Bændablaðið - 25.01.2018, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. janúar 2018
LESENDABÁS
Er stefnt að útrýmingu lítilla og
miðlungs fjárbúa í landinu?
– Gegna veigamiklu, félagslegu hlutverki og stuðla að viðhaldi sveitabyggðar
Í síðasta Bændablaði, 11. janúar,
birtist á bls. 45 athyglisvert
lesendabréf frá Lárusi
Sigurðssyni þar sem hann víkur
m.a. að opinberum stuðningi við
sauðfjárræktina sem byggir mjög
á mismunun eftir bæði búsetu og
fjárfjölda.
Sem eðlilegt er veltir hann upp
nokkrum áleitnum spurningum sem
hafa orðið mér tilefni hugleiðinga
um þessi efni.
Nýjar reglugerðir
Á meðal fyrstu verka nýs ráðherra
í liðnum mánuði var að staðfesta
og birta tvær nýjar reglugerðir,
annars vegar um gæðastýrða
sauðfjárframleiðslu nr. 1166/2017
og stuðning við sauðfjárrækt nr.
1183/2017, sem væntanlega vísa
veginn fyrir þessa búgrein með
ýmsum hætti. Sú fyrri byggir að
mestu á gömlum og traustum
grunni og mun ég víkja lítillega
að afleiðingum hennar í lok þessa
pistils með tilliti til fjárbúskapar utan
lögbýla.
En það er sú síðari sem hlýtur
að vekja marga til umhugsunar
um hvert stjórnvöld eru að stefna
og hver viðhorf bænda eru, og þá
sérstaklega þeirra sem halda sauðfé,
til þeirrar grófu mismununar sem þar
er boðuð, bæði hvað varðar svæði og
fjárfjölda á viðkomandi búi. Í 1. gr.
reglugerðarinnar er vísað í samning
fulltrúa ríkisvaldsins og bænda um
starfsskilyrði sauðfjárræktar frá 19.
febrúar 2016 þannig að ætla mætti að
grundvöllurinn væri traustur.
Sérhæfing og fækkun fjárbænda
Mér finnst reglugerð um stuðning
við sauðfjárrækt endurspegla vel þá
hugmyndafræði að enn skuli efla
sérhæfingu og stækkun fjárbúa. Til
að ná fram þeim markmiðum, og
miðað við markaðsstöðuna í dag,
skuli fækka litlum og miðlungs
fjárbúum um land allt. Þannig
verði afkoma „alvöru“ fjárbænda
tryggari og búseta í sveitum landsins
traustari í næstu árum. Skömmu eftir
að reglugerð nr. 1183/2017 kom út
fengu Landssamtök sauðfjárbænda
það álit frá sérfræðingi hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML) að eðlilegt sé að búin stækki
verulega og að þeim fækki.
Þessi hugmyndafræði er í sjálfu
sér vel þekkt, hún og afleiðingar
hennar eru kunnar um allan heim.
Að mínum dómi er hún orðin úrelt
í meginatriðum og hentar alls ekki
íslenskri sauðfjárrækt. Reynslan
erlendis sýnir að fjölskyldubúunum
er fyrst rutt úr vegi, fáeinar
fjölskyldur byggja þó upp sérhæfð
stórbú sem síðar lenda gjarnan í eigu
fjárfesta í þéttbýli, oft í hlutafélögum,
og þá er orðið stutt í verksmiðjubúin
sem skapa mun alvarlegri vandamál
en þau leysa. Þessari þróun fylgir oft
jarðasöfnun auðmanna og fyrirtækja.
Eitt er víst að slík þróun stuðlar ekki
að blómlegri og dreifðri sveitabyggð
í sátt við umhverfið.
Nokkrir ókostir fækkunar
fjárbúa og bænda
Vissulega eiga stór og vel rekin
sauðfjárbú, sem búa við góða
landkosti og önnur hagkvæm
skilyrði, fullan rétt á sér. Engu að
síður verður að virða þá sérstöðu sem
sauðfjárræktin hér hefur. Alkunna
er að hún gegnir veigamiklu,
félagslegu hlutverki og stuðlar
meira að viðhaldi sveitabyggðar en
aðrar búgreinar. Því skiptir fjöldi
sauðfjárbænda sem slíkur miklu
máli og mikil fækkun þeirra getur
skapað vanda hjá þeim sem eftir
verða, getur jafnframt skert arðsemi
sauðfjárframleiðslunnar í heild. Máli
mínu til stuðnings ætla ég að benda
á fimm atriði sem geta skipt máli ef
litlum og miðlungs fjárbúum fækkar
að ráði í sveitum landsins:
1) Fjallskil og aðrir
félagslegir þættir
Samkvæmt upplýsingum frá
Matvælastofnun er um helmingur
fjárbúa á lögbýlum með færri en
150 vetrarfóðraðar kindur. Því er
fjáreigendur utan lögbýla ekki inni
í þeirri tölu.
Það er reyndar ljóst að bændur á
litlum og miðlungs fjárbúum eiga
mikinn þátt í eðlilegri framkvæmd
fjallskila, bæði gangna og réttahalds,
um land allt. Góðir smalahundar og
flygildi (drónar) leysa ekki bændur
af hólmi. Fækkun í þeirra hópi getir
einnig haft neikvæð áhrif á almenna,
félagslega stöðu bænda og búaliðs
í sveitunum, sérstaklega í dreifðum
byggðum þar sem bændum hefur
nú þegar fækkað verulega. Hinn
félagslegi þáttur sauðfjárræktarinnar
vegur því mjög þungt og að mínum
dómi má ekki veikja hann með
neinum hætti.
2) Nýting heimalanda og afrétta
Dreifing sauðfjárbúa skiptir miklu
máli eigi að nýta úthagabeitina með
hagkvæmum og sjálfbærum hætti.
Mikil samþjöppun getur leitt til
staðbundinnar ofbeitar og aukinnar
hættu á búsifjum af völdum
sníkjudýra og smitsjúkdóma. Í þessu
tilliti eru kostir blandaðrar beitar
með t.d. hrossum og nautgripum
vel þekktir, samanborið við hreina
sauðfjárbeit.
Að hvetja til fjölgunar stórra
fjárbúa, án þess að fyrir liggi
rammaáætlun um landnýtingu, ber
ekki vott um neina fyrirhyggju.
(Sjá grein höfundar á bls. 36 í
Bændablaðinu 21. mars 2013).
3) Lífrænn búskapur og
önnur nýsköpun
Fyrirsjánleg er vaxandi eftirspurn
eftir lífrænt vottuðum vörum og
þar er greinilega vaxtarbroddur
til nýsköpunar fyrir íslenskar
sauðfjárafurðir sem lítið hefur verið
sinnt til þessa ( Sjá grein höfundar á
bls. 51 í Bændablaðinu 16. nóvember
2017). Þar við bætist að lífrænir
búskaparhættir eru að jafnaði
heppilegri til kolefnisjöfnunar
en önnur búskaparform. Við
hérlendar aðstæður er ljóst að
lítil og miðlungsbú, sérstaklega
hin blönduðu, henta mun betur
til aðlögunar að lífrænum
búskaparháttum en hin stóru og
sérhæfðu. Því er hætt við að sú
mismunun í stuðningsgreiðslum sem
reglugerð nr. 1183/2017 felur í sér,
einkum ákvæði 30. gr. , verði til þess
að hindra lífræna aðlögun í greininni.
Þar með yrði hamlað verulega gegn
þessum þætti nýsköpunar, og jafnvel
fleirum, þannig að efnahagslegur
skaði gæti hlotist ef. Opinber
aðlögunarstuðningur við lífræna
sauðfjárrækt gæti vegið eitthvað á
móti mismunun smærri búunum í
óhag en þetta verður þó að teljast
áhyggjuefni.
4) Sjálfbærni
sauðfjárframleiðsunnar
Í ljósi þess hve Landssamtök
sauðfjárbænda hafa markað
greininni metnaðarfulla stefnu
í umhverfismálum, svo sem
með áformum um aðgerðir til
kolefnisjöfnunar, markvissri
vöktun beitilanda, ýmiss konar
landbótum og banni við notkun
erfðabreytts fóðurs, vekur athygli
sá tvískinnungur sem kemur fram
með því að beita eigi opinberum
stuðningsaðgerðum gegn smærri
búunum. Búskógrækt (agroforestry)
á litlum og miðlungsstórum
sauðfjárbúum, sem hafa oft land
aflögu, er ein vænlegasta leiðin til
kolefnisjöfnunar en samt er verið
að skerða opinberan stuðning til
skógræktar. Einnig koma fram
mótsagnir gagnvart gæðastýringuna
sem m.a. er ætlað að stuðla að
sjálfbærri landnýtingu. Þarna
virðist skorta heildarsýn. Ekki er
við hugmyndafræðingana eina
að sakast því að hér á landi hefur
hvorki verið mótuð landbúnaðar- né
byggðastefna.
5) Menningargildi
sauðfjárbúskapar
Íslenska sauðkindin og allur
búskapur henni tengdur voru og
eru enn ríkir þættir í menningu
þjóðarinnar. Þetta kann þeim að
þykja léttvægt sem einblína á
lambakjötið eitt sér og telja að það
verði framleitt með hagkvæmustum
hætti á sem stærstum búum. Það er
þó ekki sjálfgefið.
Reynslan sýnir að margir
fjárbændur með smærri og miðlungs
bú hafa t.d. ágætt svigrúm til að
taka virkan þátt í uppbyggingu
ferðaþjónustu. Ef þeim fækkar
til muna gæti slíkt haft áhrif,
sérstaklega á hinn menningartengda
hluta hennar. Hér kemur nýting
ullar og gæra til handverks og
listsköpunar við sögu. Þetta tel ég
alla vega umhugsunarvert.
Engin tekjutenging
Athyglisvert er að hvorki í reglugerð
nr. 1183/2017 um stuðning við
sauðfjárrækt, sem vísað var í
hér að framan, né í reglugerð nr.
19/2018 um breytingu á reglugerð
nr. 1183/2017, þar sem helmingi
sauðfjárbænda, þeirra sem áttu
151 vetrarfóðraða kind eða fleiri
haustið 2016, er einum veittur
stuðningur vegna kjaraskerðingar,
í einskiptisaðgerð, eru engar
tekjutengingar líkt og almennt
gerist þegar greidd eru framlög
til einstaklinga úr ríkissjóði,
sbr. umræðu um frítekjumark og
ellilífeyri. Þannig fær sauðfjárbóndi
með engar eða litlar tekjur af
öðru en sauðfjárbúskap sömu
stuðningsgreiðslur og sveitunginn
sem rekur fjárbú af sömu stærð en er
með verulegar aukatekjur, svo sem
af öðrum búgreinum, hlunnindum
og launum ýmiss konar, þar með
frá ríki og sveitarfélögum.
Þegar við bætist framangreind
mismunun vegna bústærðar
og búsetu er eðlilegt að fólk
velti vöngum yfir því hvort
lífleg þjóðfélagsumræða um
jafnrétti, réttlæti og sanngirni sé
hugmyndafræðingum og öðrum
ábyrgðarmönnum framangreindra
reglugerða óviðkomandi. Eitt er
víst að þessi stórfellda mismunun
getur ekki verið til þess fallin að
efla félagslega samstöðu meðal
sauðfjárbænda.
Fjárbændur utan lögbýla í
„ruslflokk“
Rétt er að það komi hér fram að
fjárbændur utan lögbýla, sem fer
fækkandi víðast hvar á landinu,
og er helst að finna í kaupstöðum
og kauptúnum, njóta engra
stuðningsgreiðslna. Svo langt er
gengið til að tryggja slíkt að þeir fá
ekki sama verð og lögbýlabændur
fyrir ullina, sem þó vantar á
markaðinn, og þeim hefur nú verið
úthýst úr gæðastýringunni. Við,
því að ég hef verið í þeirra hópi í
60 ár, þurfum enga styrki en það
mætti kannski sýna okkur einhverja
virðingu. Höfum á tilfinningunni
að „kerfið“ hafi sett okkur í
einhvers konar „ ruslflokk“ innan
sauðfjárræktarinnar.
Eitt er víst að í þéttbýlisstöðunum
erum við fjáreigendur tryggustu
útverðir sauðkindarinnar og
sauðfjárræktarinnar og erum reyndar
næsti og nánustu tengiliðir hennar
við fjölda barna og fjölskyldna sem
m.a. koma til að sjá lömbin á vorin
og í réttirnar á haustin. Auk þessa
uppeldislega framlags eru við að
viðhalda menningarhefðum.
Síðast en ekki síst erum við
virkir þátttakendur í þeim félagslega
þætti sauðfjárræktarinnar sem felst í
framkvæmd lögboðinna fjallskila á
haustin. Svo að dæmi sé tekið sjáum
við 12 örbændur í Reykjavík, ásamt
einu býli í Kópavogi, um öll fjallskil
í Seltjarnarnesafrétti hinum forna.
Í vetur erum við með samtals 300
kindur á fóðrum og hefur sú tala
verið svipuð síðan um aldamót.
Við, karlar og konur á ýmsum
aldri, förum í tvennar göngur og í
eftirleitir eftir þörfum, í lögskilarétt
okkar kemur fyrir á 2. hundrað
fjár úr öðrum sveitarfélögum
og við sendum skilamenn í
útréttir. Allt er þetta unnið í
góðri samvinnu við fjárbændur í
nágrannasveitarfélögunum sem
flestir búa á lögbýlum. Við erum
öll jöfn í því ágæta samfélagi.
Þess má geta að lokum að
Fjáreigendafélag Reykjavíkur átti
90 ára afmæli á sl. jólaföstu, við
höfum verið aðilar að uppgræðslu í
afréttinum í 40 ár með góðum árangri
og erum að undirbúa réttarbyggingu.
Hér er engin uppgjöf þótt móti blási.
Sauðfjárbændum um land allt
óska ég farsældar á nýju ári.
Reykjavík, á þorrabyrjun 2018.
Ólafur R. Dýrmundsson
Höfundur er stofnfélagi í
Landssamtökum sauðfjárbænda,
nú með aukaaðild þar og einnig
að Bændasamtökum Íslands, er
þátttakandi í Fjárvís, slátrar öllu
hjá Sláturfélagi Suðurlands og er
hluthafi í Ístex hf.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson.
Hringur, forystusauður höfundar.