Bændablaðið - 05.07.2018, Síða 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júlí 201858
LESENDABÁS
Minningarstund um mýrdælska förukonu,
Vigdísi Ingvadóttur f. 1864–d. 1957
Hinn 16. júní var ég viðstaddur eftir-
minnilega athöfn í Skeiðflatarkirkju
í Mýrdal.
Þar var verið að minnast Vigdísar
Ingvadóttur úr Mýrdal, sem fædd
var í Norður-Hvammi árið 1864, en
átti heimili seinni hluta ævinnar á
Norður-Hvoli.
Hún var einstæðingur, förukona,
sem gekk undir nafninu Vigga
gamla. Hún fór milli bæja í Mýrdal
og Eyjafjöllum, oftast fótgangandi,
frá því að hún var 10 ára fram undir
það að hún lést 92 ára gömul árið
1957. Ástæða þess að hún lagðist í
flakk var líklega sú, að hún var lítils
metin af fjölskyldu sinni. Hún fann
til einstæðingsskapar síns og kallaði
sig aumingja, en kunni að svara fyrir
sig, svo að eftirminnilegt var, ef að
henni var vegið, sem ekki var oft.
Mér þótti vænt um þessa gömlu
konu, þótt ég hefði aldrei kynnst
henni.
Tengdafaðir minn, Einar bóndi
í Kaldrananesi, talaði hlýlega um
hana og hún var velkomin alls staðar
á ferðum sínum, enda lagði hún ekki
fyrir sig að bera sögur á milli bæja,
eins og sumir förumenn gerðu. Vigga
var skrautgjörn, skreytti litskrúðug
föt sín með marglitum tölum og sást
langar leiðir að. Hún var vel gefin
og kunni mikið af ljóðum, þótt hún
væri ekki læs að talið var.
Leiði hennar er fram af dyrum
Skeiðflatarkirkju norðan megin. Það
hafði aldrei verið merkt. Haustið
2017 tóku sig til 6 konur brottfluttar
úr Mýrdal og fóru að safna fé til að
reisa á leiði Viggu gömlu bautastein.
Konurnar eru allar ættaðar úr
Dyrhólahverfi og eru þessar:
Jóna Sigríður Jónsdóttir frá
Litla-Hvammi, dótturdóttir Stefáns
Hannessonar skáldbónda, sem orti
um gömlu konuna. Jóna er í forustu
fyrir hópinn.
Hrafnhildur Stella Stephensen frá
Loftssölum, Ólöf Eyjólfsdóttir frá
Dyrhólum, Erla Gerður Högnadóttir
frá Garðakoti, Rannveig Jónsdóttir
frá Norðurgarði og Margrét Steina
Gunnarsdóttir frá Vatnsskarðshólum.
Séra Haraldur Kristjánsson af
Hurðarbaksætt, prestur Mýrdælinga
og Eyfellinga, stjórnaði athöfninni
með tilfinningu og hlýju. Ávörp
fluttu nokkrar kvennanna, sem
stóðu fyrir athöfninni og sögðu
frá ævi og atburðum úr lífi Viggu.
Síðan var sungið í kirkjunni, sem
var þéttsetin „Blessuð sértu sveitin
mín“ en úti fyrir hélt athöfnin áfram,
legsteinninn var afhjúpaður og þar
sungið versið „Ó Jesú bróðir besti“.
Sólin skein á fólkið sem vottaði
minningu Viggu gömlu virðingu
sína og austan gola lék um vanga.
Forustukonurnar sáu gestunum fyrir
drykk og næringu af nægtaborði
undir kirkjuveggnum.
Steinninn er nú kominn á sinn
stað í garðinum. Hann er a.m.k. 1
tonn að þyngd, granít úr Hornafirði.
Á honum er gulur skrautkross og
marglitar „tölur“ í bak og fyrir,
glerlistaverk Sigrúnar í Bergvík. Á
framhlið stendur:
„Vigdís Ingvadóttir förukona í
Mýrdal 1864–1957 – Hvíl í friði.“
Á bakhlið, sem að kirkjunni snýr,
stendur brot úr ljóði Stefáns í Litla-
Hvammi. „Í ljósaskiptum langrar
ævi gekk hún bæ frá bæ eða barst
með straumi.“
Konurnar 6 og aðrir, sem að
þessari minningarathöfn stóðu um
einstæðinginn Viggu förukonu, eiga
skilið hrós og þakklæti fyrir að lífga
og viðhalda minningu um hana. Það
er þeim til mikils sóma. Myndir í
bak og fyrir af legsteininum fylgja
þessum pistli.
Sigurður Sigurðarson
dýralæknir
viftur
Loftviftur - Þakblásarar - Reykblásarar - ATEX viftur
Þú færð viftuna hjá okkur:
viftur.is
Gluggar og hurðir fyrir
íslenskar aðstæður
Gluggar og hurðir með eða
-8 vikur
Regnsett fóðrað með Jersey efni er rifþolið, slitsterkt
og endingargott. Efnið teygjanlegt sem auðveldar
alla hreyfingu. Mjúkt efnið er einnig sveigjanlegt
jafnvel þótt það sé kalt í veðri. Saumarnir eru soðnir
og límdir. Hetta með smellum. Endurskinsborðar á
öxl og hálsi. Buxurnar eru með teygju í mitti og vasa
að framan með flipa.
Stærðir: XS - 3XL.
Efni: 100% pólýúretan með jersey fóðri, 170 g/m².
Litir: Blátt og svart.
Regnsett fyrir útileguna
Verð: kr. 10.850,-
KH Vinnuföt Nethyl 2a 110 Reykjavík Sími: 577 1000 info@khvinnufot.is www.khvinnufot.is
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Sigurður Sigurðarson.
Bakhlið steinsins.
úr Mýrdal og fóru að safna fé til að reisa á leiði Viggu gömlu bautastein.