Bændablaðið - 11.05.2017, Side 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Kristófer og Elín Ósk keyptu
jörðina Kaldakinn II í júní 2014
af afa Kristófers. Þá var enginn
bústofn á jörðinni fyrir utan fáein-
ar merar.
Helstu verkefni síðan hafa verið
tiltekt og uppbygging. Þau eru hægt
og rólega að byggja upp það bú sem
þau dreymir um.
Býli: Kaldakinn II.
Staðsett í sveit: Austur-
Húnavatnssýslu.
Ábúendur: Kristófer og Elín Ósk.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við erum 6 í heimili, við hjónin og
börnin okkar 4: Kristvin Máni, 14
ára, Kristján Jr., 7 ára, Harpa Ósk, 2
ára, og Rakel Ósk, 2 ára.
Svo eru það hundarnir Aríel og
Nala og kisan Dúlla. Þau hafa öll sín
hlutverk á bænum.
Stærð jarðar? 256 ha.
Gerð bús? Sauðfé og hross.
Fjöldi búfjár og tegundir? Við
keyptum okkar fyrstu kindur síð-
asta haust, 21 gimbur og 1 hrút.
Fjölgum svo hægt og rólega sam-
hliða framkvæmdum á jörðinni.
Svo erum við með 20 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Morgungjöf hjá kindum, hundum
og kisu. Börnin eru keyrð í skóla
og leikskóla á Blönduós. Kristófer
fer til vinnu í Blönduvirkjun og
Elín rekur fótaaðgerðastofu á
Blönduósi. Svo er það kvöldgjöfin
hjá mönnum og dýrum.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Án efa verður sauð-
burðurinn skemmtilegasti tíminn,
það er ekkert leiðinlegt, bara mis-
skemmtilegt.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Við erum bjartsýn og horfum á
tækifærin í kringum okkur. Okkar
draumur væri að vera komin með
300 kindur, hænur, endur, grísi og
nokkrar geitur, endurnýjuð fjárhús,
endurnýjun á gömlu fjósi í hest-
hús, uppræktuð tún, skipta Zetor í
John Deere – svo eitthvað sé nefnt.
Mögulega tekur þetta lengri tíma
en 5 ár.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Við teljumst vart
dómbær á það. Ekki ennþá.
Hvernig mun íslenskum landbún-
aði vegna í framtíðinni? Ef tækifær-
in eru rétt nýtt er fullt af möguleikum.
Við teljum að með breyttri mark-
aðssetningu og fjölbreyttari vinnslu
á kjötinu megi margfalda sölu á
lambakjöti. Við teljum að ungt fólk
vilji þægilegri einingar til eldunar í
öllum þeim hraða sem þjóðfélagið
er á. Það hefur enginn tíma til að
elda lengur. Ekki að það sé þróun
sem okkur finnst góð. En það þarf
að sinna eftirspurninni hvað varðar
þægindin við að matreiða hráefnið
sem við framleiðum. Annars selst
það ekki.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Markaðssetning á hreinum afurðum,
það hlýtur að teljast sérstaða sem við
eigum að nýta okkur í þaula.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, ostur, sulta og lýsi.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambafille og gæs,
veidd af bóndanum.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Við gleymum því senni-
lega seint þegar við komum heim
með fyrstu gimbrarnar. Það var
góður dagur sem varð að veruleika
eftir þónokkra bið. Elín á mjög
erfitt með að bíða eftir hlutunum.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Súrdeigsbakstur: beyglur og pitsur
Hvernig á að byrja á súrdeigi?
Það er mjög skemmtilegt að sinna
súrdeigi, sérstaklega ef fólk getur
gefið sér smá tíma til fyrir það.
Þá er hægt að sinna súrdeigs-
grunninum sínum að lágmarki annan
hvern dag. Lykilreglan er að bæta jafn
miklu af hveiti og vatni aftur saman
við grunninn og tekið er úr honum.
Þannig er súrdeigsmóðurinni haldið
við. Það er hægt að stytta sér leið og
fara í sælkerabakarí eða á veitinga-
stað sem notar súrdeig og biðja um
svolítinn byrjunargrunn til að koma
sér af stað.
Súrdeigsmóðir
› 250 g brauðhveiti, til að byrja
grunninn
› 350 ml brauðhveiti, til að mata
grunninn þessa 5 daga
› 300 ml kranavatn við stofuhita, til að
byrja grunninn
› 350 ml kranavatn, til að mata
grunninn
› 100 g rauð vínber
› Viskastykki
Til að byrja grunninn:
Dagur 1: Hrærið hveiti og vatn vel
saman. Geymið í sólarhring.
Dagur 2: Setjið vínber í tvöfalt viska-
stykki.
Merjið safann úr vínberjum út í hveiti-
og vatnsblönduna, hyljið vel með loki
eða plastfilmu.
Geymið grunninn við stofuhita og
geymið líka vínberin í viskastykkinu
í kæli.
Dagur 3: Kreistið restina af vökvan-
um sem kemur af vínberjunum út í
grunninn (hveiti og vatnið).
Hrærið vel saman og geymið áfram.
Dagur 4: Hrærið hálfum bolla af
hveiti og hálfum bolla af vatni saman
við grunninn og blandið vel saman.
Látið standa við herbergishita, í kring-
um 3-4 klukkustundir.
Setjið filmu yfir og inn í ísskáp yfir
nóttina.
Dagur 5: Endurtaka dag 4.
Dagur 6: Endurtaka dag 5.
Nú eruð þið tilbúin til að nota þennan
grunn (súrdeigsmóður) og getið gert
líf ykkar betra með því að baka marg-
vísleg súrdeigsbrauð.
Súrdeigsmóðirin geymist í 4–5
mánuði í ísskápnum þínum með
reglulegri umhirðu, ást og umhyggju.
Súrdeigsbeyglur
Þessi uppskrift gefur 9 stykki af 100
gramma beyglum.
Það er hægt að baka
ýmislegt úr súrdeigi,
en svo má líka fara
hálfa leið og blanda
saman súrdeigi og
geri – þá fær maður
öryggi gersins og
bragðið frá súr-
deiginu.
Hnoðið í 10 mínútur
og látið svo deigið hvíla
í klukkustund.
Seinni hefun í 30 mínútur og svo
matreiðsla í 27 mínútur + 15 mínútur.
› 500 g af brauðhveiti
› 200 g af vatni við 20 ° C
› 100 g af fljótandi súrdeigsgrunni
› 3 g ger
› 10 g salt
› 20 g sykur
› 1 egg + 1 egg (gljá beyglurnar með
fyrir bakstur)
› 25 g smjör, við stofuhita
› birkifræ eða önnur fræ eða korn
og sesamfræ
Hnoðið með krók í hrærivél.
Blandið saman hveiti, vatni,
súrdeigsgrunni, geri, salti, sykri og
eggi. Hrærið saman í fjórar mínútur
á litlum hraða, síðan í sex mínútur
á meiri hraða. Þegar þrjár mínútur
eru eftir er smjöri bætt við.
Myndið bolta, breiðið yfir skálina
með rökum klút.
Látið deigið hefast í klukkustund.
Setjið deigið á vinnuborð sem
búið er að strá hveiti yfir. Fletjið
út, rúllið og mótið í níu litlar kúlur.
Setjið klút yfir og passið að þær
þorni ekki upp.
• Gatið hverja kúlu með
fingri og smám saman gerið
myndarlegt gat. Látið
deigið hefast þannig
í 30 mínútur undir
klút.
• Sjóðið
vatn í potti.
S j ó ð i ð
beyglurnar
e i n a a f
annarri í eina
mínútu og 30
sekúndur. Snúið
við og sjóðið á
þeirri hlið jafnlengi.
Deigið blæs aðeins út
við þetta. Setja þær svo á grind
svo vatnið leki af beyglunum
sem eru farnar að taka á sig
mynd.
• Undirbúið bökunarplötu og
setjið smjörpappír ofan á. Sláið
út egg og dýfið helmingnum í
birkifræ, en hinum hlutanum
í sesamfræ. Setjið þær á
bökunarplötuna.
• Hitið ofninn í 200 gráður og
bakið í 15 mínútur.
• Látið kólna og setjið uppá-
halds áleggið ykkar á milli.
Þær eru líka góðar daginn eftir,
beint í brauðristina með íslensk-
um rjómaosti.
Súrdeigspitsa
Það jafnast engin venjuleg pitsa á við
súrdeigspitsu. Það er gott að gera deig-
ið daginn áður og geyma í kæli. Það
þolir hærri hitta og má setja á sjóðheita
bökunarplötu eða pitsustein.
Fyrir 2 stórar pitsur
› 500 g af brauðhveiti
› 260 g af vatni við 20 gráður
› 100 g af fljótandi súrdeigsgrunni
› 3 g af þurrgeri
› 10 g salt
› 15 g sykur
› 30 g af ólífuolíu
Fyrir fyllingu:
› 400 g pitsusósa að eigin vali
› 10 sneiðar skinka eða annað kjötálegg
› Óreganó krydd
› 200 g rifinn ostur
Blandið saman hveiti, fljótandi súr-
deigsgrunni, geri, salti og sykri.
Hrærið í fimm mínútur á hægum
hraða og svo sjö mínútur á miklum
hraða. Hnoðið með krók.
Myndið deigbolta, hyljið deigið
með rökum klút. Látið hefast í tvær
klukkustundir við stofuhita. Gott að
slá deigið einu sinni niður.
Stráið hveiti yfir borðplötuna.
Skiptið deiginu í tvo hluta (um 460
grömm hvor hluti) og rúllið út með
höndum eða með kökukefli.
Gott að setja pitsuna á smjörpappír
til að auðveldara sé að færa hana á
heita bökunarplötuna. Látið hefast
í klukkustund.
Dreifið sósunni yfir deigið. Setjið
áleggið yfir og stráið óreganói og
rifnum osti yfir.
Hitið ofninn í 250 gráður eða stillið
á hæsta hita. Rétt áður en ofninum
er lokað, hellið þá fimm millilítrum
af vatni á hitaplötu sem er undir
bökunarplötunni. Bakið pitsuna í
fjórar mínútur, lækkið þá hitann
niður í 220 gráður og eldið áfram
þar til pitsan er stökk og falleg.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Kaldakinn 2
Mynd / Róbert Daníel Jónsson