Bændablaðið - 11.05.2017, Page 22

Bændablaðið - 11.05.2017, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 Áhugavert er að horfa á stöðu raforkumála í heiminum öllum eins og fram kom á ársfundi Landsvirkjunar. Þar er Ísland með nær alla sína framleiðslu með endurnýjanlegum orkugjöfum, ef jarðvarmaorkan er talin þar með, á meðan raforkuframleiðsla með gasi og kolum er og verður áfram hlutfallslega umfangsmesti þátturinn á heimsvísu. Á árinu 2014 nam raforku- framleiðsla með vatnsafli um 16% af heimsframleiðslunni sem var samanlagt 23.800 TW stundir. Þá kjarnorka með um 11%, en kol með 22% og olía með 41%. Vind-, sólarorka og annað var samanlagt með um 10%. Aukin framleiðsla með vatnsafli en hlutfallið samt óbreytt Þó gert sé ráð fyrir umtalsverðri aukningu á framleiðslu raforku sem fari í 39.000 TW stundir fram til 2040 þá mun aukin framleiðsla með vatnsafli þó samt enn ekki skila hærra hlutfalli en 16% af heildarframleiðslunni. Kol verða áfram stærsti orkugjafinn til raf- orkuframleiðslu, eða 28%, og gas með 23%. Nýting kjarnorku til raforkuframleiðslu mun aukast samkvæmt spánni í 12%, en hlut- fall vindorku mun aukast í 10%, sólarorku í 6% og aðrir orkugjafar munu skila um 5%. Losun kolefnis vegna raforkuframleiðslu mun aukast Þó þessi þróun sé um sumt hag- stæð fyrir aukna nýtingu vistvænna orkugjafa, þá er hún ekki geðfelld hvað varðar losun kolefnis, eða CO2, út í andrúmsloftið. Sú losun vegna raforkuframleiðslu nam 13,5 milljörðum tonna árið 2014, en mun aukast í 14,4 milljarða tonna árið 2040. Þetta mun gerast þrátt fyrir niðurgreiðslur til umhverfisvænnar raforkuvinnslu. Lækkun kostnaðar við nýtingu umhverfisvænnar orku Ljósu punktarnir í þessu eru þó Staða Landsvirkjunar er góð og í áhættumati vegna fjárfestinga er það í BBB flokki, eða í næsta flokki á eftir stórfyrirtækjum eins og Dong Energy, Vattenfall og Fortum. Er það nú metið þrem flokkum hærra en það var árið 2013. Þetta kom m.a. fram á ársfundi Landsvirkjunar 2017 sem fór fram á Hilton Reykjavík Nordica mið- vikudaginn 26. apríl síðastliðinn. Yfirskrift fundarins var: „Þarf fram- tíðin orku?“ Þar kom fram í ræðum Harðar Arnarsonar forstjóra og Rögnu Árnadóttur aðstoðarforstjóra, að afkoman af grunnrekstri 2016 þyki ásættanleg þrátt fyrir nokkurn samdrátt í raforkusölu milli ára sem stafar af rekstrarvanda viðskipta- vina. Nam salan 2016 um 13,6 terawattstundum. Þá minnkaði hagnaður einnig milli ára og var hann 118 milljónir dollara, en þess má geta að hann var 90 milljónir dollara árið 2010. Fé frá rekstri nam um 200 milljörðum króna. Þá fóru um 90 milljarðar í fjárfestingar og um 100 milljarðar í lækkun skulda. Þá skilar Landsvirkjun eigendum sínum, eða íslenska ríkinu, 8 milljörðum króna í arðgreiðslur. Samkvæmt áætlun fyrir árin 2020 til 2025 er gert ráð fyrir veru- legri aukningu fjár frá rekstri og að arðgreiðslur verði orðnar um 110 milljarðar króna. Arðgreiðslur fari í sérstakan sjóð Fjármála- og efnahagsráðherrann Benedikt Jóhannesson sagði í sínu ávarpi á fundinum að það væri vissulega freisting að láta auknar arðgreiðslur renna í ríkissjóð til að nota í hefðbundnum rekstri. „Ég er aftur á móti þeirrar skoðunar að heppilegra sé að búið verði svo um hnúta að þessar sérs- töku greiðslur fari í sjóð til sérstakra nota. Þessi not gætu verið marg- vísleg: Sveiflujöfnun í hagkerfinu, trygging gegn alvarlegri náttúruvá, kynslóðajöfnun eða stuðningur við nýsköpun og þróun. Allt eru þetta dæmi um not sem hægt er að hugsa sér, sum geta gengið saman en með önnur markmið geta þau stangast á.“ Ráðherra sagði að miðað við sviðsmyndir sem upp hafi verið dregnar gæti sjóðurinn stækkað býsna hratt þannig að í hann bættust á hverju árið arðgreiðslur sem gætu numið milli 0,5 og 0,8% af vergri landsframleiðslu (VLF), eða milli 10 og 20 milljarðar króna á ári. „Með þessu móti gæti sjóðurinn á tíu árum hafa vaxið í nærri 7% af VLF og á 20 árum upp í um 20% af VLF, ef miðað er við hóflega ávöxtun og 15 milljarða framlag á ári,“ sagði ráðherrann. Ákvörðun um sæstreng til Bretlands ekki á dagskrá Benedikt Jóhannesson minntist einnig á hugmyndir um lagningu sæstrengs frá Íslandi til Bretlands sem m.a. hefur verið eitt af stefnu- málum Landsvirkjunar. Um það sagði ráðherrann: „Rætt hefur verið um rafstreng til Englands sem flytti orku frá Íslandi til Bretlands. Ljóst er að sú framkvæmd yrði afar dýr og ef af henni yrði er ekki vænlegt eða æski- legt að íslensk stjórnvöld komi að henni með beinum hætti. Ljóst er að áður en til slíks kæmi þarf að ljúka umræðu um það hér á landi hvort við teljum æskilegt að flytja orku út með þeim hætti. Auðvitað flytjum við út orku nú þegar í álstöngum og fleiri afurðum, þannig að hér yrði ekki um grundvallarbreytingu að ræða þó að formið væri með öðrum hætti. Á Íslandi hafa stjórnmála- menn oft einblínt á að skapa störf en ekki horft nægilega á arðsemi þeirrar starfsemi sem hingað hefur flutt, til dæmis fyrir Landsvirkjun. Umræða um þetta mál er alls ekki orðin nægilega þroskuð til þess að hægt sé að ganga frá samningum um slíkan streng.“ Íslendingar á tímamótum Í ávarpi Jónasar Þórs Guðmunds- sonar, stjórnarformanns Lands- virkjunar, kom fram að Íslendingar stæðu að mörgu leyti á tímamótum. „Eftir mikla uppbyggingu raf- orkukerfis, sem hefur staðið undir fjölbreyttu athafnalífi og átt þátt í því að tryggja okkur lífskjör og hagsæld sem jafnast á við það besta sem gerist í heiminum, heyrast þær raddir að við ættum að láta staðar numið. Væri okkur stætt á því? Þurfum við yfirhöfuð meiri orku? Þetta er athyglisverð spurning og það er ástæðulaust að gera lítið úr henni, en til að svara verðum við að átta okkur á því hver fórnarkostnaðurinn yrði, ef slík ákvörðun væri tekin,“ spurði Jónas. „Margar náttúruperlur okkar Íslendinga eru svo stórbrotnar og mikilfenglegar að þær verður að vernda fyrir komandi kynslóðir. Ábyrgð okkar í því efni er mikil. Eigi að síður er engum vafa undir- orpið, í mínum huga, að unnt er að nýta auðlindir okkar í meiri mæli en nú er gert, án þess að ganga á verð- mætar náttúruperlur. Það gildir bæði um ný svæði og svæði sem þegar hafa verið tekin undir orkuvinnslu. Að því er síðarnefndu svæðin varð- ar hefur hjá Landsvirkjun verið lögð mikil áhersla á að nýta þau betur. Þar eru enn umtalsverð tækifæri. Orkuvinnsla getur farið fram í sátt við þá sem njóta náttúrunn- ar. Í því sambandi má nefna að nýleg rannsókn Háskóla Íslands leiddi í ljós að 92% ferðamanna við Blönduvirkjun töldu ósnortin víðerni hluta af aðdráttarafli svæðisins þótt þar mætti sjá ýmis virkjunarmannvirki. Þá töldu 89% ferðamanna svæðið í kringum Blönduvirkjun náttúrulegt, en um 7% manngert. Þótt af þessum niður- stöðum Háskóla Íslands megi ekki draga of víðtækar ályktanir er ljóst að orkuvinnsla, náttúruvernd og ferðamennska geta farið saman ef vandað er til verka,“ sagði stjórn- arformaðurinn. /HKr. Landsvirkjun skilar 8 milljarða króna arði – Því er spáð að arðgreiðslur munu nema um 110 milljörðum fram til 2025 Búðarhálsvirkjun. Myndir / Landsvirkjun Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar. Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Lands virkjunar. Jónas Þór Guðmundsson, stjórnar- formaður Lands virkjunar. Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra. Kol og gas áfram stærstu póstarnir í raforkuframleiðslu heimsins

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.