Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Glúmur frá Dallandi
Stóðhesturinn Glúmur verður í Dal hestamiðstöð til 20. júní!
Fyrra og seinna gangmál í H raðsdal í Skaga irði.
Glúmur hefur hlotið 8.67 í aðaleinkunn, 8.61 fyrir sköpulag
og 8.71 fyrir hæfileika.
Nánari upplýsingar gefa Halldór Guðjónsson
í síma 896 2772 og Gunnar Dungal í síma
822 2010.
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
og á leiðinni
Sími 4 80 80 80
2017 F-350 Platinum
Ultimate
6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of
torque. Með sóllúgu, power running
boards, hita og kæling í sæti,
fjarstart, heithúðaðan pall og margt
fleira. Ath. aukabúnaður á mynd:
35” breyting.
2017 GMC Denali
Nýr litur: Mineral metallic. Með
sóllúgu, heithúðaðan pall, hita í stýri
og fl. Nýja 6,6L Duramax Diesel vélin
445 hö. Einnig til hvítur, svartur og
Dark Slate.
V
2017 Chevrolet Silverado
High Country
Nýja 6.6L Duramax Diesel vélin,
445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d. upp-
hitað stýri, BOSE hátalarakerfi,
upphituð og loftkæld sæti og
heithúðaður pallur. Einnig til hvítur.
V
2017 Ram Limited 3500
6,7L Cummins, með loftpúðafjöðr-
un, Aisin sjálfskipting, upphitanleg
og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúgu,
heithúðaðan pall, Ram-box og fl.
Einnig til silfur og blár.
V
Ath að myndin er af sambærilegum bíl
GRAND
HÓTEL
REYKJAVÍK
24.
maí
Dagskrá er frá kl. 9:00 – 14:00 Sjá dagskrá nánar á:www.audlindatorg.is/radstefna
Úrgangur í dag
auðlind á morgun
Ráðstefna um nýsköpun og lífrænar aukaafurðiraudlindatorg.is/radstefna
aðgangur
ókeypis
- HÁDEGISMATUR Í BOÐI -
Innblástur og vörukynningar
frá nýsköpunaraðilum á
sviði sjávarútvegs, land-
búnaðar, sláturiðnaðar og
matvælaframleiðslu!
ákveðið að bæta við nýrri vinnureglu
en hún er þessi:
Þegar einkunnir 8.5 eða hærri
eru gefnar fyrir skeið skal hestinum
greinilega riðið á stökki í aðdraganda
skeiðsins og hann tekinn niður á
skeið af stökki. Einnig skal horft
til þess að hesturinn sé í jafnvægi í
niðurhægingu.
Þessi regla er sett til þess að
bæta mat á takti og líkamsbeitingu
hestsins á skeiði. Tölt og skeið eru
líkar gangtegundir að svo mörgu
leyti og því er til bóta við mat á
skeiði að sjá að hægt sé að losa
um hestinn á stökki áður en hann
er tekinn niður á skeið. Það skilur
á milli hesta sem eru snjallvakrir
og eiga auðvelt með líkamsbeitingu
(snið) sem skilar svifi og þeirra
hrossa sem þarf að stífa af og renna
inn í skeið af tölti til að sækja svif
í gangtegundina. Einnig er þetta
íslensk reiðhefð og krafa sem gerð er
til hrossa í keppni til hærri einkunna;
hvort sem það er í fimmgangi,
gæðingakeppni eða gæðingaskeiði.
Hugmyndin með því að fara fram
á að hesturinn sé í jafnvægi í
niðurhægingu er ekki sú að fara fram
á útfærslu á skeiðsprettum líkt og
í gæðingaskeiði, heldur að sjá að
hesturinn sé í andlegu og líkamlegu
jafnvægi á skeiðinu og hvellstytti sig
ekki í enda spretts.
Hljóðnemar við brautir
Til að bæta mat á gangtegundum
verða settir upp hljóðnemar við
brautirnar á öllum sýningarsvæð-
um í ár. Þetta er gert til þess að
dómarar heyri vel takt hestsins í
öllum tilfellum og mun einnig bæta
samræmi á milli sýningarstaða en
sums staðar eru aðstæður þannig að
dómarar sjá og heyra vel en sums
staðar heyra þeir ekki neitt inni í
dómsskúrum. Þetta var prófað á
tveimur sýningum í fyrra þannig að
nokkur reynsla er komin á útfærslur
og verður spennandi að þróa þessa
nýjung áfram.
Ný gjaldskrá fyrir
kynbótasýningar
Fyrir sýningarárið 2017 reyndist
nauðsynlegt að hækka sýningar-
gjöldin en með staðfestingu frá 18.
apríl síðastliðin hefur atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið samþykkt
nýja gjaldskrá (sjá að ofan) fyrir sýn-
ingargjöld á kynbótahrossum.
Sköpulags-/
Fullnaðardómur reiðdómur
Án vsk. 18.629 kr. 14.194 kr.
Sýningargjöld m/vsk. 23.100 kr. 17.600 kr.
WorldFengs gjald 1400 kr. 1400 kr.
Alls: 24.500 kr. 19.000 kr.