Bændablaðið - 05.07.2018, Page 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júlí 201818
Á liðnu ári var hið sérstæða
íslenska forystufé skilgreint sem
sérstakt fjárkyn. Samþykktu
þá þeir aðilar sem fara með
ræktunarmál sauðfjár hér á
landi tillögu þess efnis sem kom
fram í grein um forystufé, sem
birtist í Náttúrufræðingnum í
árslok 2015.
Var lagt til að ekki yrði lengur
litið á forystufé sem undirtegund
sauðfjárins, heldur væri rétt að
skilgreina það sem sértakt fjárkyn
vegna sérkenna sinna; bæði í atferli
og útliti.
Áhugi erlendis frá
Höfundar greinarinnar voru þau
Jón Viðar Jónmundsson, Lárus G.
Birgisson, Sigríður Jóhannesdóttir,
Emma Eyþórsdóttir, Þorvaldur
Kristinsson og Ólafur R.
Dýrmundsson. Ólafur segir
höfundana vera þeir innlendu
búvísindamenn sem helst
hafa unnið að athugunum og
rannsóknum á forystufénu.
„Í seinni tíð hafa erlendir
vísindamenn sýnt þessu fé líka
áhuga, samanber samnorrænu
rannsóknina sem kynnt verður í
Litháen,“ segir Ólafur. Hann vísar
þar til 100 ára afmælisráðstefnu
á vegum NJF (félags norrænna
búvísindamanna) í Kaunas sem
haldin var í lok júní, þar sem
Ólafur lagði fram vísindaleg gögn
um að framvegis verði forystufé
skilgreint sem sérstakt kyn á
Íslandi.
„Forystufé sker sig vissulega
úr öðru fé, einkum vegna þeirra
meðfæddu atferlislegu eiginleika
að fara á undan fé í rekstri.
Það er háfættara og ekki eins
þéttvaxið og annað íslenskt fé,
enda ekki kynbætt með tilliti til
kjöteiginleka. Þá er það svo til allt
mislitt og hyrnt. Forystufé er því
gjarnan mjög áberandi í hjörðinni
enda afar vökult.
Um árabil hefur verið unnið
að nokkrum rannsóknum á for-
ystufénu, þar með á hinu sérstæða
atferli þess. Nú er m.a. verið að
vinna úr niðurstöðum samnorræns
tilraunaverkefnis þar sem einkum
hafa verið könnuð viðbrögð kinda
af forystukyni við áreiti – svo sem
frá hundum, fólki og drónum –
samanborið við annað fé,“ segir
Ólafur.
Aðgreint frá sauðfé með
augljósum hætti
„Hin almenna viðmiðun er líf-
fræðileg og snertir bæði útlit og
atferli. Til þess að teljast sérstakt
kyn þarf sá erfðahópur að hafa
það mikil sérkenni að þau aðgreini
hann með augljósum hætti. Það
gerir forystuféð vissulega saman-
borið við annað íslenskt fé eins
og það er í dag,“ útskýrir Ólafur
þegar hann er spurður um það
hvernig skilgreiningin sé fengin.
„Þessi skilgreining er ekki neins
staðar bundin í lögum og reglu-
gerðum en við þekkjum þessi við-
mið úr erlendu samstarfi; norrænu,
evrópsku og alþjóðlegu. Þeir aðilar
hér á landi sem fara með ræktunar-
mál sauðfjár; erfðanefnd landbún-
aðarins, Bændasamtök Íslands og
Fagráð í sauðfjárrækt, staðfestu
þessa tillögu okkar greinarhöfunda
í fyrra.
Þessi skilgreining er algild og
nú fellur það í hlut erfðanefndar
landbúnaðarins að skrá íslenska
forystuféð sem sérstakt sauðfjárkyn
í hinn alþjóðlega gagnabanka fyrir
erfðaauðlindir búfjár í heiminum
sem er í vörslu FAO, Matvæla og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Skilgreiningin hefur því
alþjóðlegt gildi.“
Ólafur segir að rétt sé að hafa
í huga að forystufé sé hvergi
annars staðar til í heiminum. Í
Bandaríkjunum og Kanada sé verið
að byggja upp slíkan stofn með
sæðingum héðan en utan Íslands
sé ekki til hreinræktað forystufé.
Að sögn Ólafs er talið að
forystufjárkynið hér telji samtals
um 1.000 einstaklinga og
blendingar geti verið um 400. /smh
FRÉTTIR
Rannsóknamiðstöð ferðamála:
Ferðamenn ánægðir með
náttúru Kröflusvæðisins
Ferðamenn sem heimsækja
Kröflusvæðið eru mjög ánægð-
ir með náttúru svæðisins og
þykir hún falleg og áhrifamik-
il. Þetta er niðurstaða skýrslu
Rannsóknamiðstöðvar ferða-
mála, RMF sem gerði könnun
á afstöðu ferðamanna til
Þeistareykjastöðvar. Niðurstöður
benda til að áhrif virkjunarfram-
kvæmda geti tæpast talist umtals-
verð.
Skýrslan fjallar um rannsókn
sem var ætlað að meta áhrif
Kröfluvirkjunar og tengdra
mannvirkja á upplifun ferðamanna
og bera niðurstöður saman við
niðurstöður úr sambærilegri
rannsókn sem fór fram á
Blöndusvæði árið 2016.
Þótt svarendur könnunarinnar
telji Kröflusvæðið örlítið meira
manngert og talsvert háværara
en við átti um þá sem svöruðu
könnunum á svæðum þar
sem ekki var búið að virkja á,
eru ferðamenn engu að síður
mjög ánægðir með náttúru
svæðisins og finnst hún falleg
og áhrifamikil. Í samanburði
við þau svæði sem voru til
skoðunar í þeim rannsóknum
sem voru hafðar til hliðsjónar
eru ferðamenn við Kröflu
annaðhvort jafnánægðir eða
ánægðari með náttúru svæðisins.
Mannvirki virðast því ekki
hafa neikvæð áhrif á upplifun
þeirra, ef marka má niðurstöður
spurningakönnunarinnar. /MÞÞ
Mítill finnst í innfluttum búrfuglum:
Sníkillinn ekki fundist hér á landi áður
Matvælastofnun tilkynnti fyrir
skömmu innflytjendum búrfugla
þá ákvörðun sína að draga til
baka heimild til innflutnings
á búrfuglum sem verið hafa í
sóttkví síðan í febrúar. Ástæðan
eru ítrekuð brot innflytjanda á
þeim skilyrðum sem sett voru fyrir
innflutningnum.
Í vetur greindist mítillinn
Ornithonyssuss sylviarium á fugli
sem hafði drepist í sóttkví. Það
sníkjudýr hefur ekki fundist á
fuglum hér á landi áður. Sníkjudýrið
getur haft alvarleg áhrif á heilsu og
velferð fugla og því mikilvægt að
koma í veg fyrir að hann berist til
landsins. Í ljósi þess að ekki er hægt
að tryggja útrýmingu mítilsins með
meðhöndlun, ákvað Matvælastofnun
að hafna innflutningi á þessum
fuglahópi og gaf innflytjanda kost
á að flytja fuglana úr landi eða aflífa
þá.
Við skoðun Matvælastofnunar
kom í ljós að um þriðjung af þeim
fuglum sem áttu að vera eftir í sótt-
kvínni vantaði og að innflytjandi
hafði ekki gert grein fyrir afdrifum
þeirra. Til stóð að aflífa þá fugla
sem eftir voru í sóttkvínni í dag
en innflytjandi neitaði starfsfólki
Matvælastofnunar um aðgang.
Meðal skilyrða sem gilda um
sóttkví er að komi upp veikindi eða
slys hjá fugli skuli tilkynna það til
Matvælastofnunar svo fljótt sem
auðið er. Jafnframt er tekið fram að
ef fugl drepst í sóttkví skuli hann
krufinn. Við eftirlit í sóttkvínni kom
í ljós að fjöldi fugla var aðeins 232,
sem er 126 fuglum færra en í upp-
hafi.
Innflytjandi hafði aðeins
tilkynnt um einn dauðan fugl
til Matvælastofnunar en afhent
samtals 13 hræ í eftirlitsheimsóknum
stofnunarinnar. Auk þess höfðu
þrír fuglar verið aflífaðir í
rannsóknartilgangi. Um afdrif 110
fugla er því ekki vitað en að sögn
innflytjanda höfðu þeir drepist og
hræjum þeirra þegar verið eytt í
sorpbrennslustöð.
Stofnunin hefur kannað
möguleika á að senda fuglana aftur
til upprunalandsins en það krefst
vottunar á heilbrigði þeirra sem er í
ljósi hárrar dauðatíðni ekki hægt að
gefa út. /VH
Íslenska forystuféð er nú skilgreint
sem sérstakt fjárkyn
– Er einstakt á heimsvísu – Niðurstaðan kynnt norrænum búvísindamönnum
91 . júlí
Öll erlend starfsemi Mjólkur-
samsölunnar hefur verið nú verið
flutt yfir í nýstofnað dótturfélag
MS en frá og með 1. júlí heyrir
allur útflutningur fyrirtækisins
undir, Ísey útflutning ehf. (Ísey
Export ltd.).
Þessar breytingar eru liður í
því að setja meiri kraft og fókus á
alþjóðlega vörumerkið Ísey skyr á
erlendum mörkuðum. Ísey skyr er
nú fáanlegt í 15 löndum og umsvifin
alltaf að aukast enda gríðarlega
mikill áhugi á íslenska skyrinu um
heim allan. Ísey útflutningur ehf.
sér einnig um allan annan útflutning
á vörum sem MS selur á erlenda
markaði.
Þeir starfsmenn sem áður
unnu á útflutningssviði MS munu
flytjast með yfir í dótturfyrirtækið
og hafa þessar breytingar engin
áhrif á daglega starfsemi. Jón
Axel Pétursson lætur af störfum
sem framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs MS, sem hann hefur
sinnt frá árinu 2007, og tekur
við starfi framkvæmdastjóra hjá
Ísey útflutningi ehf. Þá mun Erna
Erlendsdóttir, sem sinnt hefur starfi
útflutningsstjóra MS, taka við sem
sölu- og markaðsstjóri hjá nýja
félaginu.
Að sögn Jóns Axels Péturssonar,
framkvæmdastjóra Ísey útflutn-
ings ehf., eru þetta skynsamlegar
breytingar til að fylgja eftir þeim
fjölmörgu tækifærum sem hið
alþjóðlega vörumerki Ísey skyr
stendur frammi fyrir. „Það eru mörg
sóknartækifæri fram undan fyrir Ísey
skyr og töldum við skynsamlegt að
halda utan um þessi tækifæri og efla
starfið í sérstöku félagi sem einbeit-
ir sér að þessum verkefnum. Með
þessu getum við jafnframt sinnt
þjónustu við viðskipavini okkar
enn betur og einfaldað verkferla til
mikilla muna.“
Ísey skyr er nú selt á eftir-
farandi erlendum mörkuðum:
Norðurlöndunum, Færeyjum,
Bretlandi, Írlandi, Möltu, Sviss,
Rússlandi, Hollandi, Lúxemborg,
Belgíu og Ítalíu. Í byrjun næsta
árs munu svo fleiri lönd bætast í
hópinn þegar sala á Ísey skyri hefst
í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Japan.
Nýtt dótturfélag Mjólkursamsölunnar:
Ísey útflutningur ehf. stofnað
fyrir erlenda starfsemi MS
Friðrik Már Baldursson nýr formaður
verðlagsnefndar búvara
Friðrik Már Baldursson, prófessor
í hagfræði við Háskólann í
Reykjavík, verður formaður
nýskipaðrar verðlagsnefndar
búvöru.
Friðrik er með doktorspróf í
tölfræði og hagnýtri líkindafræði
frá Columbia University í
Bandaríkjunum. Hann starfaði
um árabil hjá Þjóðhagsstofnun og
síðustu 15 ár sem prófessor við
Háskóla Íslands og Háskólann í
Reykjavík. Friðrik Már hefur m.a.
verið formaður stjórnar Hafrann-
sóknastofnunar og Landsnets
og setið í bankaráði Seðlabanka
Íslands.
Verðlagsnefndin er skipuð
sjö einstaklingum og samkvæmt
búvörulögum skulu tveir fulltrúar
vera tilnefndir af samtökum launþega,
tveir af Bændasamtökum Íslands,
tveir af Samtökum afurðastöðva í
mjólkurframleiðslu auk þess sem
ráðherra landbúnaðarmála skipar
formann nefndarinnar.
Forystusauðirnir Eitill og Glænefur á Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi
haustið 2015. Mynd / TB
Mítillinn Ornithonyssuss sylviarium
hefur ekki fundist hér á landi áður og
getur haft alvarleg áhrif á heilsu og
velferð fugla.
Við skoðun Matvælastofnunar kom
í ljós að um þriðjung af þeim fuglum
sem áttu að vera eftir í sóttkvínni
gert grein fyrir afdrifum þeirra.
Mynd / HKr.
Íslenskir lögreglumenn fengu á
dögunum að bragða Ísey skyr í
Rússlandi sem framleitt er af Rúss-
um samkvæmt samningi við MS.