nýta 220
kílóvolta (kV) flutningskerfi á
meðan landsnetið sem tengir
þau saman er aðeins með 132
kílóvolta línur. Þau eru því eins
og tvær öflugur raforkueyjar
með takmörkuðum tengingum
á milli. Því er ekki hægt að
miðla nægilegri orku milli
þessara svæða ef eitthvað
kemur upp, auk þess sem
núverandi fyrirkomulag gerir
þau berskjölduð fyrir truflunum.
Nýlegt dæmi um bilun í iðjuveri
í Hvalfirði, sem hafði þau áhrif
að kerfið á Austurlandi sló út,
sýnir þetta.
Ekki hægt að keyra
Blönduvirkjun á fullum afköstum
Einn anga af vandanum við of
litla flutningsgetu byggðalínunnar
má glögglega sjá á Norðurlandi.
Þar dugar 132 kV línukerfið ekki
til að flytja þá orku sem mögulegt
Myndir / HKr.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is