Bændablaðið - 15.11.2018, Síða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201854
Í tvígang hef ég prófað Mitsubishi
Outlander PHEV 2014 og 2016 og
í bæði skiptin enduðu þeir í lok
árs sem bíll ársins í samantekt
áranna tveggja. Nú er komin enn
ein útgáfa af bíl frá Mitsubishi sem
ber þetta sama nafn.
Breytingarnar eru miklar og
allar til góðs, þó svo að enn vanti
varadekkið í bílinn var ég ánægður
í lok prufuakstursins.
Miklar breytingar frá fyrri bílum
Bíllinn virðist við fyrstu sýn ekki
mikið breyttur, en breytingarnar eru
það miklar að erfitt er að telja þær
allar upp.
Í fyrsta lagi kemst bíllinn lengra
á rafhleðslunni (samkvæmt bæklingi
um 10% lengra, eða um 40 km).
Bensínmótorinn er kraftmeiri
en samt sparneytnari, uppgefin 135
hestöfl. Hann er sagður eyða innan
við 10 lítrum á hundraðið ef allt
rafmagn er búið, en samanlagt eru
mótorarnir 230 hestöfl. Snerpan í
bílnum er mun skemmtilegri en hún
var í síðasta bíl sem ég prófaði.
Þægindi eru meiri bæði
fyrir ökumann og farþega.
Bakkmyndavélin er betri, en mestan
mun fann ég á skriðvörninni. Þó
vantar samt enn varadekkið í bílinn.
Ný skriðvörn og mikið breytt
fjórhjóladrif
Síðast var þessi bíll uppfærður 2016
og voru allar breytingarnar til góðs
og þæginda, mestan mun sem ég
fann á nýja bílnum er ný og uppfærð
skriðvörn og hvernig aflinu er skilað
í hjólin þrátt fyrir hálku og snjó.
Að gefa bílnum vel inn á hálum
og snjóugum vegi er svolítið
sérstakt. S-AWC aldrifsbúnaðurinn
virkar í samvinnu við að koma sem
mestum krafti í jörðina og bílnum
áfram án þess að spóla eða renna
til. Spólvörnin og skriðvörnin hjálpa
til og er magnað að finna hvernig
tölvubúnaðurinn vinnur saman til
þess að gefa sem mest grip í akstri
þrátt fyrir snjó og hálku.
Skriðvörnin er einhver sú besta
og skemmtilegasta sem ég hef
prófað í bíl. Hún minnir mjög á
skriðvörnina í Mitsubishi L200
og Honda CRV sem eru með
skemmtilegasta skriðvarnarbúnað
í bílum sem ég hef prófað hingað
til.
Mikið af góðum öryggisbúnaði og
ýmsu sem eykur vellíðan í akstri
Eins og í fyrri bílum af Mitsubishi
Outlander PHEV er bíllinn vel
hljóðeinangraður og heyrir maður
nánast ekkert í mótornum þegar
hann er í gangi. Til merkis um það
þá mældist hávaði inni í bílnum 66
desíbel með mótorinn í gangi á um
90 km hraða.
Hiti er í stýrinu, upphituð
framrúða, akreinalesari, blind-
hornsvari og í bílnum eru fjórar
myndavélar tengdar bakk-
myndavélinni sem gefa manni 360
gráðu sýn við að bakka í stæði sem
dæmi.
Sé ekið með hraðastillinn (cruse
control) þá les bíllinn ökutækið
sem er fyrir framan og ef það
ökutæki hægir á eða stoppar, þá
gerir Mitsubishi Outlander PHEV
það líka. Sé hins vegar verið að
aka bílnum á venjulegan máta og
ekið er óþarflega nálægt næsta bíl
á undan lætur varnarbúnaður vita
af árekstrarhættu með hljóðmerki.
5 ára ábyrgð og 8 ára
rafhlöðuábyrgð
Hægt er að fá fjórar mismunandi
gerðir af Mitsubishi Outlander
PHEV, Invite, Intenese, Instyle og
S Edition tvinnbíl, en tvær útfærslur
af sjö manna Mitsubishi Outlander
án rafmagnsmótors með 150 hestafla
bensínmótor.
Ódýrasti Mitsubishi Outlander
PHEV er Invite sem kostar
frá 4.690.000 sem kemur á 16
tommu felgum með örlítið minni
bremsum, en ætti að henta best
sem landsbyggðarbíll fyrir holótta
malarvegi þar sem að gúmmíið er
aðeins meira. Það gefur þægilegri
fjöðrun en í hinum öllum bílunum
sem eru á 18 tommu felgum, en eru
að sama skapi skemmtilegri í akstri
á bundnu slitlagi.
Dýrasti bíllinn er S Edition sem
kostar 6.090.000.
Allir Mitsubishi Outlander PHEV
eru með 5 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð
á rafhlöðu.
Sennilega er þessi bíll einhver
sá alhagstæðasti bíll á markaðnum
hvað rekstur varðar og mikið mega
bílarnir vera góðir sem ég prófa það
sem eftir er af árinu ef þeir eiga að
komast upp fyrir þennan í vali á bíl
ársins.
Allar nánari upplýsingar fyrir
áhugasama er hægt að nálgast á
vefsíðunni www.hekla.is.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
EVPr Oi tsM dbi h ti u s u lan e H
Við fyrstu sýn er Mitsubishi Outlander PHEV ekki mikið breyttur. Myndir / HLJ