Bændablaðið - 05.07.2018, Qupperneq 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júlí 201830
Frækinn ferill frumburðarins á Vesturkoti verður seint endurtekinn:
Það er víst aðeins einn Spuni
Enginn hefði getað gert sér í
hugarlund hvaða ævintýri var í
uppsiglingu þegar fyrsta folald
hrossaræktenda á Vesturkoti á
Skeiðum leit dagsins ljós árið
2006. Ferill Spuna hefur að
sögn fjölskyldunnar verið röð
hamingjustunda. Um helgina
mun fjölskyldan gleðjast enn
einu sinni yfir árangri Spuna
þegar þau munu hampa æðstu
viðurkenningu hrossarækt-
arinnar. Árið er uppskeru-
drjúgt í Vesturkoti því nýlega
fjölgaði fjölskyldumeðlimum.
Bændablaðið leit í heimsókn.
Hulda Finnsdóttir og Þórarinn
Ragnarsson tóku við rekstrinum
á hrossaræktarbúinu Vesturkoti
fyrir ári síðan. Við það breyttu
þau rekstrarformi staðarins en nú
mætti kalla Vesturkot alhliða þjón-
ustumiðstöð fyrir hesta og hesta-
menn. Þar eru um 30 hross á húsi
í tamningu og þjálfun nær allan
ársins hring, fjöldi hrossa fá þar
uppeldi og fóðrun, ræktunarhross
hafa athvarf auk þess sem boðið
er upp á reiðkennslu. Um 1–2
starfsmenn starfa að jafnaði með
þeim Þórarni og Huldu, sem rétt
er risin upp úr sængurlegu þegar
Bændablaðið ber að garði.
Þessa dagana fer mesta vinn-
an í að para stóðhesta og hryssur.
Útgerð á vinsælum stóðhesti kall-
ar á umfangsmikið utanumhald.
Hafa þarf skrásetningar yfir pant-
anir á hreinu og fylgja þeim eftir,
vönduð umönnun um hestinn og
hryssurnar sem til hans koma eru
grundvallarforsenda og samskipti
við eigendur þeirra mikilvæg, svo
ekki sé talað um að halda uppi
almennilegri aðstöðu bæði fyrir
dýr og menn.
Það má því auðveldlega segja
að Spuni frá Vesturkoti sé út af
fyrir sig heilt fyrirtæki. Hann á
meira að segja sitt eigið myllu-
merki – #þaðerbaraeinnspuni.
Sterkt bakland
Spuni er fyrsta folald ræktað af Finni
Ingólfssyni, fv. ráðherra og seðla-
bankastjóra. Árið var 2006 og hafði
Finnur þá nýlega fest kaup á jörðinni
Vesturkoti.
„Það hafði alltaf verið draumur
hjá pabba að eiga eina ræktunarhrys-
su. Þegar hann varð fimmtugur árið
2004 ákváðum við systkinin og
mamma að gefa honum eina slíka.
Einar Öder Magnússon, frændi
okkar, benti okkur á þessa meri,
Stelpu frá Meðalfelli, sem hann
hafði haft í tamningu og sýnt það
sama ár. Við keyptum hana og pabbi
notaði Stelpu sem reiðhryssu fyrsta
árið en hélt henni svo árið 2005,“
segir Hulda.
Stelpa frá Meðalfelli, móðir
Spuna, er undan góðhestinum Oddi
frá Selfossi sem Einar Öder ræktaði
og átti. Móður Stelpu, Eydísi frá
Meðalfelli, þekkti Einar einnig vel,
en Svanhvít Kristjánsdóttir, kona
Einars, sýndi hana fyrir kynbóta-
dómi árið 1996. Hún hlaut þá 8,93
fyrir hæfileika sem þótti sjaldgæfur
dómur en þess má geta að aðeins
ellefu hross hlutu 8,90 eða hærra
fyrir hæfileika fyrir árið 2000.
„Það vilja auðvitað allir sem
rækta eða tengjast forfeðrunum
bendla gæði hestsins við þá. En
Einar Öder vildi alltaf meina að
Spuni væri líkastur Eydísi ömmu
sinni, hún hefði víst verið með svona
svakalegt fet og svipuð í geðslagi.
Ég hef nú alltaf ímyndað mér að
svo sé, úr því að hann sagði það. En
auðvitað eru margir þættir sem gera
Spuna að þeim hesti sem hann er.
Það standa frábærir hestar í röðum
bak við hann, eins og Álfadís frá
Selfossi, sem er sjálfsagt mesta rækt-
unarundur sem hefur komið fram
seinni ár,“ segir Þórarinn.
Þórarinn segir að Finnur hafi
farið á Landsmót hestamanna árið
2000 og séð þar Álfadísi í kynbóta-
dómi 4 vetra og orðið afar hrifinn
af henni. Einar Öder hafi svo bent
honum á að Álfasteinn, sonur henn-
ar, væri til taks í nágrenninu árið
2005 og þeir urðu sammála um að
halda Stelpu við hann.
Síðan þá hefur Stelpa eign-
ast tólf afkvæmi og eru þau mörg
tengd svipuðum blóðlínum, hún á
t.a.m. tvö afkvæmi undan Álfarni frá
Syðri-Gegnishólum sem er albróðir
Álfasteins.
Ævintýraleg ásókn eftir
stjörnudóm
Ólafur Ásgeirsson tamdi Spuna og
þjálfaði fyrstu þrjú árin, en Þórður
Þorgeirsson sýndi hann fyrst fyrir
kynbótadómi árið 2011, þá 5 vetra
gamlan. Dómurinn reyndist sögu-
legur, hann fékk 8,92 í aðaleinkunn
sem er hæsti kynbótadómur sem 5
vetra hestur hefur hlotið og Spuni
varð stjarna á einni nóttu. Hann kom
svo fram á Landsmóti það sama ár
og var þar hæst dæmda hross móts-
ins.
Ýmsar sögur af einhvers konar
múgæsingu sem myndaðist í fram-
haldi eru nokkuð litríkar. Aðsóknin
í gæðinginn átti víst að hafa verið
svo yfirdrifin að langar bílaraðir með
HROSS&HESTAMENNSKA
Spuni og Þórarinn bregða á leik.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
ghp@bondi.is
Úti á túni una tugir hryssna sér vel,
en þær eru á leið til fundar með stóð-
hestum á Vesturkoti. Hér er Hrafn-
hetta frá Steinnesi og folaldið Rúsína
undan Hring frá Gunnarsstöðum.
Spuni er fullur sjálfsöryggis að sögn þeirra Huldu Finnsdóttur og Þórarins Ragnarssonar og gerir sér fulla grein fyrir stöðu sinni sem kóngs á Vesturkoti. Myndir/ghp