Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Það hlýtur að teljast til stórtíð-
inda þegar jafn rótgróinn risa-
framleiðandi á landbúnaðarvél-
um og John Deere velur sér nýjan
umboðsaðila á Íslandi. Ekki síst
þar sem John Deere, sem er eitt
þekktasta dráttarvélarmerkið á
heimsvísu, hefur verið umboðs-
laust hérlendis í fjölda ára.
Fyrirtækið sem hlaut blessun lög-
fræðinga og stjórnenda John Deere
sem nýr umboðsaðili er Íslyft ehf.
í Kópavogi. Það hefur helst verið
þekkt fyrir að selja hina þekktu
þýsku Linde-lyftara. Bændablaðinu
lék forvitni á að vita hvernig það bar
til að John Deere samdi við Íslyft um
að vera umboðsaðili á Íslandi.
Í raun tilviljun
Sigurður Tómasson, sölumað-
ur hjá Íslyft, tók tíðindamanni
Bændablaðsins fagnandi þrátt fyrir
miklar annir. Hann sagði að tilkoma
þessa samstarfs hafi í raun verið til-
viljun.
„Steinbock þjónustan/Íslyft er
fyrirtæki sem er búið að vera á sömu
kennitölu síðan 1972.
Fyrirtækið hóf starfsemi sína í
viðgerðum á lyfturum og það hlóð
síðan utan á sig. Fljótlega var farið að
selja lyftara og síðan tók Íslyft að sér
umboð fyrir hina þýsku Linde-lyftara
2003. Þetta hafa verið mest seldu
lyftararnir á Íslandi í 20 ár. Þá tókum
við líka að okkur umboð fyrir Merlo
sem er m.a. með skotbómulyftara og
hefur gengið gríðarlega vel.
Við höfum meðal annars verið
að selja þessi tæki til útgerða, fisk-
vinnslu, álvera og sérhæfð tæki fyrir
vöruhús. Þar er bæði um að ræða
rafmagns- og dísillyftara.
Hin síðar ár höfum við svo verið
að fara meira inn á landbúnaðar-
markaðinn með Merlo og Pixy
liðléttinga og nú einnig með John
Deere.“
Sigurður segir að erlendis
tíðkist mikið að bændur noti
skotbómulyftara í sínum rekstri.
Nokkuð er orðið um slíkt hérlendis
líka og hefur farið vaxandi og þar
kemur Merlo inn í dæmið.
Náðu tengingu við bændur í
gegnum sölu skotbómulyftara
„Svo er Merlo líka með það sem þeir
kalla Multifarmer, sem er stór vél
með þrítengibeisli, aflúrtaki og öllu
sem þörf er á. Á síðasta ári seldum
við einar 14 vélar af þeirri gerð.
Árið 2015 fórum við að selja
Pixie liðléttinga sem hefur gengið
mjög vel. Á síðasta ári seldum við
22 slíka. Þannig höfum við verið að
fikra okkur inn á bændamarkaðinn,“
segir Sigurður.
Áhuginn jókst eftir heimsókn á
sýningu
„Við ætluðum svo sem ekkert að
fara út í sölu dráttarvéla og töldum
okkur góða með dráttarvélaútgáf-
una af Merlo. Við fórum svo á Eima
landbúnaðarsýninguna í Bologna á
Ítalíu 2016 í þeim tilgangi að hitta
Merlo og Pixy.
Fyrir þessa sýningu var John
Deere búinn að setja sig í samband
við okkur varðandi viðræður og lá
því beint við að kíkja á básinn hjá
þeim á sýningunni.
Það má með sanni segja að áhugi
okkar hafi stóraukist þegar við sáum
þennan glæsilega sýningarsal þar
sem þeir sýndu stóran hluta af sinni
framleiðslu.
Þeir ítrökuðu þar að verið væri
að leita að umboðsaðila fyrir John
Deere á Íslandi, þar sem enginn
umboðsaðili hafi verið fyrir merk-
ið á landinu síðan 2008. Síðan hafi
ekki verið seld nein ný vél beint
frá John Deere til Íslands, einungis
vélar í gegnum erlenda milliliði.
Eftir þetta spjall fórum við heim.
Nokkru seinna höfðu John Deere-
menn aftur samband við okkur og
spurðu okkur hvort við vildum ekki
skila inn umsókn, en þrjú fyrirtæki
á Íslandi voru þá búin að sækja
um að gerast umboðsaðilar. Þeir
hafi verið að skoða málið og lit-
ist vel á okkur eftir spjallið á sýn-
ingunni. Við vorum svolítið hissa
og greinilegt að þeir voru búnir að
skoða okkar feril og fjárhagsstöðu
mjög vel. Eftir að hafa rætt málið
ákváðum við að taka þátt í þessum
viðræðum. Við bjuggumst svo sem
ekkert við að verða fyrir valinu, en
vissum heldur ekkert hver hin fyr-
irtækin voru.
Í framhaldinu erum við boðaðir
út á fund og síðan fleiri fundi. John
Deere er amerískt fyrirtæki og mjög
strangt í öllu sem þeir gera og setja
gríðarlegar kröfur á sína umboðs-
aðila. Þar þarf allt að vera 100% og
eiginfjárstaða umboðsaðila að vera
mjög góð.“
Þekktu vel til Linde
„Aðalverksmiðja John Deere utan
Bandaríkjanna er í Mannheim í
Þýskalandi. Það er að finna stærstu
verksmiðju utan Bandaríkjanna
en þaðan fara út um 240 vélar á
dag. Verksmiðjur Linde-lyftaranna
eru þar ekki langt frá, eða í
Aschaffenburg, og eru talsverð
samskipti milli fyrirtækjanna. John
Deere notar t.d. eingöngu Linde-
lyftara í sínum verksmiðjum og
nokkrir umboðsaðilar John Deere
eru einnig Linde-umboðsaðilar.
Teljum við að þetta atriði hafi styrkt
okkur í samningaviðræðunum.
Það sem aðskilur John Deere
frá flestum öðrum dráttar véla-
framleiðendum er að þeir framleiða
alla hluti sjálfir en kaupa ekki t.d.
hús, ámoksturstæki, mótora eða
gírskiptingar af öðrum,“ segir
Sigurður.
John Deere lætur þýða alla
bæklinga á íslensku
Sigurður nefnir líka áhugaverðan
punkt hvernig stjórnendur John
Deere vinna.
Þrátt fyrir að þess sé ekki krafist
hér á landi að eigandahandbók og
bæklingar séu á íslensku þá afhendir
John Deere engin tæki fyrr en búið
er að þýða allar handbækur.
Hefur Íslyft ekkert þurft að
koma að því máli en þetta gerir John
Deere allt á sinn kostnað.
„Við fáum bara ekki afhenta nýja
vél til landsins nema að það sé búið
að þýða bæklinga,“ segir Sigurður.
Misstu trú á Íslandi
en snerist hugur
Sigurður segir að vissulega sé Ísland
örmarkaður þegar kemur að dráttar-
vélum. Eftir að hafa verið umboðs-
lausir frá 2008 hafi áhugi á Íslandi
smátt og smátt aukist enda er John
Deere markaðsleiðandi í flestum
löndum Skandinavíu.
Eftir að þrjú íslensk fyrirtæki
höfðu lýst áhuga á að taka við
umboðinu ákváðu stjórnendur John
Deere að reyna aftur. Niðurstaðan
var svo að samið var við Íslyft.
Sigurður segir að það hafi reynd-
ar komið þeim hjá Íslyft á óvart að
hér væru skráðar um 330 dráttarvél-
ar af þessari tegund.
Koma fram við Íslendinga eins
og aðra fulltrúa milljónaþjóða
John Deere er elsti dráttarvélafram-
leiðandi í heimi, en það var stofnað
1837. Sigurður sagði að það hafi
komið þeim Íslyftsmönnum á óvart
að hjá John Deere sé komið fram
við íslenska umboðsmenn á þessum
örmarkaði eins og alla aðra umboðs-
menn þeirra hjá milljónaþjóðunum.
„Þeir sendu hingað fjölda
manna, hvern á sínu sviði, til að
fara yfir alla þætti. Þeir voru boðn-
ir og búnir að aðstoða okkur á allan
hátt og litu greinilega ekki á okkur
sem fulltrúa smáþjóðar þótt við
séum það. Á móti gera þeir líka
miklar kröfur.“
Íslyft með útibú á Akureyri fyrir
John Deere og Linde
„Til að standa okkur í þessu erum
við nú að fara að byggja á Akureyri
yfir starfsemina, en þar erum við
búnir að fá lóð og við vonum að
húsið verði komið upp öðru hvor-
um megin við næstu áramót. Þessi
viðbót er löngu orðin tímabær
enda höfum við fengið fjölmargar
áskoranir um að koma norður.
Við erum þegar búnir að ráða
mann til að stýra okkar starfsemi
á Akureyri en það er Kristján
Skjóldal, sem var með lyftaraþjón-
ustu Norðurlands. Til að byrja með
höfum við komið okkur þar fyrir í
leiguhúsnæði.
Akureyri liggur vel við til frek-
ari uppbyggingar Íslyft þar sem
við erum þegar með mikil við-
skipti þar við stór sjávarútvegs-
fyrirtæki, skipafélög og önnur
flutningafyrirtæki.
Þar stefnum við á að vera með
5–6 nýjar vélar á lager af 5 og 6
línunum, sem eru frá 75 til 195
hestöfl. Svo verðum við líka með
golfvallartæki frá John Deere og
höfum þegar selt fjórar nýjar vélar.
Á því sviði er John Deere mjög
sterkt.
Þrátt fyrir að það sé frekar
þröngt um okkur í Kópavoginum
munum við einnig vera með góðan
lager af dráttarvélum og varahlut-
um auk lyftaranna og viðgerðar-
þjónustu eins og verið hefur.
Við erum þegar búnir að byggja
upp stóran varahlutalager frá John
Deere og munum við vera með
á lager um 80% af öllum helstu
varahlutum sem búast má við að
þurfi að nota hverju sinni.
Öll okkar viðskipti fara fram í
gegnum verksmiðju John Deere í
Þýskalandi.
Við erum þegar búnir að semja
við verkstæði allt í kringum landið
til að annast fyrir okkur þjónustu
við John Deere. Þar eru vanir
menn, bæði í viðgerðum á John
Deere og öðrum tegundum. Svo
hafa verið að fara menn frá okkur
á námskeið í viðgerðum hjá John
Deere og þrír menn af þessum
þjónustuverkstæðum hafa þegar
farið á slík námskeið.“
Rafvæðingin að ná fótfestu
Eins og áður hefur komið fram í
Bændablaðinu hefur John Deere
þegar kynnt stóra rafknúna drátt-
arvél. Sigurður segir allt benda til
að rafdrifinir lyftarar búnir lithium
rafhlöðum muni líka smám saman
taka yfir hlutverk dísillyftaranna.
Íslyft hafi þegar töluverða
reynslu í sölu lítilla rafknúinna
pall- og þjónustubíla frá Goupil
í Frakklandi sem framleitt hafi
slíka bíla frá 1996. Hægt er að skrá
þessa bíla sem almenn ökutæki eða
sem vinnuvélar. Þessir bílar kom-
ast um 100 km á hleðslunni og ná
allt að 50 km hraða.
Einnig er John Deere eitt
stærsta og þekktasta fyrirtæki í
framleiðslu á tækjum fyrir golf-
velli og eru vörur frá þeim í þjón-
ustu við fjölda golfvalla hér á
landi.
Hefur fyrirtækið t.d. verið
einn helsti styrktaraðili PGA-
mótaraðarinnar í Bandaríkjunum
síðastliðin 20 ár. /HKr.
Dráttarvélarisinn John Deere komið með nýjan umboðsaðila á Íslandi eftir margra ára hlé:
Íslyft mun byggja útibú fyrir John
Deere og Linde á Akureyri
Sigurður Tómasson.
-