Bændablaðið - 25.01.2018, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. janúar 2018
Þann 11. janúar síðastliðinn voru
veittir styrkir til náms úr Vísinda-
og rannsóknasjóði Suðurlands.
Styrkþegar að þessu sinni voru
tveir og fengu hvor um sig 750.000
krónur.
Annars vegar var það
Sigríður Jónsdóttir til að vinna
að MA-verkefni sínu „Beittar
uppgræðslur á hálendi Íslands,
reynsla bænda, aðferðir og árangur“.
Markmið verkefnis er að afla
þekkingar meðal bænda, sem hafa
unnið að uppgræðslu á hálendinu,
til að geta nýtt og miðlað þekkingu
þeirra á skilvirkari hátt en nú er
gert. Hins vegar fékk Sigrún Inga
Sigurgeirsdóttir styrk til að vinna
að MA-verkefni sínu „Málefni
Breiðamerkursands og evrópski
landslagssáttmálinn“. Markmið
verkefnis er að kanna hvaða áhrif
evrópski landslagssáttmálinn gæti
haft á málefni Breiðamerkursands.
Styrkurinn var afhentur af
forseta Íslands, herra Guðna Th.
Jóhannessyni, á hátíðarfundi
Fræðslunetsins sem haldinn
var í hátíðarsal Fjölbrautaskóla
Suðurlands. Sigrún Inga er í námi
við Háskóla Íslands og Sigríður við
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Sigurður hlaut menntaverðlaun
Suðurlands
Við sama tækifæri og styrkirnir
voru afhentir úr Vísinda- og
rannsóknasjóði Suðurlands veittu
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
(SASS) menntaverðlaun samtakanna
fyrir árið 2017.
Þrjár tilnefningar bárust. Stjórn
SASS var sammála um að verðlaunin
færu til Sigurðar Sigursveinssonar,
framkvæmdastjóra Háskólafélags
Suðurlands og fyrrverandi
skólameistara Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Sigurður tók auðmjúkur við
verðlaununum um leið og hann
þakkaði fyrir sig og það góða
starfsfólk sem hefur unnið með
honum í gegnum árin.
/MHH
Á bænum Vorsabæ II í Skeiða-
og Gnúpverjahreppi hjá
Stefaníu Sigurðardóttur og Birni
Jónssyni eru margar sérstakar og
skemmtilegar skepnur. Þau eru
t.d. með geitur, hesta, kindur, kött,
hund og þar er líka ferðaþjónusta.
Töluvert er af ferhyrndu fé á
bænum, m.a. kindin Snuðra, mórauð
á 10. vetri. Hún missti fjórða hornið
sitt þegar hún var 8 vetra. Hún er
undan mórauðum tvíhyrndum hrút
sem hét Bambínó og móðir hennar
var svört, ferhyrnd og hét Furða.
Í Vorsabæ er líka fallegur hestur
með mjög sérstakan lit. Hesturinn
heitir Hagur og er á 6. vetri. Hann
er glómóvindóttur og fékk litinn
frá móður sinni sem er með sama
lit. Faðir hans heitir Hreyfill frá
Vorsabæ 2 sem er einn af hæst
dæmdu klárhestum í heiminum.
Móðir Hags heitir Tíska frá Vorsabæ
2. „Við eigum ekki fleiri hesta með
þessum lit en hún Tíska hefur gefið
litfögur afkvæmi, m.a. vindótt og
moldótt,“ segir Stefanía. /MHH
Vorsabær II í Skeiða- og Gnúpverjahreppi:
Þríhyrnd Snuðra og gló-
mó vindóttur hestur
Endurmenntun LbhÍ
www.lbhi.is/namskeid • endurmenntun@lbhi.is • 433 5000
Húsgagnagerð úr skógarefni I
Haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur
Á námskeiðinu læra nemendur að setja
saman koll og bekk úr því sem til
fellur við grisjun skóga.
Hefst 16. mars á Snæfoksstöðum í Grímsnesi
Ræktum okkar eigin ber
Hverjar eru þarfir mismunandi tegunda
með tilliti til jarðvegs, áburðar,
klippingar og annarrar umhirðu?
Haldið 17. mars hjá LbhÍ á Reykjum
Trjá- og runnaklippingar
Verkleg kennsla í bland við bóklega þar sem
farið verður yfir það hvernig meta eigi ástand
trjáa og runna þegar kemur að klippingu.
Haldið 17. mars hjá LbhÍ á Reykjum
Húsgagnagerð úr skógarefni II
Haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur
Húsgagnagerð tekin skrefinu lengra,
nemendur fara mun dýpra í ferlið
frá hönnun til vöru.
Hefst 13. apríl á Snæfoksstöðum í Grímsnesi
Meðferð varnarefna
Haldið í samstarfi við Umhverfisstofnun, Vinnueftirlitið og
Landssamtök meindýraeyða
Ætlað þeim sem sækjast eftir að fá
notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörur
vegna notkunar í landbúnaði, garðyrkju
og við eyðingu meindýra.
Hefst 26. febrúar hjá LbhÍ í Reykjavík
Rúningsnámskeið
Allt sem snýr að vélrúningi á sauðfé.
Einnig er farið yfir helstu atriði við
meðferð, flokkun og frágang á ull.
Hefst 9. mars hjá LbhÍ á Hesti í Borgarfirði
Hænsnahald í sveit og bæjum!
Allt sem snýr að ræktun hænsfugla,
allt frá undirbúningi til uppeldis.
Haldið 10. mars á Kirkjubæjarklaustri
Sútun á lambgærum
Verklegt námskeið þar sem fjallað verður
um ferli sútunar á lambgærum og
handverkið í kringum sútunarferlið.
Hefst 16. mars hjá LbhÍ á Hvanneyri
Snuðra með hornin sín þrjú eftir að það fjórða brotnaði þegar hún var 8
vetra. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Hagur, sem er glómóvindóttur, er hér
með Sigurbjörgu Báru Björnsdóttur
sem býr í Vorsabæ og stundar nám
við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Vísinda- og rannsóknasjóður Suðurlands:
Sigrún og Sigríður fengu hvor sínar 750.000 krónurnar í styrki
Sigrún Inga (t.h.) og Sigríður, ásamt Sveini Aðalsteinssyni, formanni dómnefndar, og hr. Guðna Th.Jóhannessyni,
forseta Íslands. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Sigurður með viðurkenninguna og blómvönd, ásamt Gunnari Þorgeirssyni,
formanni stjórnar SASS, og hr. Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands.