Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Brunatæknifélag Íslands stóð fyrir árlegu Brunaþingi á Hótel Natura:
Brunavarnaþing 2017
– Brunahönnun, brunavarnir, eldvarnareftirlit, reynsla bænda og velferð dýra meðal umfjöllunarefna
Brunavarnaþing 2017 var haldið
á Hótel Natura 28. apríl síðast-
liðinn. Fjallað var um eldvarnir í
landbúnaði frá nokkrum hliðum;
til dæmis um eldvarnareftirlit,
reynslu bænda, velferð dýra
og hönnun bygginga með tilliti
til eldvarna. Brunatæknifélag
Íslands stóð að þinghaldinu.
Sex fyrirlesarar fluttu erindi
um mismunandi hliðar á eldvörn-
um til sveita; Snorri Baldursson,
fyrrverandi eldvarnaeftirlitsmaður
hjá Brunavörnum Árnessýslu, flutti
erindið Eldvarnaeftirlit og ástand
til sveita, Norðmaðurinn Jan-
Pette Breilid, bygginga- og bruna-
verkfræðingur hjá slökkviliðinu
í Ringsaker í Noregi, ræddi fyrir
kaffihlé um reynslu Norðmanna af
eldvörnum til sveita. Eftir kaffi-
hlé flutti Atli Rútur Þorsteinsson,
verkfræðingur hjá Eflu, erindi
undir yfirskriftinni Brunahönnun
landbúnaðarbygginga, næst sagði
Júlíus Már Baldursson, landnáms-
hænsnabóndi í Þykkvabænum,
reynslusögu sína af því þegar bær
hans, Tjörn á Vatnsnesi, brann, þá
sagði Guðmundur Hallgrímsson,
sem starfar meðal annars í slökkvi-
liði Borgarbyggðar, frá brunavarna-
verkefnum á Vesturlandi og loks
flutti Elísabet Hrönn Fjóludóttir,
héraðsdýralæknir á Vesturlandi,
erindi um velferð dýra og bruna-
varnir – í samhengi við gildandi
lög og reglur.
Árlegt Brunaþing
Brunatæknifélag Íslands er vett-
vangur áhugafólks um brunamál og
er auk þess að hluta til Íslands-
deild Institution of Fire Engineers
(skammstafað IFE). Íslandsdeildin
var stofnuð formlega árið 1991 og
hefur starfað samfleytt síðan.
Brunatæknifélagið hefur haldið
árlegt Brunavarnaþing frá árinu
1999 og heldur á hverju ári einnig
allmarga félagsfundi um ýmis mál-
efni sem snerta brunavarnir.
/smh Gestir á Brunavarnaþingi 2017. Myndir / smh
Víða pottur
brotinn
Snorri Baldursson, fyrrver-
andi eldvarnareftirlitsmaður hjá
Brunavörnum, tók fyrstur til máls.
Hann sýndi myndir og tók nokkur
dæmi úr úttektum sínum hjá bænd-
um þar sem brunavarnir voru ekki
í lagi af ýmsum ástæðum í fjósum,
hesthúsum og fjárhúsum.
Í nokkrum dæmanna var aðgangur
að rýmingarleiðum ekki greiður og/
eða of fáar rýmingarleiðir og gjarn-
an voru einangrunarefni brennan-
leg. Þá skorti brunahönnun í þess-
um dæmum, jafnvel fyrir stórar og
nýlegar byggingar.
Brunaviðvaranir vantaði líka í
þessi dæmi frá Snorra.
Reynsla Norðmannsins
Jan-Pette Breilid
Jan-Pette Breilid, slökkviliðsmaður í
Ringsaker í Noregi, ræddi um stöðu
eldvarna til sveita í Noregi og reynslu
sína af eldsvoðum á bæjum, einkum
stórbrunanum sem varð á bænum
Stein gård í Ringsaker í október í
fyrra. Um 250 nautgripir voru í
fjósinu þegar eldur kom upp og tókst
að bjarga stórum hluta þeirra. Hann
sagði að eitt mikilvægasta heilræðið
sem hann gæti gefið starfssystkinum
sínum á Íslandi við slíkar aðstæður,
væri að halda ró sinni. Ef það takist
séu líkur á því að rýmingin takist
eins vel og mögulegt sé. Ekki megi
opna of mörg hólf í einu og alls ekki
hleypa nautum og kúm út samtímis.
Það sé jafnvel enn brýnna að halda
ró sinni þegar svín eigi í hlut. Beita
þurfi lagni til að ná grísum út. Fyrst
skuli ná gyltunni út úr hólfinu og
síðan grísunum einum í einu. Ef grís
streitist á móti, eigi að láta hann í
friði og taka þann næsta. Þegar sauð-
fé eigi í hlut skal opna öll hólf strax
og gott sé að setja eitthvað góðgæti
í fötu til að tæla það út. Byrja eigi
að opna fremstu hólfin, næst rým-
ingarleiðinni, og fikra sig síðan aftur.
Í sumum tilvikum ekki hægt að
bjarga dýrunum
Jan-Pette lagði áherslu á að í ein-
hverjum tilvikum, þegar ljóst er
að dýrunum verði ekki bjargað, sé
best að skilja þau eftir inni og leyfa
hitanum að hækka svo dauðastríðið
dragist ekki á langinn.
Brunahönnun
landbúnaðarbygginga
Atli Rútur Þorsteinsson,
verkfræðingur hjá Eflu, fjallaði um
brunahönnun landbúnaðarbygginga í
erindi sínu. Þar kom fram að markmið
og meginreglur byggingareglugerðar
númer 112 frá 2012 taki tillit til
öryggis dýra. Nokkrar sérreglur, eða
viðmiðunarreglur, gildi sérstaklega
fyrir landbúnaðarbyggingar. Við
brunahönnun sé einnig hægt
að taka mið af leiðbeiningum
Mannvirkjastofnunar og ýmsum
erlendum leiðbeiningum.
Uppfylla markmið og meginreglur
byggingareglugerðarinnar
Atli sagði að markmið
brunahönnunarinnar væri að
uppfylla markmið og meginreglur
byggingareglugerðarinnar, sem ýmist
væri hægt að gera með því að fylgja
viðmiðunarreglum eða hanna lausn
með frávikum frá þeim – sem oftast
væri raunin. Í þeim tilfellum þarf að
sýna fram á og rökstyðja að öryggi
sé sambærilegt hönnun sem uppfyllir
viðmiðunarreglur. Markmiðið
með brunahönnuninni er að sögn
Atla að tryggja öryggi fólks, dýra,
viðbragðsaðila og eignavernd.
Fram kom að brunahönnun
kæmi oftast til þegar um stærri
landbúnaðarbyggingar væri að ræða.
Almennt væru það byggingar sem
hefðu burðarvirki úr stálvirki eða
límtré. Veggir og þök væru oft klædd
með stálklæddum samlokueiningum,
eða með steinsteypta veggi og timbur
eða stál í þaki. Timburbyggingar væru
orðnar algengari á Norðurlöndunum
en áður, sem væri krefjandi með
tilliti til brunahönnunar. Atli tók
einfölduð dæmi um brunamótstöðu
burðarbita, sem allir eru hannaðir
fyrir sama álag. Óvarinn stálbiti
hefði þannig brunamótstöðu í um 22
mínútur, límtrésbiti í um 63 mínútur
og steinsteyptur biti í um 90 mínútur.
Því væri mikilvægt að brunavarnir
taki mið af burðarvirkjum, hægt er
að tryggja brunamótstöðu stálvirkja
til dæmis með reyklosun.
Varðandi klæðningar og einangrun
sagði Atli að gerðar væru kröfur
í brunahönnun um að klæðningar
innanhúss væru óbrennanlegar – væru
byggingarnar stærri en 200 fermetrar,
að einangrun væri óbrennanleg –
eða á steyptu yfirborði og klædd
af án holrúma að einangruninni.
Stálklæddar samlokueiningar með
plasteinangrun væri leyfileg með
takmörkunum. Í brunahönnun þarf
að sýna fram á að slík einangrun sé
áhættulítil.
Fullgilt viðvörunarkerfi skylda
í stærri byggingum
Atli sagði að reglugerðin gerði kröfu
um fullgilt brunaviðvörunarkerfi í
byggingum sem væru stærri en
1.000 fermetrar. Í leiðbeiningum
Mannvirkjastofnunar kæmi auk
þess fram að alltaf þyrfti að setja
upp brunaviðvörunarkerfi ef
tæknibúnaður eins og mjaltaþjónar
væru í sama rými og gripirnir. Hægt
væri að setja upp einföld kerfi ef
ekki væru gerðar kröfur um fullgilt
kerfi, en almennt væru reyksogskerfi
hentugust. Þau taka loftsýni stöðugt
og greina, auk þess að vera mjög næm
þó án þess að auka líkur á falsboðum.
Það sé sérstaklega mikilvægt að
tryggja að eldur uppgötvist fljótt í
landbúnaðarbyggingum, þar sem
viðbragðstími slökkviliðs getur
verið langur og slökkvistörf eru
almennt mjög krefjandi í dreifbýli.
Mikilvægt sé að aðilar kunnugir
staðháttum leiðbeini slökkviliði við
slökkvistörf og öflun slökkvivatns.
Við brunahönnun þarf að gera grein
fyrir viðbrögðum slökkviliðs og
slökkvivatnsöflun. Þannig verður að
auka brunavarnir ef viðbragðstími
er yfir 15 mínútur eða ef slökkvilið
er vanbúið.
Að ýmsu að hyggja
varðandi rýmingu
Varðandi rýmingu sagði Atli að
þar þyrfti að hyggja að ýmsu, enda
væru aðstæður mjög mismunandi.
Minnst tvennar dyr skulu vera á
hverju húsi, flóttaleiðir greiðfærar,
og einfaldar og breidd dyra fyrir dýr
skal vera að lágmarki 0,87 metrar en
fyrir stórgripi 1,2 metrar. Huga þurfi
sérstaklega að staðsetningu dyra með
tilliti til brunahættu innanhúss, auk
þess sem að mögulega þarf sérstakar
ráðstafanir utanhúss séu aðstæður
erfiðar eða ókunnar skepnunum,
svo sem að vetri til. Æskilegt sé að
rýming taki innan við klukkustund,
svo langan rýmingartíma þarf þó að
tryggja sérstaklega með öflugum
brunavörnum eins og reyklosun. Í
minni byggingum ætti að vera um
að ræða mun styttri rýmingartíma.
Úr þeim rannsóknum sem hafa
verið gerðar á rýmingartíma fyrir
mismunandi dýr kemur í ljós að það
tekur tvo menn klukkustund að rýma
500 sláturgripi úr stíum á svínabúi,
sama tíma tekur að rýma 550 kúa fjós
fyrir tvo menn og á sama tíma geti
tveir menn rýmt 30 hesta hesthús.
Varðandi fuglabú megi reikna með
að það taki tíu manns um klukkutíma
að rýma 5.000 hænur. Það sé í raun
ekki raunhæf björgun. Viðbótar
brunahólfun eða eitthvað slíkt þyrfti
hugsanlega að koma til, til að auka
öryggi og takmarka tjón.
Til að hefta útbreiðslu elds og reyks
eru gerðar kröfur um brunahólfun.
Rými fyrir dýr skulu þannig vera
sérstakt brunahólf auk þess sem
rými fyrir raf- og vélbúnað skulu vera
brunahólfuð. Hlöður, vélageymslur
og verkstæði skulu vera aðskilin frá
rýmum fyrir dýr. Gera þarf ráðstafanir
vegna brunavarna á svæðum þar sem
mjalta- og tæknibúnaður er í sama
rými og dýr – og á fóðursvæðum.
Algengasta útfærsla á ráðstöfun vegna
slíkra rýma er reyklosun. Slík útfærsla
takmarkar hita og útbreiðslu elds og
reyks, eykur öryggi við rýmingu og
eykur brunamótstöðu burðarvirkja.
Hægt er að nýta náttúrulega
loftræstingu til reyklosunar.
Áhrifamikil reynslusaga
Júlíus Már Baldursson hefur ræktað
íslensku landnámshænuna í 39 ár.
Hann sagði reynslusögu sína af því
þegar bærinn hans, Tjörn á Vatnsnesi,
brann í mars árið 2010, en það varð
til þess að hann flutti fáeinum árum
síðar í Þykkvabæinn og hélt búskap
sínum áfram þar.
Hann hafði vaknað við einhverja
dynki eða högg og haldið að einhver
væri uppi á þaki, en þar sem það gat
ekki verið fór hann að grennslast
fyrir um það. Þá kom í ljós að eldur
logaði í þakskeggi, út um alla glugga
og dyr á húsinu þar sem hænurnar
hans voru geymdar. Hann hringdi
þá strax á Neyðarlínuna og bað um
aðstoð, en Tjörn er tæpa 33 kílómetra
frá Hvammstanga, þar sem næsta
slökkvilið er, og tæpa 100 kílómetra
frá Blönduósi – en það komu bílar
frá báðum þessum bæjum. Það tók
slökkviliðið 55 mínútur að koma
að Tjörn. Júlíus sagði að það væri
talað um að Tjörn væri á svokölluðu
jaðarsvæði, auk þess sem ljóst var
að slökkviliðið á Hvammstanga var
fremur vanbúið, með gamla dælubíla
sem tæmdust fljótt. Þá þurfti að sækja
vatn í Tjarnará, en engar þrær eða
laugar voru til staðar sem annar
bíllinn hefði þá getað fyllt með vatni
úr ánni, á meðan hinn dældi á eldinn.
Júlíus sagði að það hefði í raun
verið mjög skrýtin tilfinning sem sat
eftir þegar slökkvistarfi var lokið.
Hann var einn í rafmagnslausu og
skemmdu íbúðarhúsi – og lífsstarfið
að stærstum hluta farið með
fuglahúsinu sem hrundi í brunanum.
Enga hjálp var svo að fá. Síðan tóku
við átök við tryggingafélagið sem
stóðu í 13 mánuði. Tjónið var metið
á 67 milljónir. Júlíus hafði talið sig
mjög vel tryggðan, en hann þurfti
samt á þremur lögmönnum að halda
og einum tryggingaráðgjafa – sem
þáðu samtals þrjár milljónir fyrir
aðstoðina – til að sækja 28 milljónir
fyrir hann sjálfan.
Eldsupptök voru rakin til bilunar í
tvöföldum tengli í bílskúr. Honum var
sagt eftir á að brunavarnirnar áttu að
hafa verið góðar á Tjörn, en við þessar
aðstæður virkuðu þær bara ekki. Það
var brunaslanga bæði í íbúðarhúsinu
og útihúsinu, sex slökkvitæki,
eldvarnarteppi og 25 reykskynjarar.
Eins og áður segir vaknaði Júlíus þó
ekki við reykskynjara, en hann segir
tekið að sér. Hér er dæmi um fjósbyggingu í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og
-
fræðihönnun.
landbúnaðarbygginga í erindi sínu.
Júlíus Már Baldursson.