Bændablaðið - 14.03.2019, Side 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 20196
Í upphafi Íslandsbyggðar tókust forfeður
okkar og -mæður á við óblíð náttúruöflin
á eyju lengst norður í Atlantshafi, þar
sem veturinn var langur, sumarið stutt og
duttlungar náttúrunnar óútreiknanlegir.
Harðir vetur og náttúruhamfarir settu
mark sitt á líf þessa fólks. Í dag stöndum
við frammi fyrir annars konar öflum
sem eru engu að síður óvægin. Þessi öfl
eru viðskiptahagsmunir og peningar.
Hagsmunir örfárra einstaklinga sem dafna
svo vel í því neyslumunstri sem við höfum
komið okkur upp.
Umræða síðustu vikna um aukinn innflutning
á búvörum hefur sýnt að almenningi er ekki
sama um íslenskan landbúnað. Efnislega snúa
frumvarpsdrög landbúnaðarráðherra meðal
annars um að aflétta frystiskyldu á kjöti og
leyfa innflutning á hráum eggjum. Fjöldi
umsagna á samráðsgátt stjórnvalda er til merkis
um það að hagsmunirnir eru miklir. Það er í
raun ánægjulegt að sjá þau viðbrögð sem málið
vekur. Sitt sýnist hverjum og ekki er alltaf
samhljómur milli fólks með sama bakgrunn.
Við sjáum að læknar taka málið misalvarlega
og dýralæknar lýsa ólíkum viðhorfum til
áhættunnar sem um ræðir. En umræðan hefur
skilað því að málefni eins og smithætta,
ofnotkun sýklalyfja og sýklalyfjaónæmi eru
komin rækilega á kortið.
Í spurningakönnun sem Gallup gerði í
lok febrúar fyrir BÍ og samstarfsaðila þeirra
nefna 58% aðspurðra að þeir vilji halda þeirri
reglu að innflutt kjöt sé fryst í mánuð áður
en það er selt á markaði hér á landi. 24%
hafa ekki skoðun og rúm 18% vilja aflétta
frystiskyldunni. Fólk vill fara varlega.
Málið varðar heilbrigði fyrst og fremst
Bændur hafa lengi varað við innflutningi á
hráu kjöti og þeirra rök eru flestum kunn
sem lesa Bændablaðið. Málið er stórt og
það varðar heilbrigði manna og dýra. Við
viljum leita allra leiða til að standa vörð
um þá auðlind sem felst í heilbrigðum
búfjárstofnum og þeim hreinleika sem
íslenskar landbúnaðarafurðir búa yfir í
dag. Sá hópur sem hefur hæst um aukinn
innflutning á ófrosnu kjöti, hráum eggjum og
ógerilsneyddri mjólk er á öndverðum meiði
við forystu bænda. Það eru fyrirferðarmiklir
forsvarsmenn innan verslunargeirans og
heildsalar sem hafa atvinnu af því að flytja
inn mat. Mörgum finnst landbúnaðarráðherra
draga taum viðskiptahagsmuna og hugsa
minna um bein áhrif á landbúnað í landinu.
Mótvægisaðgerðir sem ráðherra kynnti fyrir
nokkru eru vissulega góðra gjalda verðar en
munu þær verja okkur?
Viðskiptahagsmunir ráða för
Það er sorgleg staðreynd að staða heimsins
í dag ræðst af viðskiptahagsmunum, ekki
hagsmunum heildarinnar eða velferð
manna. Ekki heilbrigðri skynsemi, engum
langtímamarkmiðum um hvernig við ætlum
að skila jörðinni af okkur til afkomendanna.
Þessum hagsmunum er stýrt af fáum, þeir eru
ekki tengdir vilja almennings en við spilum
samt með. Hvert erum við að stefna?
Við stöndum frammi fyrir því að
forsvarsmenn verslunar vilja auka tekjurnar
með því að taka meiri áhættu á kostnað heilla
og heilbrigðis búfjár og manna. Viðvaranir
þekktra sérfræðinga eru hundsaðar og hafðar
að engu. Við stöndum frammi fyrir ógnunum
í loftslagsmálum sem eru svo stórar að við
eigum erfitt með að horfast í augu við þær.
Við horfum fram á að ónæmi sýklalyfja sem
er vaxandi vandamál í heimsbyggðinni allri
ógni lífi stærri og stærri hluta mannkyns.
Í augum sumra er Ísland kannski
ekkert merkilegt en í okkar augum er það,
lífsskilyrði okkar eru einstök, hreinleiki og
heilbrigði búfjárstofna er í afar fáum löndum
sambærilegt. Það er fágætt og auðlind sem
við megum ekki tapa. Við verðum að bregðast
við.
Öruggur matur í forgang
Við getum verið sammála um að íslenskur
landbúnaður er einn af hornsteinum byggðar
og byggðafestu í landinu. Við getum líka verið
sammála um að fæðuöryggi sé mikilvægt, öll
þurfum við jú að borða. En getum við ekki
líka verið sammála um að það sé ekki bara
nóg að hafa öruggt aðgengi að matvælum,
viljum við ekki líka að þau sjálf séu örugg?
Við verðum að geta treyst því að sú matvara
sem er í boði sé laus við sýkingar, fjölónæmar
bakteríur og önnur óæskileg efni. Það er
lykilatriði að neytendur geti tekið upplýsta
ákvörðun um eiginleika vörunnar sem þeir
kaupa hverju sinni.
Við höfum skilning á þeim rökum
að ríkissjóður standi frammi fyrir
skaðabótagreiðslum vegna vanefnda á
gerðum samningum. En við getum samt með
engu móti sætt okkur við þá niðurstöðu að
hingað eigi að flytja nánast óheft vörur sem
geta skaðað íslenskan landbúnað og ógnað
bæði búfjárheilsu og lýðheilsu. Við ætlumst
til þess af fullri alvöru að ríkisstjórnin okkar
finni leiðir til þess að að afstýra þeirri vá sem
fjöldamargir sérfræðingar hafa varað við.
Við erum ekki hrædd við samkeppni sé hún
á þeim grundvelli að við fáum að keppa við
vörur sem framleiddar eru við sambærilegar
aðstæður, hvað varðar t.d. sýklalyfjanotkun,
notkun varnarefna, dýravelferð og aðbúnað
starfsfólks. Við erum ekki hrædd við að
keppa við landbúnaðarafurðir sem koma frá
svæðum þar sem gerðar eru sambærilegar
kröfur og til okkar framleiðslu. Í stuttu
máli er það kjarni málsins. Að tryggt sé að
innflutningurinn uppfylli sömu skilyrði og við
sjálf þurfum að fara eftir í okkar framleiðslu.
Við hvetjum neytendur til að spyrja eftir
þessum upplýsingum, liggi þær ekki fyrir
og spyrja sig einnig um aðra framleiðsluhætti
svo sem vatnsgæði við framleiðsluna og
umhverfisfótspor hennar.
Ræðum um sérstöðu okkar
Ársfundur Bændasamtakanna verður haldinn
á föstudaginn kemur á Hótel Örk í Hveragerði.
Hefðbundin aðalfundarstörf verða fyrir hádegi
en klukkan 13.00–16.00 verður haldin opin
ráðstefna undir yfirskriftinni „Hver er sérstaða
íslensks landbúnaðar?“ Þar verður fjallað
um sérstöðuna út frá ýmsum sjónarhornum,
virði hennar og verðmætasköpun. Um kvöldið
verður Bændahátíð á Örkinni þar sem við
ætlum að gera okkur glaðan dag. Ástæða er
til að hvetja alla áhugasama til þess að koma í
Hveragerði, ræða um framtíð landbúnaðarins
og skemmta sér í góðra vina hópi.
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.900 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara kostar 5.450 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Það hefur verið stöðugur næðingur
um íslenskan landbúnað um árabil og
ekki síst af mannavöldum. Nú stendur
yfir enn ein atlagan sem snýst um að
afnema lagalegan rétt Íslendinga til að
halda uppi vörnum gegn innflutningi
búfjársjúkdóma og ofursýkla. Allt á
þetta svo rætur í aðild Íslands að við-
skipta samningi EES.
Því hefur verið haldið fram fullum fetum
síðan mjög umdeildur EES-samningur var
samþykktur á Alþingi 12. janúar 1993
og tók gildi 1. janúar 1994, að þar væri
um hreinræktaðan viðskiptasamning að
ræða. Hann snerist nær eingöngu um
gagnkvæmt tollfrelsi milli aðildarríkja
samningsins. Í samningsaðildinni fælist
ekkert valdaframsal. Enn reyna menn svo
að halda því fram að afnám íslenskra laga
og reglugerða að kröfu Evrópusambandsins
sem ætlað er að koma í veg fyrir innflutning
búfjársjúkdóma sé ekki framsal á völdum
Alþingis til að setja slík lög. – Hvað er
það þá?
Nákvæmlega sömu rökfræðinni hefur
verið haldið á lofti varðandi innleiðingu
á því sem kallað er „Orkupakki 3“. Þar er
því einnig haldið fram að innleiðing á þeim
reglum feli ekki í sér neitt valdaafsal. Þetta
sé bara saklaus innleiðing sem sé framhald
af fyrri kerfisbundnum innleiðingunum er
varða orkumál.
Nú er landbúnaðurinn undir. Það er
fyrirhugað að framselja löggjafarvald
sem hefur hingað til gert okkur kleift að
setja eigin reglur til að koma í veg fyrir
mögulegan innflutning á búfjársjúkdómum.
Má þá búast við að sjávarútvegurinn verði
næsta skotmark? Er nokkuð sem kemur
í veg fyrir að sambærileg áfangaskipt
kerfisbundin innleiðing á EES-regluverki
verði þar tekin upp? Regluverki sem á
endanum gæti leitt til þess að Íslendingar
missi yfirráð yfir eigin fiskveiðilögsögu.
Íslenska þjóðin byggir sínar leikreglur
á lýðræðislegri hefð. Í því felst að allur
almenningur hefur rétt til að velja sér
fulltrúa í kosningum til setu á Alþingi
Íslendinga. Þar eru lög sett og engir
aðrir en kjörnir fulltrúar hafa rétt til að
setja þjóðinni lög og reglur. Stjórnarskrá
landsins er síðan ætlað að vera handbók
um grunnreglur samfélagsins sem
þingmönnum og öðrum þegnum landsins
ber að fara eftir. Hvernig má það þá vera
að fulltrúar erlendra ríkja geti krafist þess
að hér séu sett lög og reglur án þess að
íslenska þjóðin eða réttkjörnir þingmenn
hafi í raun neitt um það að segja?
Undir innleiðingu EES-samningsins
rituðu fulltrúar 28 aðildarríkja Evrópu-
sambandsins og þriggja EFTA-ríkja,
þ.e. Íslands, Noregs og Liechtenstein.
Svisslendingar, sem líka voru í EFTA, töldu
greinilega að EES-samningurinn myndi
fela í sér svo óásættanlegt valdaframsal
að þeir ákváðu að skrifa ekki undir. Allar
götur síðan hafa Svisslendingar byggt sín
milliríkjaviðskipti á tvíhliða samningum
við ESB og ríki utan þess og enginn efast
um að þeim hafi farnast það vel. Það fór
ekki allt til andskotans í Sviss þótt þeir
neituðu að skrifa undir EES-aðildina.
Svisslendingum hefur þvert á móti farnast
betur en flestum öðrum þjóðum heims.
Það hefur þeim tekist án þess að innleiða
sjálfvirkt á færibandi lög og reglur sem
settar hafa verið af embættismönnum
í Brussel. Það regluverk er sett af
embættismönnun og lögfræðingastóði
sem hefur ekki neitt lýðræðislegt umboð
til þeirra regluverkasmíða. Þetta er þvert
á okkar lýðræðishefðir þar sem kjörnir
fulltrúar almennings á Alþingi hafa einir
heimild til að setja okkur lög og reglur.
Er þetta ekki bara spurning um hvort að
við sem þjóð þorum að standa í lappirnar?
/HKr.
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Vefur blaðsins:
www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Anna Kristín Ólafsdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Horft af Vígabjargi yfir Jökulsá á Fjöllum og Réttarfoss. Austan við Réttarfoss er Réttarbjarg syðra og síðan ytra Réttarbjarg. Svæðið á milli
syðra og ytra Réttarbjargs er kallað Réttin, en áður fyrrr var þar safnað saman fé en auðvelt var að girða af svæðið báðum megin. Enda rann
meginkvísl árinnar mun nær réttinni en nú er. Farvegurinn breyttist um 1950 og þá hvarf að mestu Vígabjargarfoss sem féll fram af stalli rétt við
Vígabjargið. Nú rennur áin í Katla sem svo eru nefndir. Mynd / Hörður Kristjánsson
Að standa í lappirnar
Guðrún S. Tryggvadóttir
formaður Bændasamtaka Íslands
gst@bondi.is
Við verðum að verja okkar dýrmætu stöðu