Bændablaðið - 11.05.2017, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 11.05.2017, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 Hleðslustöðvar á sveitabæjum geta stóraukið notkunarmöguleika rafbílanna – Skapar fullt af tækifærum fyrir bændur og gistiþjónustufyrirtæki úti um land, segir sölustjóri hjá Johan Rönning Óskar Gústavsson, sölustjóri hjá Johan Rönning í Klettagörðum í Reykjavík, segir að mörgu þurfi að huga að þegar rætt er um þéttingu á hleðsluneti fyrir rafbíla hringinn í kringum landið. Þar þurfi menn í fyrsta lagi að gera sér grein fyrir þörfinni, orkumöguleikum og raflögnum þar sem stöðvarnar eru settar upp. Hugmyndir um að bændur landsins komi upp rafhleðslustöðvum við bæi sína til að þétta hleðslunet fyrir rafbíla við þjóðveginn hefur vakið töluverða athygli. Fjölmargir bændur hafa sýnt málinu áhuga og sjá í þessu tækifæri til að skjóta fleiri stoðum undir sinn rekstur. Nokkur fyrirtæki bjóða þegar upp á sölu margs konar hleðslustöðva fyrir rafbíla eins og Litsýn, sem er þó aðallega með einfasa 16 til 32 ampera stöðvar í boði. Þá má líka nefna Ludviksson ehf. í Hafnarfirði og trúlega fleiri. Að öðrum ólöstuðum hefur fyrirtækið Johan Rönning í Klettagörðum verið þarna í fararbroddi. Það er með EVlink stöðvar frá fjölþjóðafyrirtækinu Schneider Electric í Frakklandi sem er með starfsemi í 100 löndum og er með um 144 þúsund starfsmenn. Hafa t.d. allar hleðslustöðvar sem Orkusalan gaf sveitarfélögum um land allt komið frá Johan Rönning og birgjum þess fyrirtækis. Að mörgu að hyggja Óskar Gústavsson, sölustjóri hjá Johan Rönning, segir að mörgu að hyggja fyrir bændur sem hafa áhuga á að setja upp hleðslustöðvar við bæi sína. „Varðandi notkun á rafmagns­ bílum þurfa menn að hafa í huga hver þörfin sé fyrir slíkar stöðvar. Þá þarf að átta sig á því hversu mikill akstur sé á bílum daglega. Innanbæjar á höfuðborgarsvæðinu er daglegur akstur á slíkum bílum vart meiri en 50 til 60 kílómetrar á dag. Til sveita geta vegalengdir verið miklu meiri. Þótt vegalengdir séu meiri, þá þarf það ekki að vera svo slæmt sé litið til hagkvæmni miðað við bensínknúinn bíl. Ástæðan er hversu ódýr orkan er á hvern kílómetra fyrir rafbílinn miðað við bensínbílinn.“ Í sveitunum kann því orkudrægni bílsins eða hversu langt hægt er að aka á rafhleðslunni að vega mun þyngra en í þéttbýlinu. Ef orkurýmdin á geymum bílsins dugar ekki fyrir þau verkefni sem þarf að sinna innan dagsins, þá verður að hafa í huga að það tekur drjúgan tíma að hlaða raforku á geymana. Meiri orkurýmd rafgeyma kallar á hleðslustöð „Það er í lagi þótt menn nýti alla drægni bílsins innan dagsins en þurfa svo ekki að nota hann aftur fyrr en daginn eftir. Þá er einfalt að stinga honum í samband að notkun lokinni og hlaða hann yfir nóttina. Ef rýmdin í geyminum er það lítil að hægt er að hlaða bílinn í gegn­ um venjulega rafmagnsinnstungu þá er það hið besta mál. Ef orkurýmd geymanna er hins vegar það mikil að ekki er hægt að fylla á rafgeymana í gegnum venjulega innstungu nema á tveimur til þrem sólarhringum, þá þarf hleðslustöð.“ Óskar segir að hleðslustöðvar séu í raun ekkert annað en öryggisventill Óskar Gústavsson, sölustjóri hjá Johan Rönning í Klettagörðum í Reykjavík, við EVlink-rafhleðslustöðvar frá stórfyrirtækinu Schnider Electric. Mynd / HKr. Það virðist ekki flókið að hlaða raforku á bíla, en að mörgu þarf þó að hyggja við uppsetningu tækjanna. Mynd / EVlink Hleðslustöðvarnar frá Schnider eru af ýmsum stærðum og gerðum og í mismunandi verðflokkum. Mynd / EVlink
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.