Bændablaðið - 22.06.2017, Page 41

Bændablaðið - 22.06.2017, Page 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017 TÆKNI&VÍSINDI Kveikt á ST40 Tokamak, fyrsta kjarnasamrunaofni Breta: Einkaframtak þykir lofa góðu í kjarnasamrunatilraunum Kveikt var á fyrsta kjarnasamruna- ofni Breta í lok apríl. Þessi tilraunaofn er svokallaður Tokamak ofn af gerðinni ST40. Strax í upphafi tókst að framkalla plasma úr brennandi heitu rafhlöðnu gasi. Takmarkið er að ná með þessum kjarnasamrunaofni að framleiða heitan plasma í seglusviði sem nær 100 milljón gráðu hita á Celsius fyrir árslok 2018. Það er sjö sinnum meiri hiti en er á yfirborði sólarinnar sem fær líka sína orku með kjarnasamruna. Þar er hitinn „aðeins“ um 15 milljón gráður. Ráðgert er að ST40 muni geta framkallað sama hita og finnst í kjarna sólarinnar nú í haust 2017. Hálfgert útigrill í samanburði við ITER ST40 Tokamak ofninn er örlítill í samanburði við ITER kjarna- samrunaofninn sem verið er að smíða í Saint-Paul-lez-Durance í Suður-Frakklandi, en ITER stendur fyrir International Thermonuclear Experimental Reactor. Eiginlega má líkja ST40 við vasaútgáfu eða útigrill í slíkum samanburði, en ITER verður um 30 metra hár og 23 þúsund tonn að þyngd , en er samt að grunni til risastór Tokamak ofn. Samþykkt var að fara í ITER verkefnið árið 2006 með samkomulagi Kína, ESB, Bandaríkjanna, Rússlands, Indlands, Japans og Suður-Kóreu, en skrifað var undir samninginn í Frakklandi. Þá var áætlað að verkefnið myndi kosta 5 milljarða evra á 10 ára tímabili. Gildistími samningsins er til 35 ára. Byggt á uppfinningu frá Sovétríkjunum sálugu Margir telja að ITER sé allt of stór og þungur í vöfum fyrir tilraunir með kjarnasamruna. Reyndar skrifuðu forsvarsmenn ITER undir samstarfssamning við yfirvöld í Kazakhstan þann 12. júní síðastliðinn um að fá aðgang að KTM Tokamak ofni þeirra til að gera efnatilraunir fyrir ITER. Þess má geta að Tokamak var fundinn upp af eðlisfræðingunum Igor Tamm og Andrei Sakharov í Sovétríkjunum sálugu á sjötta áratug síðustu aldar. Byggðu þeir uppfinningu sína á frumhugmyndum hugsuðarins Oleg Lavrentiev sem var í allt öðrum fræðum (Etymology). Hans sérgrein var að rannsaka sögu og uppruna orða, meiningu þeirra og breytingar í gegnum tímann. Ótakmörkuð orka við 100 milljón gráður Talið er að 100 °C sé sá þröskuldur sem hægt er að ná með þessari gerð kjarnasamrunaofna. Við slíkan hita umbreytast vetnissameindir í helíum og gefa frá sér nær ótakmarkaða hreina orku, að því er segir í Science alert. Sagt mikilvægt framlag einkaaðila David Kingham, forstjóri Tokamak Energy sem stendur á bak við ST40 tilraunina, segir að þetta hafi verið mikilvægur dagur í sögu kjarna- samruna orkunnar í Bretlandi og heiminum öllum. „Við eru að opna fyrir fyrsta ofn heimsins sem hannaður hefur verið og rekinn af einkaaðilum fyrir stýrðan kjarnasamruna. ST40 er tæki sem mun sýna fram á að hægt er að ná 100 milljóna gráðu hita í kjarnasamruna á hagkvæman hátt. Þetta mun leiða til þess að hægt verður að virkja nýtanlega kjarasamrunaorku innan nokkurra ára en ekki áratuga,“ segir Kingham. Ef þetta tekst verður hægt að framleiða nær ótakmarkaða hreina orku með því að bræða saman atóm í stað þess að sundra þeim eins og gerist í kjarnorkuverum. Hráefnið er nær eingöngu salt og vatn og úrgangurinn er helíum gas. Það er þó ekki einfalt að ná þessu marki. Engin efni eru þekkt sem haldið geta svo miklum hita í ofni. Því verður að framkvæma kjarnasamrunann í gríðarlega öflugu segulsviði, þannig að ofurheitur plasminn snerti aldrei ofninn sjálfan. Nokkrir áfangasigrar hafa þegar unnist. Þannig náðu vísindamenn við MIT stofnunina í Bandaríkjunum því að setja met í plasma þrýstingi í október 2016. Í desember urðu vísindamenn í Suður-Kóreu síðan fyrstir til að framkalla 300 milljóna gráðu hita á Celsius og halda honum stöðugum í 70 sekúndur. Í Þýskalandi hefur tekist að halda stjórn á plasma í nýjum kjarnasamrunaofni sem nefndur hefur verið Wendelstein 7-X. Þrátt fyrir þann árangur sem náðst hefur er samt enn langt í land. Finna þarf hagkvæma leið til að framkalla plasma sem nær jafnframt nógu miklum hita til að kjarasamruni geti átt sér stað þannig að hægt sé að virkja hitann. /HKr. ST40 Tokamak kjarnasamrunaofninn í Bretlandi. Mynd / ST40 Frá byggingarstað ITER kjarna samrunaofnsins sem verið er að smíða í Saint-Paul-lez-Durance í Suður-Frakklandi. Það er risavaxið verkefni allra helstu stórþjóða heims upp á milljarða evra. Mynd / ITER ST40 Tokamak kjarnasamrunaofninn í Bretlandi er eins og lítið ferðagrill í samanburði við þetta ferlíki í Frakklandi. Mynd / ITER halda ofurhitanum í skefjum. ROP kynnir „nýja“ aðferð við geymslu á brokkólí: Plastpokar í stað ískælingar Í vefriti Israel Agri 8. júní er greint frá nýjungum í pökkun á grænmeti. Þar er rætt um aðferð sem þróuð hefur verið af ROP og sérstökum „XC-Broccoli retail“ plastpokum sem fyrirtækið selur. Þar mun þó að því er virðist ekki vera um nein geimvísindi að ræða. Við flutninga á grænmeti eins og viðkvæmu brokkólíi um langan veg á markað í heitari löndum með flutningabílum eða flugvélum, hefur gjarnan verið mokað ís yfir það til kælingar svo það skemmist síður. Þetta hefur í för með sér margvíslega ókosti auk þess að auka þyngd vörunnar í flutningi. Aðferð sem ROP hefur kynnt miðar að því að minnka kostnað í flutningi og draga úr hættu á örveru- myndun og skemmdum sem orðið getur þegar ísinn þiðnar. Samt sem áður á aðferð ROP að tryggja fersk- leika og gæði pakkaðs brokkólí í langan tíma, eða allt að mánuði við 1 til 3 gráður á Celsíus. Einnig er þessi aðferð sögð tryggja gæði í allt að viku í hillum verslana við 16 til 18 gráðu hita. Þá er aðferðin sögð koma í veg fyrir að brokkólí gulni og í því myndist mygla. Það á líka síður að svertast vegna oxunar og haldast lengur stíft og ferskt en ella. Í raun virðist ekki vera um annað að ræða en að plastpokarnir eru ekki hafðir stærri en nauðsynlegt er. Við pökkun er síðan tryggt að loftmagnið í pokunum verður eins lítið og mögu- legt er, eða um eða innan við 10%, og tryggt með góðri lokun svo að loft komist heldur ekki inn í pokann. Vart er hægt að kalla þetta geimvísindi, en svo virðist sem þetta virki samt vel. /HKr. Brokkólí á pökkunardegi komið í „XC-Broccoli retail“ poka. Sama brokkólí eftir 32 daga í kæli við 3°C.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.