Bændablaðið - 25.01.2018, Side 1
2. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 25. janúar ▯ Blað nr. 507 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Prófessorarnir Þorsteinn Guðmundsson og Guðni Þorvaldsson segja stór göt vera í þekkingu á mýrum á Íslandi:
Fullyrðingar hugsanlega stórlega ýktar
um stærð mýra og losun á koltvísýringi
Dr. Þorsteinn Guðmundsson,
sem hefur m.a. starfað sem
prófessor í jarðvegsfræði við
Land búnaðarháskóla Íslands,
og dr. Guðni Þorvaldsson, pró-
fessor í jarðrækt við LbhÍ, telja
endurheimt votlendis í stórum
stíl kunni að vera stórlega
ofmetin leið til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.
Telja þeir ýmsa skekkjuvalda
orsaka það að mat á losun
gróðurhúsalofttegunda úr íslenskum
mýrum kunni að vera rangt.
Rannsóknir skorti auk þess sem
ekki gangi að taka erlenda staðla
og heimfæra þá beint upp á afar
misjafnar aðstæður á Íslandi.
Í umræðunni á liðnum árum um
að endurheimta mómýrar til að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda,
hefur ýmsum fullyrðingum verið
slegið fram. Prófessorarnir segja
í ítarlegri grein á bls. 38 og 39 í
Bændablaðinu í dag að lítið hafi
verið fjallað um óvissuþættina
varðandi slíkar fullyrðingar.
Hvað eru þurrkaðar mýrar
raunverulega að losa af CO2?
Árið 2013 hefur losun gróður-
húsalofttegunda úr framræstu
votlendi á Íslandi árið 2013 verið
metin á 11,7 milljónir tonna CO2
ígildi. Þessi tala byggði á viðmiðum
Vísindanefndar loftslagssamningsins
(IPCC) um losun á flatareiningu.
Er stærð endurheimtanlegra
mýra stórlega ofmetin?
Þorsteinn og Guðni hafa efasemdir
um stærð þess lands sem talið er að
hægt sé að breyta aftur í votlendi.
„Heildarstærð ræktaðs lands hér á
landi hefur verið talin um 120.000 ha
(1.200 km2) og að tæpur helmingur
þess sé á þurrkuðu votlendi (500-
600 km2).“
Í umræðum um endurheimt
votlendis hefur því verið haldið
fram að búið sé að þurrka um 4.200
km2 votlendis og samkvæmt tölunum
hér að ofan eru þá einungis 10–15%
af því nýtt sem ræktunarland. En
hversu áreiðanlegar eru þessar
tölur?“
Eru 4.200 ferkílómetrar kannski
1.600 km2 eða enn minna?
„Heildarlengd skurða hefur verið
áætluð 32.000 km. Til að ná 4.200
km2 þarf hver skurður að þurrka 130
m að meðaltali (65 m í hvora átt).
Algengt er að 50 m séu á milli skurða
hér á landi. Ef miðað er við að hver
skurður þurrki 50 m (25 m í hvora
átt) þá gefa 32.000 km af skurðum
um 1.600 km2 af framræstu landi.“
Eru notaðir rangir reiknistuðlar?
„Ísland gerir reglulega grein fyrir
losun koltvísýrings út í andrúmsloftið
vegna landnýtingar (LULU-CF)
í skýrslu til loftslagssamnings
Sameinuðu þjóðanna. Mælingar á
losun koltvísýrings úr íslenskum
mýrum eru hins vegar takmarkaðar
og því hafa erlendir stuðlar verið
notaðir til að meta losunina. Fyrir
mýrartún hafa verið notaðir stuðlar
sem ætlaðir eru fyrir akurlendi
(cropland) en ekki graslendi
(grassland). Akurlendi er land
sem er unnið reglulega og í eru
ræktaðar fyrst og fremst einærar
tegundir. Því væri eðlilegra að nota
graslendisstuðla fyrir tún hér á landi.
Athygli vekur hversu mikil
óvissa er í losunarstuðlum IPCC og
sérstaklega hversu mikið stuðlar hafa
hækkað fyrir graslendi á framræstu
votlendi frá 2006 til 2013. Það mætti
kafa ofan í hvað þar liggur að baki
en það sýnir kannski fyrst og fremst
að það er erfitt að mæla losunina og
aðferðafræðin er enn til skoðunar,“
segja þeir félagar m.a. í grein sinni.
Segja þeir fáar greinar hafa birst
um losun koltvísýrings úr íslenskum
mýrum. Í því sem þegar hafi birst
megi sjá mikinn breytileika í losun
og að mikils munar megi vænta eftir
jarðvegi, árum og staðháttum.
„Íslenskar mýrar eru yfirleitt
steinefnaríkari en mýrar í
nágrannalöndunum, m.a. vegna
áfoks, öskufalls, mýrarrauða og
vatnsrennslis í hlíðum, og lífrænt
efni er að sama skapi minna.“
Þeir félagar benda líka á að
með tilraun í framræstu landi á
Skriðuklaustri hafi verið sýnt fram
á að hægt er að binda kolefni í
umtalsverðu magni í jarðvegi. Í landi
þar sem grasnytjar eru verði þannig
umtalsverð binding kolefnis.
„Þannig fylgir auknum vexti
ofanjarðar aukinn rótarvöxtur og í
ræktuðu landi verður meira kolefni
eftir í jarðveginum en í landi sem
ekki er í rækt. Þetta geti leitt til
bindingar á kolefni í framræstu
landi.“
Er endurheimt eina lausnin?
„Ef ætlunin er að koma í veg fyrir
losun á CO2 út í andrúmsloftið þá er
hækkun grunnvatnsstöðu að yfirborði
besta lausnin en á að sjálfsögðu
einungis við þar sem um nettó
losun er að ræða. Tæpur helmingur
ræktaðs lands er á framræstu landi
og töluvert af beitilandi einnig.
Því þarf að huga vandlega að hvar
skynsamlegt sé að endurheimta
votlendi og hvar landbúnaður hafi
forgang. [...] Þar sem mikill raki
er í jörð og kolefnishlutfall ekki
hátt þyrfti að athuga hvort hækkun
grunnvatnsstöðu sé yfirleitt góð
lausn eða hvort ræktun og aukin
frumframleiðsla geti ekki haldið
kolefnisbúskap í horfinu eða
jafnvel stuðlað að bindingu CO2 úr
andrúmslofti.“
Mikilvægt ræktunarland
Í niðurlagi greinar sinnar segja dr.
Þorsteinn Guðmundsson og dr.
Guðni Þorvaldsson:
„Vegna þessa er mikilvægt að
fara varlega í ályktunum á meðan
stór göt eru í þekkingunni. Við
megum heldur ekki gleyma því
að þurrkað votlendi er mikilvægt
ræktunarland og því takmörk fyrir
því hversu mikið af því er hægt að
taka úr umferð.“ /HKr.
- Sjá nánar bls. 38 og 39
Íslenskir hafrar
á leið í verslanir
28
Um 258 milljarða tekjur af umferð
í 5 ár ekki nýttar til vegagerðar
Landsmenn hrópa á endurbætur
á vegakerfinu en ríkið eykur
stöðugt skattlagningu á bíl-
eigendur sem notuð er í annað.
Samt er talað um að ekki séu
til peningar til uppbyggingar
og viðhalds vega sem eru þó
taldar einhverjar arðbærustu
framkvæmdir sem hægt sé að
ráðast í.
Félag íslenskra bifreiða eigenda,
FÍB, hefur látið Bændablaðinu í
té sundur liðaðar tölur um tekjur
ríkissjóðs að umferðinni á árunum
2014 til 2018. Að mati FÍB eru
sumir tekjuliðirnir í þessu þó trúlega
vanmetnir.
Eitt fyrsta verk nýrrar
ríkisstjórnar var að hækka skatta
á eldsneyti og umferð um nær 5,6
milljarða króna, eða um 4,6%. Þrátt
fyrir verulega auknar skattaálögur
á bifreiðaeigendur þá er samt ekki
verið að nota nema um 29% þeirra
tekna í vegakerfið.
Í tölum FÍB kemur fram að
á þessum fimm árum verða
heildartekjur ríkissjóðs af
ökutækjum um eða yfir 330
milljarðar króna að árinu 2018
meðtöldu [330,879 milljarðar]. Í
því sambandi er vert að hafa í huga
að rauntekjurnar af umferðinni hafa
oftast verið hærri en fjárlög hvers
árs segja til um og stundum hefur
munað þar nokkrum milljörðum
króna.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir
4,6% hækkun tekna af ökutækjum
á þessu ári miðað við fjárlög 2017
og að tekjurnar verði þá 73.044
milljónir króna 2018. Þar af er
kolefnisgjald 3.540 milljónir.
Á árinu 2014 var samkvæmt
reikningum ríkisins veitt 14.272
milljónum til viðhalds vega og
nýframkvæmda. Árið 2015 var
upphæðin 16.322 milljónir króna.
Árið 2017 voru það 21.358 milljónir
króna og gert er ráð fyrir 21.167
milljónum króna til vegamála á
árinu 2018. Samtals gerir þetta á
fimm árum 73.119 milljónir, sem
er nánast sama tala og áætlaðar
tekjur ríkissjóðs af ökutækjum á
yfirstandandi ári 2018.
Mismunurinn á tekjum ríkissjóðs
af ökutækjum og því sem notað
er til að viðhalda og byggja upp
innviði umferðarkerfisins fyrir utan
sérverkefni á fimm ára tímabili er
því 257.760 milljónir króna. /HKr.
– Sjá nánar bls. 20–21
Þessi nafnlausa kýr frá Innri-Kleif í Breiðdal á Austfjörðum var með númerið 851 í skýrsluhaldi ábúendanna Gunn-
laugs Ingólfssonar og Þóru Margrétar Aradóttur. Hún sló nýtt glæsilegt Íslandsmet á síðasta ári sem nythæsta
kýrin sem nokkru sinni hefur verið skráð á skýrslur hér á landi. Mjólkaði hún hvorki meira né minna en 14.199 kg,
eða nær 14,2 tonnum. Því miður fékk hún sýkingu svo eigendur þurftu að fella þennan mikla afurðagrip núna í
byrjun janúar. Er þar skarð fyrir skildi og segist Gunnlaugur sakna hennar mjög. – Sjá nánar bls. 2 og 44
Setti Ísland
smet og mj
ólkaði 14,2
tonnum
Skyrið varð að gulli
í höndum Norðmanna
14
Sannleikurinn um jarðhneturnar
36-37