Bændablaðið - 11.05.2017, Síða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Kynbótasýningar hefjast á Íslandi
í Hafnarfirði 22. maí en boðið
verður upp á 14 sýningar í ár
víðs vegar um landið fyrir utan
Fjórðungsmót Vesturlands sem
haldið verður að þessu sinni í
Borgarnesi.
Heimsmeistaramót íslenska hests-
ins verður haldið í Hollandi dagana
7.–13. ágúst. Stefnt er að því að 6
kynbótahross fari fyrir hönd Íslands
á mótið eins og verið hefur, í flokka
stóðhesta og hryssna; fimm, sex og
sjö vetra og eldri. Val kynbótahrossa
á HM verður að liggja fyrir 1. júlí í
ár og verður því valið úr kynbóta-
hrossum sem sýnd verða á sýningum
á undan þeirri dagsetningu.
Sýningaráætlun ársins og allar
reglur um kynbótasýningar má
finna á vef Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins, www.rml.is, undir
Búfjárrækt/hrossaækt. Hérna er
ætlunin að fara yfir nýjungar í
regluverkinu og fleiri atriði en
sýningaráætlun ársins er sem hér
segir:
• 22.05–26.05 Hafnarfjörður
• 29.05–02.06 Melgerðismelar
• 01.06–02.06 Fljótsdalshérað
• 29.05–02.06 Selfoss
• 06.06–09.06 Víðidalur í
Reykjavík
• 06.06–16.06 Gaddstaðaflatir
• 06.06–09.06 Borgarnes
• 12.06–16.06 Sprettur í
Kópavogi
• 12.06–16.06 Hólar í
Hjaltadal
• 28.06–02.07 Fjórðungsmót
Vesturlands
• 24.07–28.07
Miðsumarssýning Hólar í
Hjaltadal
• 24.07–28.07 Miðsumarssýning
Gaddstaðaflötum
• 21.08–25.08
Síðsumarssýning Selfossi
• 21.08–25.08 Síðsumarssýning
Borgarfjörður
• 21.08–25.08
Síðsumarssýning Dalvík
Fjórðungsmót á Vesturlandi
Fjórðungsmót verður haldið á
Vesturlandi í ár, nánar tiltekið í
Borgarnesi, dagana 28. júní – 2. júlí.
Hross sem eru í eigu aðila
á Vesturlandi, Vestfjörðum,
Húnavatnssýslum eða Skagafirði
eiga þátttökurétt á mótinu og
er miðað við að lágmarki 25%
eignarhlut.
Það er því mikilvægt að eigendur
kynbótahrossa fari yfir upplýsingar
um heimilisfang sitt í heimaréttinni í
WorldFeng en það er hægt að lagfæra
þær upplýsingar í flipanum Um mig
í heimaréttinni ef þær eru ekki réttar.
Ákveðinn fjöldi efstu hrossa í
hverjum flokki eiga þátttökurétt á
mótinu og er því ekki um einkunna-
lágmörk að ræða (sjá fjölda í töflu
hér að ofan). Miðað er við að 68
kynbótahross verði á mótinu.
Til að auðvelda bestu klárhrossum
með tölti að komast inn á mótið
verður 10 stigum bætt við
aðaleinkunn klárhrossa í sætisröðun
hrossa inn á mótið. Þetta er sama leið
og var farin fyrir síðasta landsmót
hvað klárhrossin varðar.
Þegar kynbótasýningarnar
byrja í vor verður birtur stöðulisti
í WorldFeng sem sýnir hvaða hross
eru inni á mótinu hverju sinni. Ef
fleiri en eitt hross eru jöfn í síðasta
sæti inn á mótið þá er þeim öllum
heimil þátttaka á mótinu. Eins
verða eigendur hrossa sem vinna
sér þátttökurétt á mótinu en ætla sér
ekki að mæta með þau af einhverjum
ástæðum beðnir um að láta vita fyrir
ákveðna dagsetningu, þannig að
hægt sé að bjóða hrossum sem eru
neðar á listanum þátttöku á mótinu.
Nýjar vinnureglur við
kynbótadóma
Tvær nýjar vinnureglur við
kynbótadóma taka gildi í vor. Fyrri
vinnureglan á við dóma á vilja og
geðslagi. Það hefur verið í gildi
vinnuregla sem segir að fari hrossið
ítrekað lengra en afmörkun brautar
segir til um geti það haft áhrif á dóma
á vilja og geðslagi. Þetta hefur ekki
þótt nægilega skýr regla og ekki
nógu vel til þess fallin að dómnefndir
meðhöndli á samræmdan hátt þegar
hrossi er riðið ítrekað lengra en
afmörkun brautar segir til um (það
er út fyrir 250 metrana sem afmarkar
brautina).
Ástæðan fyrir þessari reglu
er sú að gera dómnefndum betur
kleift að sjá þegar hrossið er hægt
niður í enda brautar og snúið við en
það er mikilvægt við mat á þjálni.
Ef hrossinu er riðið lengra en
afmörkun brautarinnar sjá dómarar
ekki niðurhægingar og viðsnúninga
nægilega vel og að sjálfsögðu merki
um óþjálni sé ekki hægt að hægja
hrossið niður og snúa við innan
brautar. Því hefur verið ákveðið að
taka í gildi skýrari reglu um þetta
atriði til að bæta mat á vilja og
geðslagi. Reglan er sem hér segir:
Til að bæta mat á samstarfsvilja
og þjálni skal, fyrir hærri
einkunnir fyrir vilja og geðslag,
horft til þess að hrossið sé hægt
niður á fet í viðsnúningum
á brautarendum. Ef ekki er
hægt að hægja hrossið niður
og snúa við innan afmörkunar
brautarinnar, þá er 8.0 hámarks
einkunn fyrir vilja og geðslag.
Þó má gera undantekningu
þegar um sýningu á mjög greiðu
stökki og skeiði er að ræða svo
fremi að niðurhægingin sé mjúk
og átakalaus. Hverfi hross úr
sjónsviði dómara eða sýnir mikla
óþjálni er 7.0 hámarkseinkunn
fyrir vilja og geðslag. Til að
hljóta hækkun fyrir vilja og
geðslag á yfirlitssýningu þarf að
sýna greinilega fram á að hægt
sé að hægja hrossið mjúkt og
átakalaust niður innan afmörkunar
brautarinnar.
Það er merki um þjálan og mikinn
vilja ef hægt er að hægja niður á
fet á flestum gangtegundum í enda
brautar og spinna hrossið upp til
afkasta endurtekið í plús og mínus
átt hestsins. Það skal því horft til þess
ef hinar hærri einkunnir eru gefnar.
Hámarkseinkunn er sett sem 8.00
sé hrossinu riðið út fyrir afmörkun
brautar en það er gert vegna þess
að þá sér dómnefndin viðsnúninga í
brautarendum ekki nægilega vel og
takmarkar matið á þjálni hestsins.
Undantekningu má gera á þessari
reglu ef hrossinu er riðið til mikilla
afkasta á skeiði og stökki. Það er gert
til að bjóða afrekshrossum, ungum
sem eldri, möguleika á hestvænum
niðurhægingum. En það er að því
gefnu að hraðinn sé afar mikill og
niðurhægingin eigi sér að mestu stað
innan brautar.
Hvað varðar mat á skeiði var Njarðarnesi 1 sími 460 4350
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta - Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl.
Úrval hjólbarða á betra verði
Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-,
jeppa,- og vörubíladekk í úrvali.
Smurþjónusta
(Jason ehf.)
20%
afsláttur af öllum dekkjum
Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 412
Jeppadekk
35x12,5x15
Double Star
vörbíladekk
Double Star
Vinnu- og
dráttarvéladekk
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarmaður í
hrossarækt
thk@rml.is
Hrossarækt – Kynbótastarfið 2017
Riðið til fjalla með Mýrdalsjökul í bakgrunni. Mynd / HKr.