Bændablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 2019 17
verðmæti vöruútflutnings þeirra
árið 2017 voru sjávarafurðir
samanborið við 38% á Íslandi. Alls
voru á árinu 2017 fluttar út vörur
frá Grænlandi fyrir 66 milljarða
íslenskra króna, þar af voru 63
milljarðar fyrir sjávarafurðir.
Skiptingin var þannig að rækjan
gaf 44% af heildinni, grálúða
23%, þorskur 10% og afgangurinn
aðrar fisktegundir. Á Íslandi nam
verðmæti útfluttra sjávarafurða
197 milljörðum króna sama ár,
þar af 44% fyrir þorskafurðir.
Grænlendingar eru með
gagnkvæma fiskveiðisamninga
við aðrar þjóðir, svo sem
Færeyinga, Norðmenn og Rússa,
en einnig við Evrópusambandið
sem fær fiskveiðiheimildir gegn
því að veita Grænlendingum
tollfríðindi. Þessi samningur
gefur Grænlendingum samtals
jafnvirði 6,3 milljarða íslenskra
króna árlega, þar af er þriðjungur
eyrnamerktur sem greiðsla fyrir
fiskveiðiréttindin en tveir þriðju
styrkur til menntamála.
Veiðigjöld stórhækka
Loks er svo að nefna að stjórnvöld
í Grænlandi innheimta veiðigjöld
af fiskafla sem eru mun hærri en
tíðkast á Íslandi. Hinn 1. janúar
2018 tók gildi nýtt veiðigjaldakerfi
sem gerir það að verkum að
tekjur ríkisins af veiðigjöldum
hafa stóraukist, að sögn Hilmars
Ögmundssonar. Á árinu 2017 námu
veiðigjöldin á Grænlandi rétt um
4,5 milljörðum íslenskra króna en
bráðabirgðatölur fyrir árið 2018
gera ráð fyrir tæpum 7,3 milljörðum
ISK. Að sögn Hilmars eru nú
flestar fisktegundir gjaldskyldar
sem hlutfall af útflutnings- og
löndunarverðmæti, nema hvað
veiðigjöld fyrir uppsjávarveiðar á
makríl, loðnu, síld, kolmunna og
gulllaxi eru enn þá föst krónutala
fyrir hvert kíló.
Verðdæmi Kverneland AD 5 skeri. Lokuð moldveri no. 28 ..................
Verðdæmi Kverneland AD 5 skeri. Opin moldverpi no. 30 ..................
Verðdæmi Kverneland 150S 4 skeri Variomat. Opin moldverpi .........
Verðdæmi Kverneland 150S 5 skeri Variomat. Opin moldverpi .........
verð án vsk
verð án vsk
verð án vsk
verð án vsk
2,149,000 kr.
2,269,000 kr.
3,280,000 kr.
3,960,000 kr.
FR
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • Frostagata 2a • 600 Akureyri
VERKIN TALA
Þú nýtur góðs gengis
Hafið samband við sölumenn Vélfangs og kynnið ykkur markvissar
uppfærslur á búnaði Kverneland plóga.
Bændur – verktakar – búnaðarfélög. Nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri.
Nánari upplýsingar veita sölumenn Vélfangs Reykjavík og Akureyri
AFMÆL
IS
AFSLÁT
TUR
Í tilefni af 140 ára afmæli Kverneland bjóðum við frábært tilboð á völdum Kverneland plógum.
Sérbúnir plógar hlaðnir helstu nýjungum – Opin moldverpi – knock on oddar – hálmsköfur.
Allir plógar afhentir samsettir á afgreiðslustað flutningsaðila í þinni heimabyggð.
Til afhendingar nú þegar. Tilboðið gildir meðan birgðir endast. Sérpantanir í boði.
•
•
•
•