Bændablaðið - 15.11.2018, Side 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201852
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Sauðfjársæðingar og hrútafundir 2018
Ný hrútaskrá mun brátt líta
dagsins ljós. Það rit hefur að geyma
upplýsingar um þann hrútaflota
sem sæðingastöðvarnar bjóða
í vetur. Þar er að finna öflugt
lið úrvalshrúta, gamlar hetjur
í bland við framtíðar stjörnur.
Á stöðvunum verða í vetur 44
hrútar. Af þeim eru 28 hyrndir,
12 kollóttir, 2 feldfjárhrútar og
2 forystuhrútar. Í heildina komu
inn 16 nýir hrútar í haust.
Kynbótamat það sem fylgir
hrútunum er byggt á nýjustu
gögnum fyrir hvern eiginleika.
Mat á mjólkurlagni er því byggt
á uppgjöri skýrslurhaldsins frá
haustinu 2017. Frjósemismatið
byggir á niðurstöðum frá því í vor
og skrokkgæðamatið er glóðvolgt
en það tekur tillit til gagna frá
nýliðnu hausti. Þeir stöðvahrútar
sem nú standa efstir í kynbótamati
fyrir holdfyllingarmat með 123 stig
eru þeir Durtur 16-994 frá Hesti
og Dúlli 17-813 frá Miðdalsgröf
sem er nýr hrútur á stöð. Ef horft
er til einkunnar fyrir skrokkgæði,
þar sem gerð og fita hafa jafnt vægi
eru þrír hrútar sem eru efstir með
117 stig. Það eru Fáfnir 16-995
frá Mýrum 2, Mávur 15-990 frá
Mávahlíð og Tvistur 14-988
frá Hríshóli. Fyrir frjósemi
dætra stendur Klettur 13-962 frá
Borgarfelli á toppnum með 120
stig og fyrir mjólkurlagni er Blær
11-979 frá Kambi/Gróustöðum
hæstur með 123 stig. Nánar má
skoða þetta í hrútaskrá eða inn í
Fjárvís.is.
Hrútaskrá og hrútafundir
Útgáfu hrútaskrár verður að vanda
fylgt eftir með hrútafundum
búnaðarsambandanna um allt
land. Þeir fundir hafa verið
fjölsóttir og vonandi verða þeir
það áfram. Yfirlit yfir fundina má
sjá í meðfylgjandi töflu. Áætlað
er að fyrstu fundir verði haldnir
miðvikudaginn 21. nóvember.
Hvet ég sauðfjárbændur til að gefa
ekkert eftir í kynbótastarfinu þótt á
móti blási í greininni.
Bændur verði duglegir að prófa
Það er ekki síður áríðandi
nú en stundum áður, að
framleiðslugripirnir hafi virkilega
getu til að skila miklum og
verðmætum afurðum. Mælt er
með að bændur noti í bland gömlu
höfðingja stöðvanna, sem flestir
eru mikið reyndir úrvalsgripir og
þá nýju spennandi hrúta sem nú
hafa bæst við. En mikilvægt er
fyrir ræktunarstarfið að bændur
séu duglegir að prófa sem flesta af
nýju hrútunum þannig að þeir fái
sem jafnasta og besta notkun.
Eyþór Einarsson
ábyrgðarmaður í
sauðfjárrækt
ee@rml.is
Búnaðarsamtök Vesturlands Mið 21. nóv . Hvanneyri kl. 20:30
Búnaðarsamtök Vesturlands Mán 26. nóv. Breiðabliki, Snæfellsnesi kl. 20:30
Búnaðarsamtök Vesturlands Mið 28. nóv. Grunnskólinn Reykhólum kl. 15:30
Búnaðarsamtök Vesturlands Mið 28. nóv. Dalabúð, Búðardal kl. 20:00
Búnaðarsamtök Vesturlands Fim 29.nóv. Ásgarði, Kjós 21:00
Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda Þri. 27. nóv. Ásbyrgi, Miðfirði Kl. 14:00
Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda Þri. 27. nóv. Sal BHS Húnabr. 13, Blönduósi kl. 20:00
Búnaðarsamband Skagfirðinga Mið 28. nóv. Tjarnarbær kl. 20:00
Búnaðarsamband Eyjafjarðar Fim 29. nóv. Melar Hörgárdal kl. 13:00
Búnaðarsamband S-Þingeyinga Mán. 26. nóv. Breiðamýri kl. 14:00
Búnaðarsamband N-Þingeyinga Mán. 26. nóv. Svalbarði, kl. 20:00
Búnaðarsamband Austurlands Þrið.27. nóv. Hótel Valaskjálf (Þingmúli), Egilsstöðum kl. 20:00
Búnaðarsamband Suðurlands Mið 21. nóv. Hótel Klaustur, Kirkjubæjarklaustri kl. 13:30
Búnaðarsamband Suðurlands Mið 21. nóv. Ferðaþjónustan Smyrlabjörgum kl. 20:00
Búnaðarsamband Suðurlands Fim 22. nóv. Félagslundur, Flóahreppi kl. 13:30
Búnaðarsamband Suðurlands Fim 22. nóv. Hótel Smáratún, Fljótshlíð kl. 20:00
Hrútar sæðingastöðvanna veturinn 2018-2019
Suðurland - Þorleifskot Vesturland - Borgarnes
10-920 Kölski frá Svínafelli 2 11-946 Borkó frá Bæ
13-961 Bergur frá Bergsstöðum 11-947 Kraftur frá Hagalandi
13-962 Klettur frá Borgarfelli 12-960 Malli frá Bjarteyjarsandi
13-984 Gutti frá Þóroddsstöðum 13-953 Dreki frá Hriflu
14-800 Bíldur frá Árbæjarhjáleigu 14-801 Spakur frá Oddsstöðum
14-987 Frosti frá Ketilseyri 14-986 Bergson frá Valdasteinsstöðum
14-988 Tvistur frá Hríshóli 15-802 Angi frá Klifmýri
15-803 Eiríkur frá Leifsstöðum 15-807 Raxi frá Árbæjarhjáleigu
15-804 Gunni frá Efri-Fitjum 15-990 Mávur frá Mávahlíð
15-805 Fjalldrapi frá Hesti 15-992 Óðinn frá Skörðum
15-806 Náli frá Oddsstöðum 16-995 Fáfnir frá Mýrum 2
15-989 Drangi frá Hriflu 17-809 Glæpon frá Hesti
15-991 Njörður frá Gilsbakka 17-810 Köggull frá Hesti
16-994 Durtur frá Hesti
17-808 Drjúgur frá Hesti
11-979 Blær frá Kambi 12-970 Brúsi frá Kollsá
13-811 Jökull frá Heydalsá 1 13-971 Ebiti frá Melum
13-982 Móri frá Bæ 1 13-981 Molli frá Heydalsá 1
14-972 Fannar frá Heydalsá 1 14-812 Reykur frá Árbæ/Teigi
15-983 Kollur frá Árbæ 14-973 Plútó frá Heydalsá 1
17-813 Dúlli frá Miðdalsgröf 17-814 Guðni frá Miðdalsgröf
09-939 Lobbi frá Melhól 12-978 Melur frá Melhól
14-815 Strumpur frá Gunnarsstöðum
Forystuhrútar
Hyrndir
Kollóttir
Feldfjárhrútar
Siðgæðisvottanir
Þegar viðurkennt siðgæðismerki
er á vöru þýðir það (e: fairtrade)
að framleiðendur og kaupmenn
hafi uppfyllt fairtrade staðla
sem eru þróaðir til að taka á
valdaójafnvægi í viðskipta-
samböndum, óstöð ugum mörk-
uðum og því óréttlæti gagnvart
frum framleiðendum sem getur
einkennt hefð bundin viðskipti
stórfyrir tækja við bændur,
einkum smábænda samfélög í
þriðja heiminum.
Kaup á siðgæðisvottuðum vörum
er valkostur við hefðbundin viðskipti
sem byggir á samstarfi
framleiðenda og
neytenda. Þegar
bónda gefst færi
á að selja vörur
sínar samkvæmt
fairtrade skilmálum
er líklegra að hann
fái betri samninga
og viðskiptakjör.
Markmiðið er að
það gefi honum
möguleika á betri
lífskjörum og verði betur í stakk
búinn til að gera framtíðaráætlanir.
Tilgangurinn með fairtrade er því
að veita neytendum möguleika á að
draga úr fátækt í gegnum sín daglegu
innkaup.
Siðgæðismarkaðurinn
Markaður fyrir fairtrade vottaðar
vörur hefur farið vaxandi og eins
og sést á grafinu fimmfaldaðist
salan á tíu árum. Um 90% af sölu
fairtrade vara er innan Evrópu
og Norður Ameríku. Stærstu
markaðirnir árið 2015 voru Bretland,
Þýskaland og Bandaríkin og hæsta
markaðshlutdeild fairtrade vottaðra
vara í Sviss, Svíþjóð, Finnlandi og
Írlandi.
Þær vörur sem einna helst eru
fairtrade vottaðar eru kaffi,
te, súkkulaði, bananar og
hrísgrjón. Sem dæmi standa
bananar, kakó og kaffi á bak
við 80% álagstekna Fair Trade
International samtakanna sem
eru langstærstu samtökin á
þessu sviði í heiminum.
Könnun meðal bandarískra
neytenda
Í könnun sem var framkvæmd
meðal bandarískra neytenda
árið 2017 sagðist einn af
hverjum þremur velja fairtrade
vottaða vöru umfram aðrar vörur.
Sama hlutfall sagðist hafa minni
áhyggjur af verði ef fyrirtækið væri
samfélagslega og umhverfislega
ábyrgt og 60% sögðust líklegri til
að prófa vörur frá fyrirtækjum sem
væru samfélagslega ábyrg.
Ólík merki
Fjöldi ólíkra fair trade merkja
eru til í heiminum sem
sýnir vaxandi áhuga á
og útbreiðslu þessarar
hugmyndafræði; annars
vegar almenn (sjá mynd) og
hins vegar tengd ákveðnum
fyrirtækjum eins og Hand
in Hand merki Rapunzel
eða samtökum eins og Fair
Trade Proof sem eru samtök
kaffibrennsluaðila.
Sem dæmi hefur kakóið
sem Nói Síríus notar í
súkkulaðið sitt undanfarin ár komið
frá Barry Calibut sem kaupir kakóið
af bændum í Cocoa Horizons sem eru
samtök um sanngjörn viðskipti með
kakó, vottuð af þriðja aðila og undir
eftirliti Swiss Federal Foundation
Supervisory Authority. Barry Calibut
og þeirra viðskiptavinir borga
yfirverð fyrir kakóið og rennur
mismunurinn til verkefna á vegum
Cocoa Horizons.
– Oddný Anna Björnsdóttir
er bóndi og sjálfstætt starfandi
ráðgjafi. Greinar í Bændablaðinu
um vottanir og upprunamerkingar
byggjast á verkefni sem hún vann
fyrir Íslandsstofu veturinn 2018.
Greiningin er aðgengileg í heild
sinni á vef Íslandsstofu.
Oddný Anna Björnsdóttir
objornsdottir@gmail.com
VOTTANIR & UPPRUNAMERKINGAR MATVÆLA