Bændablaðið - 15.11.2018, Page 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201858
LESENDABÁS
Innleiðing erfðamengjaúrvals
Þann 3. september síðastliðinn
hófst doktorsverkefni mitt við
Háskólann í Árósum. Verkefnið er
fjármagnað af Bændasamtökum
Íslands, Landssambandi
kúabænda og Auðhumlu. Tildrög
verkefnisins eru þau að aðalfundur
LK árið 2016 ályktaði að fela
fagráði að kanna möguleika á
innleiðingu erfðamengjaúrvals
(einnig kallað erfðamarkaúrval)
og hagkvæmni þess.
Í kjölfar þeirrar ályktunar hófst
samstarf við vísindamenn við
Háskólann í Árósum og ákveðið var
að arfgreina nokkur þúsund gripi
og styrkja verkefni doktorverkefni
í kynbótafræði um þetta efni. Ferlið
hefur því gengið nokkuð hratt fyrir
sig; arfgreiningunum er að ljúka og
vinnan að hefjast rúmum tveimur
árum eftir samþykkt aðalfundarins.
Efni doktorsverkefnisins er
erfðamarkarækt í litlum kúastofnum,
íslensku arfgerðargögnin verða
lögð til grundvallar og gögn
frá öðrum kúakynjum notuð
eftir þörfum. Doktorsverkefnið
hefur þrjú megináherslusvið. Í
fyrsta lagi er skyldleiki íslenskra
nautripa við önnur kyn, í öðru
lagi erfðamarkakynbætur
lítilla kúastofna. Í þriðja lagi
skyldleikarækt í stofnum sem eru
erfðamarkakynbættir. Innleiðing
erfðamarkarækrar í kúastofn er
í sjálfu sér ekki verkefni fyrir
doktorsnema en rannsóknir á
aðferðum eru það. Innleiðing
aðferðanna er á hendi samtaka
bænda en mun byggja á niðurstöðum
doktorsverkefnisins.
Skyldleiki íslenskra kúa við
önnur kúakyn
Fyrsti hluti verkefnisins lýtur að því
að kanna fyrirliggjandi gögn. U.þ.b.
7.500 kýr og 500 naut hafa verið
arfgreind með 50k SNP flögu. SNP
(stakbreytingar, e. single nucleotide
polymorphism) flögur greina arfgerð
einstaklings á þúsundum sæta. Þær
upplýsingar verða bornar saman
við slíkar greiningar á öðrum
kúakynjum. Fyrri rannsókn benti
til að íslenskar kýr væru skyldari
frönskum og breskum kúm en
norrænum. Sú niðurstaða kom
nokkuð á óvart en frekari rannsókna
er þörf. Með fleiri erlendum
kúakynjum í samanburðarhópnum
gefst gleggri mynd af uppruna
stofnsins. Þar verður meðal annars
fróðlegt að bera íslenskar kýr við
írskar kýr og við gömlu norsku
kúakynin, sem ekki voru hluti af
fyrri rannsókn. Sama rannsókn sýndi
að íslenskir nautgripir hafa töluverða
erfðalega sérstöðu miðað við
nautgripi í Evrópu. Sú niðurstaða var
í samræmi við væntingar, þar sem
kynið hefur að öllum líkindum verið
einangrað að mestu frá landnámi.
Auk þess að kortleggja skyldleika
íslenskra kúa við önnur kyn verður
skyldleiki innan kynsins kortlagður.
Vera má að einhver hluti íslenska
stofnsins skeri sig frá öðrum,til
dæmis gæti verið breytileiki milli
landshluta. Fyrirliggjandi gögn gefa
færi á að rannsaka hvort erfðaþáttur
finnist sem stýrir ófrjósemi í
kvígum. Ófrjósemi íslenskra kvígna
er hærri en gerist víða annars staðar
og eitt af fyrstu verkunum verður að
leita að breytileika í erfðamenginu
sem veldur ófrjósemi. Heimildir
eru til um flutning danskra kúa til
Íslands á 18. og 19. öld. Hafi sá
innflutningur haft áhrif á íslenska
kúastofninn ætti að vera hægt að
sjá þess merki að hluti íslenska
erfðamengisins sé líkur að uppruna
(e. identical by descent) erfðamengi
danskra kúa. Sömuleiðis verður
mögulegt að reikna skyldleikarækt
í erfðamenginu útfrá arfgerð og bera
saman við skyldleikarækt metna
útfrá ættartölu. Áætlað er að þessum
hluta verkefnisins verði lokið næsta
vor.
Kynbótamat
Næsta sumar verða fyrirliggjandi
gögn fyrir fyrsta mjaltaskeið
flestra kvígna í gagnasafninu. Þá
er áætlað að annað undirverkefni
doktorsverkefnisins hefjist, sem
fjallar um kynbótagildi metið með
erfðamörkum (e. genomically
estimated breeding values). Öryggi
kynbótamatsins í íslenska stofninum
er sú stærð sem hefur einna mest
að segja um fýsileika þess að taka
upp erfðamarkarækt íslenskra kúa.
Vegna smæðar íslenska stofnsins
er fjöldi afkvæmaprófaðra
nauta takmarkandi fyrir öryggi
e r fðamarkakynbótamats ins .
Rannsóknir hafa sýnt að notkun
upplýsinga úr öðrum stofnum getur
aukið öryggið og ætlunin er að
kanna hveru hægt er að hækka það í
íslenska stofninum með notkun slíkra
upplýsinga.
SNP flagan EuroG10k hefur
verið búin til með sætum sem
stjórna eftirsóttum eiginleikum
hjá kúm. Ef sama fjölbrigðnin (e.
polymorphism) veldur breytileika
í eiginleikum í íslenskum kúm og
þeim kynjum sem EuroG10k flagan
byggir á, ætti öryggi kynbótamats
íslenskra kúa að vera hærra með
tilreiknuðum gögnum (e. imputation)
af EuroG10k flögunni yfir á íslensku
arfgreiningarnar. Svokallaðar
GWAS rannsóknir (e. genome-
wide association studies) hafa verið
notaðar til að meta áhrif breytileika
í erfðamengi á svipgerð eiginleika í
nautgripum og öðru búfé. Með því
að auka vægi svæða sem hafa sýnt
tengsl við eiginleika sem valið er
fyrir við gerð kynbótamatsins gætu
þessar upplýsingar aukið öryggið.
Upplýsingar úr öðrum kúakynjum
verða notaðar á fjóra vegu:
1. Engin notkun upplýsinga frá
öðrum stofnum
2. Tilreiknun af EuroG10k
flögunni á íslensku gögnin.
3. Breytt vægi á mismunandi
svæðum erfðamengisins,
byggt á niðurstöðum GWAS
rannsókna á öðrum kúakynjum.
4. Blanda af leið 2 og 3.
Hægt verður að nýta þá leið sem gefur
hæst öryggi í íslenska kynbótastarfinu
auk þess sem upplýsingar fást um
öryggi kynbótamatsins.
Skyldleikarækt
Þriðji hluti verkefnisins fjallar um
skyldleikarækt í litlum stofnum sem
ræktaðir eru með erfðamarkaúrvali.
Annars vegar verður um að
ræða rannsókn á áhrifum
erfðamarkaræktar á skyldleikarækt
og erfðabreytileika í litlum stofnum,
og hinsvegar á vöktun og stjórnun
skyldleikaræktar í litlum stofnum.
Mikil skyldleikarækt eykur
líkurnar á dreifingu skaðlegra
samsæta um stofninn, eykur
áhrif skyldleikaræktarhnignunar
í stofninum og dregur úr
erfðabreytileika. Það hefur
vakið nokkurn ugg hversu
skyldleikarækt hefur aukist eftir
upptöku erfðamarkaræktar í
öðrum stofnum og því er þörf á
að rannsaka þetta efni frekar. Þar
sem að íslenski erfðahópurinn
er lokaður er mikilvægt að gæta
þess að skyldleikarækt verði ekki
of hröð. Ákjósanlegasta aðferðin
til að stjórna skyldleikarækt er
notkun kjörframlagaúrvals (e.
optimal contribution selection), en
margt er eftir órannsakað varðandi
notkun kjörframlagaúrvals í
erfðamarkarækt.
Hefðbundið mat á skyldleikarækt
er samkvæmt ættartölu einstaklinga
(e. pedigree inbreeding). Slíkt mat
á skyldleikarækt byggir á sæti sem
ekki er valið fyrir, en raunveruleg
skyldleikarækt getur verið hærri
á þeim stöðum í erfðamenginu
sem tengjast eiginleikum sem
valið er fyrir. Kjörframlagaúrval
hægir á breytingu á samsætutíðni,
en markmið úrvals er að breyta
samsætutíðni þeirra sæta sem stjórna
eftirsóttum eiginleikum. Með því
að setja mismunandi vægi á svæði
erfðamengisins verður hægt að leyfa
meiri breytingar á þeim svæðum sem
valin eru. Með hermirannsóknum
verða áhrif slíkra aðferða á lítinn
kúastofn metin.
Samstarf við samtök bænda
Þar sem að verkefnið hefur mikla
þýðingu fyrir hagkvæmni íslenskra
kúabúa og mjólkuriðnaðar verður
lögð áhersla á gott samstarf við
Landssamband kúabænda og
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
Það á bæði við varðandi stefnu
verkefnisins, þar sem hún getur tekið
breytingum í takt við niðurstöðurnar,
sem og dreifingu niðurstaðna
og þekkingar til ábyrgðarmanna
kynbótastarfsins. Baldur Helgi
Benjamínsson hefur verið fenginn
til að eiga sæti í doktorsnefnd
verkefnisins sem fulltrúi LK, BÍ og
Auðhumlu.
Ég vænti þess að íslenskir
kúabændur bíði spenntir eftir
niðurstöðum og innleiðingu
erfðamarkaræktar í stofninum.
Erfðaframfarir hafa aukist verulega í
öllum kúastofnum sem hafa tekið upp
erfðamarkarækt og því eftir miklu að
slægjast. Þó verður enn nokkur bið
eftir innleiðingu erfðamarkaræktar.
Doktorsnámið er fjögur ár en
nothæfar niðurstöður verða til reiðu
fyrir ábyrgðarmenn kynbótastarfsins
á meðan verkefninu vindur fram og
því hægt að undirbúa innleiðingu á
meðan verkefninu vindur fram.
Egill Gautason
Egill Gautason.
Einföld tækifæri til að minnka kolefnisspor
Umræðan um nauðsyn þess að
núverandi íbúar heimsins verði að
minnka kolefnisspor sitt er nú loksins
komin á það stig að langflestir skilja
alvöru málsins og eru þar af leiðandi
vonandi tilbúnir til að fara að gera
eitthvað.
Á meðan að fólk er að venja sig
við þá bláköldu staðreynd að framtíð
alls mannkyns er háð því að teknar
séu mjög afdrifamiklar ákvarðanir í
loftslagsmálum til verndar jörðinni er
ýmislegt sem almenningur getur gert
strax til að hjálpa á þeirri vegferð sem
framundan er.
Fyrir okkur Íslendinga dugar
ekki endalaust að vísa allri ábyrgð
á sundurgrafnar mýrar eða ropandi
jórturdýr. Í ranni hvers og eins eru
augljós og fjöldamörg tækifæri sem
kosta hvorki einstaklinga né samfélagið
neitt efnahagslega. Það er nefnilega á
svo ótalmörgum sviðum sem við eru
bæði sem einstaklingar og samfélag
að skilja eftir okkur algerlega óþarft
kolefnisspor.
Í þessu sambandi er nærtækt að
nefna þá gífurlegu notkun á bílum
sem er hér á landi og er sífellt að
aukast. Öllum sem um málið hugsa
ætti að vera fullkomlega ljóst að þarna
eru mjög mikil tækifæri til að draga
saman án þess að skerða lífsgæði.
Jarðefnaeldsneytisiðnaðurinn er líklega
sá iðnaður sem leggur mest af mörkum
við að gera kolefnissporið sem stærst.
Nýtum betur
Annar iðnaður sem virðist stjórna
neyslu of margra of mikið er
fataiðnaðurinn, sem af mörgum er
talinn silfurhafi ef litið er til stærðar
kolefnisspors meðal iðngreina. Það
er enginn vafi á því að nær allur
almenningur hér á landi getur
dregið verulega saman í neyslu
sinni á margskonar fötum. Að
sjálfsögðu veldur það því að nota
þarf sömu flíkina oftar áður en
henni er hent en hvaða gerir það
til? Auðvelt er að kaupa vörur af
meiri gæðum og jafnvel að velja þær
sem framleiddar eru við aðstæður
sem eru mannsæmandi og varan
hefur ekki verið flutt yfir hálfan
hnöttinn. Íslenskur fataiðnaður getur
hjálpað í þeirri viðleitni að minnka
kolefnisspor okkar sem hér búum.
Nauðsynlegt er líka fyrir fólk að
huga að því úr hverju föt þeirra eru
framleidd. Sumar gerðir fatnaðar eru
einfaldlega mun vistvænni en aðrar.
Í því sambandi má nefna t.d. ull,
hör, hreina bómull, leður og aðrar
skinnavörur.
Hugsum áður en við hendum
Nýting matvæla er einn þáttur sem
við öll getum gert miklu betur í.
Nú er talað um að a.m.k. þriðjungi
allra framleiddra og framboðinna
matvæla hér á landi sé hent. Á
sama tíma kvartar fólk yfir að
matur sé dýr. Einfaldasta leiðin til
að lækka matarkostnaðinn er að
borða allan þann mat sem keyptur
er. Almenningur og samtök þeirra
verða að beita verslanir sem henda
mat það miklum þrýstingi að þær
hætti slíkri sóun. Undanfarin misseri
hefur verið rekinn talsverður áróður
gegn neyslu kjöt- og mjólkurvara
þar sem kolefnisspor þeirra sé svo
stórt. Skilja má að hægt sé að klukka
sig út með því að hætta neyslu
þessara afurða. Þeir sem notast
hafa við tölur um losun kolefnis
við kjöt- og mjólkurframleiðslu ættu
að kynna sér nýjustu upplýsingar
um efnið. Til framtíðar verður
einn af hornsteinum þess að búa
á Íslandi að koma sem mest í veg
fyrir flutninga á nauðsynjum og
gera landið sem mest sjálfbært hvað
varðar matvælaframleiðslu.
Ein einfaldasta leið fólks til að
minnka beint kolefnisfótspor sitt er
að koma stjórn á allt sitt rusl. Það
er að sjálfsögðu algerlega óþolandi
að enn skuli vera urðað plast og
ýmis önnur efni sem brotna mjög
hægt niður í náttúrunni. Sem betur
fer eru mörg sveitarfélög búin að
koma þessum málum í viðunandi
horf en alltaf má gera betur. Því
miður er langt í land allt of víða og
líklega er staðan í þessum málum
almennt verri í sumum af stærri
sveitarfélögunum en mörgum hinna
minni.
Að sjálfsögðu er hægt að draga
fram ótal margt fleira sem fólk
getur með einföldum hætti gert
til að leggja sitt af mörkum strax
til að auka líkurnar á að næstu
kynslóðir geti átt hér á jörðu jafn
gott líf og við hin eldri. Einfaldir
hlutir eins og að minnka almenna
neyslu og fækka flugferðum, taka
þátt í skógrækt þurfa síður en svo að
draga úr lífsgæðum. Getur jafnvel
skapað innihaldsríkara líf.
Drífum í málinu – viljinn er allt
sem þarf!
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
þingflokksformaður
Vinstri grænna
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
9.2 rebóvemn